Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra gagnrýnir skipan Hæstaréttar í makrílmálum

Jón Bjarna­son segir það „kynd­ugt“ að fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóri í sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu hafi fengið að sitja sem dóm­ari í Hæsta­rétti í málum sem vörð­uðu kröfur útgerða um skaða­bætur vegna fyr­ir­komu­lags mak­rílút­hlut­unar sem Jón sjálfur kom á.

Jón Bjarna­son, sem var sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra í rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur frá 2009 til 2011, sagði frá átökum um sjáv­ar­út­vegs­mál og sam­skiptum sínum við stór­út­gerð­ina í blogg­færslu sem hann birti um helg­ina.

Í færslu sinni segir hann meðal ann­ars að það hafi verið „kynd­ugt“ að Árni Kol­beins­son, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóri sjáv­ar­út­vegs­mála frá 1985-1998 og að sögn Jóns einn aðal­höf­undur kvóta­lag­anna, hafi fengið að sitja sem dóm­ari í Hæsta­rétti án þess að rík­is­lög­maður gerði við það athuga­semdir, í málum þar sem Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að ríkið væri skaða­bóta­skylt gagn­vart útgerðum vegna úthlut­unar á mak­ríl­kvóta.

„Ekki ætla ég hér að segja að nær­vera hins gamla refs kvóta­laga­ár­anna hafi haft áhrif á dóms­orðin. En óneit­an­lega var það kynd­ugt að rík­is­lög­maður skyldi ekki víkja fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóra sjáv­ar­út­vegs­mála úr dómnum svo tengdur sem hann var fyrri póli­tískri vinnu í mál­inu,“ segir í færslu Jóns.

Þar segir hann jafn­framt að hann telji að Hæsti­réttur hafi „brugð­ist þjóð­inni í þessu máli og gengið í lið með ein­stökum „kvóta­greifum““. Dómurinn hafi þannig „dæmt gegn þeirri laga­grein sem honum bar fyrst og fremst að horfa til“, þeirri laga­grein sem kveður á um að nytja­stofnar á Íslands­miðum séu sam­eign íslensku þjóð­ar­innar.

„Þessi dómur sýnir fram á hversu and­stæð laga­túlkun getur verið mark­miðum lag­anna og hags­munum þjóð­ar­innar,“ skrifar Jón.

Útvegsmenn hafi talið sig eiga ráðuneytið

Í færsl­unni segir ráð­herr­ann fyrr­ver­andi frá því að er hann gekk inn í sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neytið hafi hann upp­lifað að stjórn­endur LÍU, for­vera SFS, hafi ekki aðeins talið sig „eiga fisk­inn synd­andi í sjónum, heldur tröpp­urnar í ráðu­neyt­inu, stól­ana við fund­ar­borðið“ og jafn­vel líka papp­ír­inn á borð­unum.

Jón segir að það hafi sömu­leiðis verið afstaða „kerf­is­ins“, stjórn­sýsl­unnar, banka og lög­fræði­stofa.

[adspot]

„Fékk hinn nýi ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála óspart að heyra það,“ segir í blogg­færslu Jóns, sem hann seg­ist setja fram í ljósi umræðu síð­ustu daga og vikna. Heitið á pistli Jóns er „Verbúðin - Sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neytið“ og þar ræðir hann meðal ann­ars sam­skipti sín við stór­út­gerðir lands­ins í málum sem varða strand­veiðar, úthafs­rækju og skötu­sel.

ESB-sinnar við ríkisstjórnarborðið hafi viljað gefa eftir makrílinn

Í færslu sinni fjallar Jón einnig um mak­ríl­deilur við Evr­ópu­sam­bandið og segir að þær hafi verið harð­vít­ugar – og að vilji hafi verið til þess hjá þeim innan rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur sem helst vildu ganga í ESB til þess að ganga að öllum kröfum ESB í deilum um mak­ríl­inn, sem tekið hafði að ganga inn í íslenska lög­sögu í miklu magni.[links]

„ESB afneit­aði öllum rétti okkar í þeim efnum og lét afar dólgs­lega, hót­aði ítrekað að stöðva aðild­ar­við­ræð­urnar við ESB ef við hættum ekki mak­ríl­veið­unum. Fætur for­sæt­is­ráð­herra og fleiri í rík­is­stjórn­inni vildu bogna undan þeim hót­unum ESB og gefa mak­ríl­inn eftir. Það verður að segj­ast hér hreint út að hvorki þær útgerðir, sem síðar höfð­uðu mál og kröfð­ust tuga millj­arða í bætur vegna veiði­heim­ilda í mak­ríl, né aðrir, hefðu fengið marga brönd­una ef ESB-aðild­ar­sinnar í rík­is­stjórn­ar­flokk­unum hefðu fengið að ráða. Það er köld stað­reynd,“ skrifar Jón.

Hann segir jafn­framt frá því að hót­anir ESB hafi „vakið það mik­inn ugg að full­trúar LÍÚ komu á fund ráð­herra og báðu hann að slaka á kröf­unum í mak­ríl­deil­unni ef það mætti friða ESB,“ en þá hefði ESB hótað við­skipta­stríði og lönd­un­ar­banni á íslenskan fisk.

Siðlausar bótakröfur og málshöfðanir

Ráð­herr­ann fyrr­ver­andi segir í færslu sinni að hann telji bóta­kröfur þær sem alls sjö útgerðir settu fram á hendur rík­inu vegna mak­ríl­mál­anna og máls­höfð­anir til­tek­inna útgerða vera „gjör­sam­lega sið­lausar“ og að þær hefðu aldrei náð fram að ganga „ef tekið hefði verið af alvöru til varna af lög­gjaf­anum og ráðu­neyt­inu“ eins og hann hefði ætlað.

Alls sjö útgerðir settu fram kröfur um 10,2 millj­arða bætur auk vaxta vegna mak­ríl­máls­ins. Einungis Vinnslu­stöð Vest­manna­eyja og Huginn í Vest­manna­eyjum hafa haldið sínum máls­höfð­unum á hendur rík­inu til streitu.

Eskja, Gjögur, Ísfélag Vest­manna­eyja, Loðnu­vinnslan og Skinney-Þinganes ákváðu að falla frá kröfum sínum um mak­ríl­bæt­urnar eftir að kröfur fyr­ir­tækj­anna voru opin­ber­aðar í apríl árið 2020 og vís­uðu til sam­stöðu vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins í til­kynn­ingu sinni um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár