Sjö prósent barna komast inn á leikskóla 12 mánaða – Meðalaldur við inntöku 17,5 mánaða

Fæst sveit­ar­fé­lög tryggja börnum leik­skóla­pláss við 12 mán­aða aldur, þegar hefð­bundnu fæð­ing­ar­or­lofi lýkur. BSRB hvetur öll fram­boð til að brúa bilið með því að setja í for­gang rétt barna til leik­skóla­pláss strax að loknu fæð­ing­ar­or­lofi for­eldra.

Um 7 prósent barna komast að á leikskóla að loknu fæðingarorlofi eða fyrr, 27 prósent komast inn á bilinu 12,5 til 18 mánaða og 66 prósent á bilinu 18,5 til 24 mánaða.
Um 7 pró­sent barna kom­ast að á leik­skóla að loknu fæð­ing­ar­or­lofi eða fyrr, 27 pró­sent kom­ast inn á bil­inu 12,5 til 18 mán­aða og 66 pró­sent á bil­inu 18,5 til 24 mán­aða. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Börn eru að með­al­tali 17,5 mán­aða gömul þegar þau kom­ast inn á leik­skóla og fæst sveit­ar­fé­lag­anna 69 tryggja börnum leik­skóla­pláss þegar þau verða 12 mán­aða, það er eftir að hefð­bundnu fæð­ing­ar­or­lofi lýkur. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu BSRB - heild­ar­sam­taka stétt­ar­fé­laga starfs­fólks í almanna­þjón­ustu. Munurinn er tals­verður milli sveit­ar­fé­laga en með­al­ald­ur­inn er tals­vert lægri en árið 2017, þegar með­al­aldur barna við inn­töku á leik­skóla var 20 mán­uðir.

Markmið skýrsl­unnar er að varpa ljósi á stöðu leik­skóla­vist­unar ungra barna á Íslandi og atvinnu­þátt­töku for­eldra. Nið­ur­stöð­urnar byggja á nið­ur­stöðum könn­unar sem sam­tökin lögðu fyrir sveit­ar­fé­lög með raf­rænum hætti í febr­úar 2022 og gögnum frá Hagstofu Íslands.

Um sjö pró­sent barna kom­ast að á leik­skóla að loknu fæð­ing­ar­or­lofi eða fyrr, 27 pró­sent kom­ast inn á bil­inu 12,5 til 18 mán­aða og 66 pró­sent á bil­inu 18,5 til 24 mán­aða.

Umönnunarbilið mest á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum

Umönn­un­ar­bilið, það er bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla, er mis­jafnt eftir lands­hlutum en er að jafn­aði um fimm og hálfur mán­uður á land­inu öllu. Bilið er minnst, um eða innan við mán­uður á Norð­ur­landi vestra, Vest­fjörðum, Aust­ur­landi og Vest­ur­landi. Umönn­un­ar­bilið er 4 mán­uðir á Norð­ur­landi eystra, tæpir 5 á Suð­ur­landi, 6 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 9 mán­uðir á Suð­ur­nesjum.

[adspot]Í skýrsl­unni segir að þrátt fyrir að mik­ill sigur hafi unn­ist þegar fæð­ing­ar­or­lof var lengt í 12 mán­uði árið 2021 sé staðan sú að umönn­un­ar­bilið er enn of langt í flestum til­fellum.

„Núver­andi skipan leik­skóla­mála tak­markar mögu­leika for­eldra til þátt­töku á vinnu­mark­aði að loknu fæð­ing­ar­or­lofi,“ segir í skýrsl­unni, þar sem er jafn­framt bent á að ekki hefur verið gripið til neinna aðgerða af hálfu rík­is­valds­ins til þess að tryggja 12 mán­aða gömlum börnum stuðn­ing við umönnun og menntun ungra barna sinna á borð við leik­skóla og því sé staða barna og for­eldra afar mis­jöfn eftir búsetu. „Mörg sveit­ar­fé­lög hafa þó sett sér skýr mark­mið, gripið til aðgerða og minnkað umönn­un­ar­bilið umtals­vert frá árinu 2017, sem er jákvætt,“ segir í skýrsl­unni.

66 prósent barna komast inn á bilinu eins og hálfs árs til tveggja ára

Þegar horft er á fjölda sveit­ar­fé­laga fer hlut­fallið í um 50% við 12 mán­aða aldur og er komið í 80% við 15 mán­aða aldur. Ljóst er að fleiri af minni sveit­ar­fé­lögum taka inn yngri börn, því þegar horft er til fjölda barna á leik­skóla­aldri er hlut­fallið aðeins komið í 40 pró­sent við 18,5 mán­aða aldur og svo 90 pró­sent við 19 mán­aða aldur.

Ef horft er á fjölda þeirra barna sem kom­ast inn á ákveðnum aldri kom­ast flest börn inn 19 mán­aða og næst­flest 15 mán­aða. Þá eru nokkuð stórir hópar sem kom­ast inn 22 mán­aða, 19 mán­aða og 12 mán­aða.

Ef aldur barn­anna við inn­töku er flokk­aður í fjóra hópa má sjá að 2 pró­sent barna kom­ast inn yngri en 12 mán­aða, 5 pró­sent kom­ast inn við 12 mán­aða aldur, 27 pró­sent kom­ast inn á bil­inu 12,5 til 18 mán­aða en stærsti hóp­ur­inn, eða 66 pró­sent, kom­ast ekki að í leik­skóla fyrr en á bil­inu 18,5 til 24 mán­aða. „Það liggur því fyrir að ansi stór hópur barna kemst ekki inn fyrr en tölu­verður tími er lið­inn frá lokum fæð­ing­ar­or­lofs, með til­heyr­andi áhrifum á atvinnu­þátt­töku for­eldra og vel­ferð og þroska barns­ins,“ segir í skýrsl­unni.

Ansi mis­jafnt er eftir land­svæðum hvenær börn kom­ast inn á leik­skóla og má sjá mik­inn mun á stórum svæðum á lands­byggð­inni og höf­uð­borg­ar­svæð­inu og svæð­unum hér í kring, Suð­ur­nesjum og Suð­ur­landi, þar sem börn eru almennt eldri þegar þau kom­ast inn.

Fæst barna sem fæddust í fyrra komin inn á leikskóla

Líkt og fyrr segir er með­al­aldur barna þegar þau kom­ast inn á leik­skóla á vegum sveit­ar­fé­lags miðað við könnun BSRB 17,5 mán­aða. Er það nokkur breyt­ing frá fyrri skýrslu BSRB 2017 þar sem með­al­ald­ur­inn var rúm­lega 20 mán­aða.

Tekist hefur að stytta ummönn­un­ar­bilið, meðal ann­ars með leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs, en það var níu mán­uði við útgáfu síð­ustu skýrslu. Leik­skóla­plássum hefur einnig fjölgað en fram kemur í skýrsl­unni að dreif­ing á inn­töku barna er mikil, allt frá níu mán­aða aldri upp í 24 mán­aða og þá er nokkuð stór hópur sem kemst inn eldri en 18,5 mán­aða.

Í skýrsl­unni er einnig bent á að árgang­ur­inn sem fædd­ist árið 2021 er afar stór, eða sá fjórði stærsti frá upp­hafi. „Fæst þeirra barna eru komin inn á leik­skóla þegar þetta er ritað, og verður áhuga­vert að sjá hvernig sveit­ar­fé­lög­unum tekst að bregð­ast við þess­ari fjölgun í fæð­ingum barna,“ segir í skýrsl­unni.

Hvetja öll framboð til að brúa bilið

Í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga hvetur BSRB öll fram­boð til að brúa bilið með því að setja í for­gang rétt barna til leik­skóla­pláss strax að loknu fæð­ing­ar­or­lofi for­eldra. Auk þess kallar banda­lagið eftir því að sá réttur verði lög­festur á Alþingi hið fyrsta með til­heyr­andi fjár­mögnun og veita þannig barna­fjöl­skyldum hér á landi sam­bæri­legan stuðn­ing og á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, segir ummönn­un­ar­bilið hafa nei­kvæð áhrif á jafn­rétti kynj­anna þar sem konur eru lík­legri til að minnka við sig vinnu en karlar eða lengja fæð­ing­ar­or­lof.

„Við hjá BSRB gerum þá kröfu að ríki og sveit­ar­fé­lög grípi til aðgerða til að öllum börnum verði tryggð leik­skóla­pláss að loknu fæð­ing­ar­or­lofi for­eldra sama hvar þau búa á land­inu.” er haft eftir Sonju í til­kynn­ingu frá BSRB.

Leik­skóla­mál hafa verið í umræð­unni í aðdrag­anda sveit­ar­stjórna­kosn­inga, ekki síst í Reykja­vík, þar sem aðgerð­ar­á­ætl­unin Brúum bilið hefur verið í gildi frá nóv­em­ber 2018. Áætlunin miðar að því að fjölga leik­skóla­plássum svo bjóða megi for­eldrum leik­skóla­vist þegar fæð­ing­ar­or­lofi lýkur og barn þeirra er 12 mán­aða. Í til­kynn­ingu sem borgin sendi frá sér í mars kom fram að byrjað verði að taka á móti 12 mán­aða börnum í leik­skóla borg­ar­innar í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár