Ríkisstjórnin fátæk og skyni skroppin – og skorti skynsemi

Vara­þing­maður Mið­flokks­ins segir að orku­skiptin muni aldrei leysa lofts­lags­vanda heims­ins. Hún telur það bera vott um fátæka og þröng­sýna hugsun þegar öll eggin eru sett í sömu körf­una.

Ágústa Ágústsdóttir varaþingmaður Miðflokksins.
Ágústa Ágústs­dóttir vara­þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Ágústa Ágústs­dóttir vara­þing­maður Mið­flokks­ins segir að „við ríka þjóðin í norðri“ séum virkir þátt­tak­endur í eyð­ingu landa og ógn við líf fólks í suðri til þess eins að „geta aðlað okkur sem hina hvítu ridd­ara grænu orku­bylt­ing­ar­innar“ eins og um sér­staka ólymp­íu­grein væri að ræða. Þar ríði yfir­borðs­kenndin um á kostnað inn­við­anna sjálfra hjá þeim sem stjórna.

Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær.

Hóf hún ræðu sína á að segja að í gegnum árin hefði það æ oftar vakið furðu hennar að sitj­andi rík­is­stjórnir hefðu aldrei lagt áherslu á „plan B“ fyrir íslenska þjóð á virkri eld­fjalla­eyju í Norður-Atl­ants­hafi, hvort sem um væri að ræða út frá nátt­úru­ham­förum eða stríðs­á­standi; eyju stút­fullri af nátt­úru­auð­lindum jafnt á landi sem í sjó.

„Í dag eru orku­skiptin fremst á odd­inum þar sem raf­magns­bílar og vind­myllur eru tignuð sem hið eina sem bjargað geti okkur frá glötun. Lífs­nauð­syn­legt er að nýta okkar inn­lendu orku til þess að við getum orðið eins sjálf­bær og mögu­legt er. Það á að vera skylda hverrar þjóðar,“ sagði hún.

Þröngsýn hugsun að setja öll eggin í sömu körfuna

Ágúst telur það bera vott um fátæka og þröng­sýna hugsun þegar öll eggin eru sett í sömu körf­una.

„Samkvæmt mati Alþjóða­orku­stofn­un­ar­innar mun eft­ir­spurnin eftir fágætum jarð­málmum fjór­fald­ast á heims­vísu fyrir árið 2040. Enginn iðn­aður er jafn meng­andi fyrir umhverfið eins og námu­iðn­aður. Þá má benda hátt­virtum þing­mönnum á að á heims­vísu í dag eru í kringum 32.000 eitruð risa­stöðu­vötn eða lón, sem er afleið­ing þess sem við meðal ann­ars köllum græn orku­skipti. Vegna eft­ir­spurnar munu námur heims­ins aldrei ná að fóðra slíkar kröfur og því eru fyr­ir­tæki eins og til dæmis Deep Green og UK Seabed Resources löngu byrjuð að kanna mögu­leik­ann á að hag­nýta sjáv­ar­botn­inn til námu­vinnslu.

Það er kald­hæðni að hugsa til þess að á COP26 ráð­stefn­unni í Glasgow skrif­uðu um 100 þjóðir undir samn­ing þar sem vinna á gegn eyð­ingu regn­skóg­anna. En á sama tíma eru þessar sömu þjóðir í raun að vinna að eyð­ingu þeirra vegna orku­skipt­anna. Við ríka þjóðin í norðri erum virkir þátt­tak­endur í eyð­ingu landa og ógn við líf fólks í suðri til þess eins að geta aðlað okkur sem hina hvítu ridd­ara grænu orku­bylt­ing­ar­innar eins og um sér­staka ólymp­íu­grein sé að ræða. Þar ríður yfir­borðs­kenndin um á kostnað inn­við­anna sjálfra hjá þeim sem stjórna,“ sagði hún.

Lauk Ágústa máli sínu á því að segja að orku­skiptin myndu aldrei leysa lofts­lags­vanda heims­ins. „Þau munu hins vegar gera okkur mun háð­ari löndum eins og Kína sem ræður á einn eða annan hátt yfir um 80 pró­sent allrar námu­vinnslu heims á fágætum jarð­málmum. Rík­is­stjórnin er fátæk og skyni skroppin, og skortir skyn­semi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár