„Orkan þarf að rata í orkuskiptin“

Orku­skipti eru lyk­il­mark­mið stjórn­valda í lofts­lags­málum en það er ekki þar með sagt að orkan sem fram­leidd er rati í orku­skiptin, segir orku­mála­stjóri. „Græna orkan er verð­mæt, tak­mörkuð auð­lind, olía okkar tíma, sem við verðum að vanda okkur með.“

Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri.
Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri.

Orku­skiptin eru „heldur betur“ lyk­il­mál­efni í að leysa lofts­lags­málin en þau eru ekki auð­velt við­fangs­efni. Til að þau verði að veru­leika þarf fjár­magn, inn­viði og „það þarf líka að vera orka til staðar í orku­skipti,“ sagði Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri á lofts­lags­deg­inum, stórri ráð­stefnu á vegum Umhverf­is­stofn­unar, sem fram fór í Hörpu í dag. „Orkan þarf að rata í orku­skiptin.“

Og þá er komið að einu lyk­il­máli, að sögn Höllu Hrundar: „Við þurfum að horfa á það að þó að orku­skipti séu lyk­il­mark­mið stjórn­valda, þá er ekki sjálf­gefið að orka, sama hvort að er úr núver­andi fram­leiðslu eða fram­tíð­ar­virkj­ana­kostum, rati sjálf­krafa í orku­skipta­verk­efnin.“

Það er vegna þess, benti Halla á, að það er svo mikil sam­keppni um ork­una. „Það eru svo margir leik­endur sem vilja kaupa orku, græna orku, þetta er eft­ir­sótt vara. Og vegna þess að orkan er seld á mark­aði, þá þarf að skapa sér­staka lag­ara­mma og hvata til þess að orkan rati í orku­skiptin – ef við ætlum að kom­ast sem hrað­ast í mark og ná að leysa þann þátt lofts­lags­mál­anna sem orku­málin eru hluti af.“

[adspot]

Halla sagði einnig að gera mætti ráð fyrir því að með síhækk­andi orku­verði i Evrópu, m.a. vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu, muni eft­ir­spurn eftir orkunni okkar halda áfram að vaxa. „Stundum hefur verið sagt að það sé nóg að auka orku­fram­boð ótak­markað til að leysa þennan vanda. En þótt slíkt hljómi kannski vel á blaði þá þurfum við að horfa til þess, í raun­heimum, að þó að orkan okkar sé end­ur­nýj­an­leg að þá er hún ekki óend­an­leg. Græna orkan er verð­mæt tak­mörkuð auð­lind, hún er olía okkar tíma, sem við verðum að vanda okkur með, og verðum að horfa á í sam­hengi við lyk­il­mál­efni eins og orku­skiptin.“

[links]Umræða um orku­skipti umlykur orðið allt og er sett á odd­inn í stefnu stjórn­valda til að leysa lofts­lags­vand­ann. Að skipta út jarð­efna­elds­neyti í stað­inn fyrir raf­magn, metan eða raf­elds­neyti, er mark­mið sem sett hefur verið fram af ástæðu. Olía sem notuð er á bíla- og fiski­skipa­flot­ann brennur og myndar þannig koltví­sýr­ing (CO2), loft­teg­und sem safn­ast upp í loft­hjúpnum og hefur áhrif á lofts­lag.

Og olíu­notkun Íslend­inga er mikil. Hún var um fimmtán pró­sent af allri frumorku­notkun okkar árið 2019, líkt og Jón Ásgeir Haukdal Þor­valds­son, verk­efna­stjóri í orku­skiptum hjá Orku­stofnun, kom inn á í sínu erindi á lofts­lags­deg­inum. Fimmtán pró­sent lítur kannski út fyrir að vera frekar lág tala, sagði Jón Ásgeir, en til að skilja umfangið þá þurfi að setja það í sam­hengi við eitt­hvað sem við þekkjum og skiljum.

Og þá er upp­lagt að nota Laug­ar­dals­laug­ina til sam­an­burðar. Sundlaug sem margir Íslend­ingar þekkja vel. „Aðallaug Laug­ar­dals­laugar er ein milljón lítrar,“ sagði Jón Ásgeir. Þetta er 50 metra löng laug, 22 metrar á breidd. „Það þarf því 390 sund­laugar til að taka elds­neyt­is­notkun bif­reiða árið 2019 – á einu ári.“

Hægt hefði verið að fylla Laug­ar­dals­laug­ina tæp­lega 400 sinnum með allri þeirri olíu og bens­íni sem við not­uðum þetta ár.

Jón Ásgeir lét ekki staðar numið við þennan sam­an­burð og tók fleiri dæmi. Lofts­lags­dag­ur­inn fór fram í Norð­ur­ljósa­sal Hörpu. „Það þarf eina Laug­ar­dals­laug til að fylla þetta rými upp í tvo metra,“ sagði hann ofan af svið­inu í salnum og leit yfir áhorf­endur. „Það þyrfti því fimm sund­laugar til að fylla rýmið upp í topp. Þannig að við þyrftum að fylla þetta rými, allan sal­inn, 77 sinnum til að eiga fyrir elds­neyt­is­notkun bif­reiða á einu ári.“ Fiski­skipa­flot­inn þyrfti svo 37 Norð­ur­ljósa­sali og flugið 78. Þá eru ótaldir aðrir minni flokkar sem nota jarð­efna­elds­neyti.

[adspot]

Sigurður Ingi Frið­leifs­son, svið­stjóri orku­skipta og lofts­lags­mála hjá Orku­stofnun, sagði að það áhuga­verða við þau mark­mið í orku­skiptum og sam­drætti í losun sem sett hefðu verið væri að þau væru tækni­lega mögu­leg. „Og hag­kvæm,“ bætti hann við. „Þannig að það verður algjör­lega okkur að kenna ef við klúðrum Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu.“

Erindi Sigurðar Inga hét „Orku­skipti á manna­máli“ og stóð það undir nafni enda Sigurður beittur og hnit­mið­aður í orðum sínum. Hann sagð­ist vera búinn að tala um orku­skipti í fimmtán ár en að nú fyrst væri fólk farið að sperra eyrun. Gjald­eyr­is­sparn­aður, minni mengun, minni hávaði, bætt nýt­ing raf­orku­kerfis og rekstr­ar­sparn­aður. Allt þetta er ávinn­ingur orku­skipta í bílum okkar. „Þetta er allt sam­fé­lags­á­vinn­ingur og þess vegna er svo fyndið, finnst mér alla vega, þegar menn eru að tala um íviln­anir og svo­leiðis og sjá fyrir sér að eyða þurfi pen­ingum í þetta. En þetta er algjör fjár­fest­ing. Bein og skyn­sam­leg fjár­fest­ing.“

Sigurður Ingi sagði málið þó ekki aðeins snú­ast um raf­bíla. Þeir leysi ekki örtröð­ina á göt­unum. „Við verðum líka að breyta ferða­venjum,“ sagði hann, „og það hratt.“

Hann sagði bíla mjög heilaga í hugum Íslend­inga. „Eins og mað­ur­inn sagði: Ég á þrjú börn. Erlu, Gunnar og Skoda Octavia.“

Málið snú­ist þó ekki um bíl­lausan lífs­stíl fyrir alla heldur að fækka eknum kíló­metrum. Benti hann á appið Korter „sem sýnir okkur hvað við erum ofboðs­lega vit­laus að nota bíl­inn.“ Í app­inu er hægt að sjá hversu langan tíma tekur að ganga eða hjóla til næsta áfanga­staðar.

Einfalt væri að kenna grunn­skóla­börnum á strætó­kerfið og verk­efni er nú hafið á Akureyri sem gengur út á einmitt það. Þetta verk­efni mætti taka upp á höf­uð­borg­ar­svæð­inu því það væri „eitt­hvað bilað við það að útskrifa börn úr grunn­skóla sem hafa aldrei stigið inn í strætó. Og á sama tíma að segja þeim að hætta að nota bíl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár