Fyrstu tölur í Reykjavík birtar um miðnætti

Beint streymi verður frá taln­ingu atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum á laug­ar­dags­kvöld. Ráðgert er að fyrstu tölur verði opin­berar um mið­nætti og að loka­tölur liggi fyrir kl. 4.30 um nótt­ina. Utan­kjör­fund­ar­at­kvæði verða talin síð­ust.

Kosið verður á 23 stöðum í Reykjavíkurborg.
Kosið verður á 23 stöðum í Reykja­vík­ur­borg. Mynd: Bára Huld Beck

Áætlað er að fyrstu tölur í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Reykja­vík á laug­ar­dag verði opin­berar á mið­nætti, aðrar tölur kl. 3 og þær þriðju og síð­ustu klukkan 4.30 um nótt­ina. Atkvæði þeirra sem mæta fyrri hluta dags á kjör­stað verða talin fyrst og utan­kjör­fund­ar­at­kvæði síð­ust.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í minn­is­blaði yfir­kjör­stjórnar Reykja­víkur um helstu tíma­setn­ingar vegna taln­ingar í kosn­ing­unum. Minn­is­blaðið var lagt fyrir fund kjör­stjórn­ar­innar í gær.

Kosið verður á 23 stöðum í Reykja­vík og að venju lýkur kjör­fundi klukkan 22. Þá þegar verður fjöldi kjör­kassa kom­inn í Laug­ar­dals­höll­ina þar sem taln­ing atkvæða fer fram. Taln­ingin getur því haf­ist á sama tíma og kjör­stöðum lokar sem ger­ist með því að odd­viti yfir­kjör­stjórnar rýfur inn­siglin á taln­ing­ar­staðnum í Höllinni. Streymt verður beint af taln­ing­unni á vef Reykja­vík­ur­borgar.

Í minn­is­blað­inu er gerð ítar­leg grein fyrir fyr­ir­komu­lag­inu. Þar segir að und­ir­bún­ingur fyrir taln­ingu atkvæða hefj­ist í Laug­ar­dals­höll kl. 17.00 á kjör­dag. Á milli 17.30-17.50 tekur yfir­kjör­stjórn á móti 96 atkvæða­kössum sem fluttir verða frá kjör­stöðum. Klukkan 18.00 verður taln­ing­ar­staður í Laug­ar­dals­höll inn­sigl­aður og læstur en þar fer fram afstemm­ing og flokkun atkvæða til að und­ir­búa taln­ingu af hálfu yfir­kjör­stjórnar að við­stöddum umboðs­mönnum fram­boða. Klukkan 22.00 rýfur odd­viti yfir­kjör­stjórnar inn­siglin og opnar taln­ing­ar­stað. Þá getur taln­ing atkvæða haf­ist.

Fyrsta, önnur og þriðja umferð

Í fyrstu umferð verða talin öll kjör­funda­at­kvæði fyrri hluta dags. Áætlað er að henni ljúki um 23.40 og að fyrstu tölur í Reykja­vík liggi fyrir og verði gerðar opin­berar á mið­nætti. Önnur umferð taln­ingar hefst um leið og seinni kjör­kassar ber­ast í Laug­ar­dals­höll frá öllum 23 kjör­stöð­unum í Reykja­vík að kjör­fundi loknum.

Áætlað er að lokið verði við að telja öll kjör­fund­ar­at­kvæði um 02.50 og að aðrar tölur í Reykja­vík liggi fyrir og verði gerðar opin­berar klukkan 3. Í þriðju umferð verða utan­kjör­fund­ar­at­kvæði talin. Áætlað er að lokið verði við að telja öll atkvæði um kl. 4 og er áætlað að loka­tölur í Reykja­vik liggi fyrir og verði gerðar opin­berar kl. 4.30.

Ellefu fram­boðs­listar eru í kjöri í Reykja­vík. Kjör­staðir opna kl. 9 á laug­ar­dags­morgun og loka líkt og fyrr segir kl. 22.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár