Tvö af fimm í landskjörstjórn þurftu að víkja vegna vanhæfis

Báðir aðal­menn­irnir sem Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga til­nefndi í lands­kjör­stjórn reynd­ust van­hæfir til að sitja þar í kom­andi kosn­ingum vegna tengsla við fram­bjóð­endur. Er vara­menn þeirra könn­uðu hæfi sitt kom í ljós að þau teld­ust einnig van­hæf.

Nýtt lagaákvæði um hæfi kjörstjórnarfólks útvíkkaði töluvert þau tengsl sem leiða til vanhæfis. Ef börn systkina maka, eða jafnvel maki barnabarns maka, er í framboði leiðir það t.d. til vanhæfis kjörstjórnarmanns, samkvæmt kosningalögum.
Nýtt laga­á­kvæði um hæfi kjör­stjórn­ar­fólks útvíkk­aði tölu­vert þau tengsl sem leiða til van­hæfis. Ef börn systk­ina maka, eða jafn­vel maki barna­barns maka, er í fram­boði leiðir það t.d. til van­hæfis kjör­stjórn­ar­manns, sam­kvæmt kosn­inga­lögum. Mynd: Stjórnarráðið

Allir fjórir ein­stak­ling­arnir sem Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga til­nefndi í upp­hafi þessa árs til setu í lands­kjör­stjórn sem aðal­menn og vara­menn hafa þurft að víkja úr nefnd­inni fyrir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, vegna van­hæfis.

Þau þurftu að víkja vegna tengsla við ein­hverja af þeim þús­undum fram­bjóð­enda sem sitja á fram­boðs­listum hér og þar um landið, á grund­velli 18. greinar nýrra kosn­inga­laga sem tóku gildi um ára­mót. Búið er að skipa tvo nýja full­trúa til setu í lands­kjör­stjórn fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í þeirra stað.

Þetta kemur fram í svari frá starfs­manni lands­kjör­stjórnar við fyr­ir­spurn Kjarnans, en ný lands­kjör­stjórn var skipuð frá og með 1. jan­úar 2022 í kjöl­far gild­is­töku nýrra kosn­inga­laga. Fimm manns sitja í lands­kjör­stjórn­inni, sem er sjálf­stæð stjórn­sýslu­nefnd sem hefur yfir­um­sjón með fram­kvæmd kosn­inga og ann­ast fram­kvæmd kosn­inga­lag­anna.

Bæði aðalmennirnir og varamennirnir vanhæfir

Í svar­inu frá lands­kjör­stjórn segir að könnun full­trúa á hæfi þeirra eftir að fram­boðs­listar komu fram fyrir kom­andi kosn­ingar hafi leitt til þess að báðir full­trú­arnir sem Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga til­nefndi til setu í nefnd­inni í jan­úar, þau Ebba Schram og Magnús Karel Hann­es­son, hafi verið van­hæf til þess að sitja í lands­kjör­stjórn í þessum kosn­ingum.

[adspot]

Þá hafi verið leitað til vara­manna, þeirra Elínar Óskar Helga­dóttur og Ágústar Sigurðar Ósk­ars­sonar, en er þau könn­uðu hæfi sitt kom í ljós að bæði teld­ust einnig van­hæf til setu í lands­kjör­stjórn í þessum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Lands­kjör­stjórn fór þess á leit við dóms­mála­ráðu­neytið í kjöl­farið að það hlut­að­ist til um skipun nýrra full­trúa Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga í lands­kjör­stjórn fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar og frá því hefur verið gengið, sem áður segir.

Vandræðaákvæði í nýjum kosningalögum

Ný kosn­inga­lög eru með strang­ari reglum um hæfi kjör­stjórn­ar­fólks en þau gömlu, en sam­kvæmt 18. grein lag­anna skulu full­trúar víkja úr kjör­stjórnum og lands­kjör­stjórn „ef ein­stak­lingur er í kjöri sem er eða hefur verið maki hans, sam­búð­ar­maki, fyrr­ver­andi sam­búð­ar­maki eða skyldur eða mægður honum í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur honum með sama hætti vegna ætt­leið­ingar.“

Þetta hefur valdið tölu­verðum vand­kvæðum í kjör­stjörnum hér og þar á land­inu, þar sem reynt kjör­stjórn­ar­fólk hefur þurft að víkja sökum tengsla við fólk sem er að bjóða sig fram í þeirra sveit­ar­fé­lagi.

Á Akranesi þurftu til dæmis allir að víkja úr kjör­stjórn­inni og í Reykja­vík ákvað einn fram­bjóð­andi sem var neð­ar­lega á lista Pírata að víkja af fram­boðs­list­anum til þess að frændi hans, sem situr í kjör­stjórn borg­ar­innar, þyrfti ekki að víkja þaðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár