Sjö útgerðir krefja ríkið um 10,2 milljarða króna auk hæstu mögulegu vaxta

Nokkrar útgerðir sem telja sig hafa verið sviknar um mak­ríl­kvóta vilja að rík­is­sjóður greiði þeim sam­tals 10,2 millj­arða króna í bætur auk vaxta. Hæsta krafan er frá Ísfélagi Vest­manna­eyja, sem vill 3,9 millj­arða króna.

Ísfélag Vestmannaeyja á hæstu kröfuna. Guðbjörg Matthíasdóttir er eigandi Ísfélagsins.
Ísfélag Vest­manna­eyja á hæstu kröf­una. Guðbjörg Matth­í­as­dóttir er eig­andi Ísfé­lags­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sjö útgerðir krefja íslenska ríkið um sam­tals 10,2 millj­arða króna auk hæstu fáan­legu vaxta vegna fjár­­tjóns sem þau telja sig hafa orðið fyrir vegna mak­ríl­kvóta sem fór ekki til þeirra á árunum 2011 til 2018. Útgerð­irnar ákváðu að höfða mál eftir að tveir dómar féllu í Hæsta­rétti í des­em­ber 2018 sem sögðu að ekki hefði verið rétt haldið á úthlutun á mak­ríl­kvóta.

Um er að ræða fyr­ir­tækin Gjög­ur hf., Ísfé­lag Vest­manna­eyja hf., Skinn­ey-­Þinga­nes hf., Loðnu­vinnsl­an hf. og Hug­inn ehf., Eskja hf. og Vinnslu­stöðin hf.

Lang­hæsta krafan er frá Ísfélagi Vest­manna­eyja, sem krefst tæp­lega 3,9 millj­arða króna auk vaxta úr rík­is­sjóði. Stærsti eig­andi Ísfé­lags­ins er Guðbjörg Matth­í­as­dóttir. Félög í eigu Guð­bjargar og fjöl­skyldu hennar eru einnig stærstu eig­endur Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins.

Eskja krefst þess að fá rúm­lega tvo millj­arða króna í bætur, Loðnu­vinnslan og Skinney-Þinganes vilja rúman millj­arð króna og Vinnslu­stöðin í Vest­manna­eyjum krefst þess að fá tæpan millj­arð króna auk vaxta. Huginn vill fá 839 millj­ónir króna og Gjögur, sem er næst stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar (Samherji er stærsti eig­and­inn) krefst 364 millj­óna króna. Í stefnu Gjögurs er einnig kraf­ist bóta vegna kostn­aðar við að leigja afla­heim­ild­ir á ár­un­um 2015 til 2018.

Þetta kemur fram í svari sem Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, birti í dag, um páska­helg­ina, við fyr­ir­spurn Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, for­manns Við­reisnar, um málið.

[adspot]Í fyrra var mak­ríll færður í kvóta á grund­velli veið­i­­­­reynslu þar sem afla­heim­ild­ir, eða kvót­­­ar, voru að mestu færðar til stór­út­­­­­gerða. Ekki var greitt fyrir þann kvóta heldur hann afhentur end­ur­gjalds­laust. Mak­ríl­kvót­inn hefur verið tal­inn vera 65 til 100 millj­­­arða króna virð­i.

Fjölmiðlum meinað um aðgang að sömu upplýsingum

Kjarninn hefur reynt að fá sömu upp­lýs­ingar frá hinu opin­bera frá síð­asta sumri.

Í júní 2019 var fyr­ir­­spurn send á upp­­lýs­inga­­full­­trúa rík­­is­­stjórn­­­ar­innar þar sem óskað var eftir því að fá stefnur útgerð­anna afhentar auk þess sem beðið var um upp­­lýs­ingar um hversu háar kröfur þeirra væru.

Erindið var sent til sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráðu­­neyt­is­ins sem brást ekki við því í á aðra viku. Þegar við­brögð komu fólst í þeim að áfram­­senda erindið á emb­ætti rík­­is­lög­­manns.

Hann taldi rétt að bera það undir lög­­­menn útgerð­anna sem um ræddi hvort þeir myndu sam­­þykkja að upp­­lýs­ingar um málin yrðu veittar og stað­­festi í kjöl­farið við Kjarn­ann að fyr­ir­­spurnir þess efnis hefðu verið sendar á umrædd fyr­ir­tæki.

Síðan barst ekk­ert við­­bót­­ar­svar í rúma fimm mán­uði, eða þar til 20. des­em­ber 2019, þegar rík­is­lög­maður sendi svar þess efn­ist að hann teldi ekki heim­ilt að afhenda stefn­­urn­­ar. Hann hefði óskað eftir afstöðu umræddra fyr­ir­tækja gagn­vart því að fjöl­miðlar myndu fá stefn­­urnar með því að beina spurn­ingum til lög­­­manna þeirra. „Liggur ekki fyrir sam­­þykki stefn­enda um að afhenda stefn­­urnar og verður að skilja afstöðu þeirra í ljósi seinni máls­liðar 9. gr. upp­­lýs­inga­laga nr. 140/2012 og telur emb­ættið því gögnin und­an­þegin upp­­lýs­inga­rétt­i.“

Auk þess sagði í svar­inu að rík­­is­lög­­maður mæti það „óraun­hæft að rýmri aðgangur sé fyrir hendi þótt kröfu um afhend­ingu sé beint að stjórn­­­valdi ef um sömu gögn er að ræða. Gögnin eru því eðli sínu sam­­kvæmt und­an­þegin upp­­lýs­inga­rétt­i.“

Kjarn­inn kærði synjun rík­­is­lög­­manns á aðgengi að umræddum upp­­lýs­ingum til úrskurð­­ar­­nefndar um upp­­lýs­inga­­mál strax í kjöl­far­ið.

Aug­ljósir almanna­hags­munir

Beiðni Kjarn­ans um aðgang að gögn­unum byggði á 5. gr. upp­lýs­inga­laga. Í kærunni sagði að aug­ljósir almanna­hags­munir væru af því að fjöl­miðlar og almenn­ingur fái upp­lýs­ingar um það þegar fyr­ir­tæki stefni rík­inu til greiðslu bóta vegna úthlut­unar á gæðum sem sam­kvæmt fyrstu grein laga um stjórn fisk­veiða séu sam­eign íslensku þjóð­ar­inn­ar. því geti vart stað­ist að tak­marka upp­lýs­inga­rétt vegna einka­hags­muna. Bæði sé sú „eign“ sem sé undir sam­eign þjóð­ar­innar auk þess sem sá stefndi sé íslenska rík­ið, og þar af leið­andi almenn­ing­ur. Réttur þeirra sem stefna til að halda gögnum sem þeir telja einka- og fjár­hags­mál­efni sín geti ekki talist æðri rétti almenn­ings til að vita hvað sé undir í mál­in­u.

[adspot]Í ljósi þess hversu há upp­hæð af almannafé sé undir geti ekki stað­ist að leyna eig­endur þeirrar fjár­hæð­ar, almenn­ing í land­inu, upp­lýs­ingum um mála­vexti.

Sögðu almenn­ing og fjöl­miðla ekki eiga lögvarða hags­muni

Úrskurð­ar­nefndin sendi bréf til þeirra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­ækja sem stefndu rík­inu í lok jan­úar síð­ast­lið­ins og óskaði eftir afstöðu þeirra til afhend­ingar gagn­anna. Í bréfum þeirra sem svör­uðu er í öllum til­vikum lagst gegn því að stefn­urnar yrðu afhent­ar.

Þar er sá tónn sleg­inn að fjöl­mið­ill eða almenn­ingur séu ekki lögvar­inn aðili máls þrátt fyrir að hinn stefndi sé íslenska rík­ið. Í einu svar­bréf­inu sagði meðal ann­ars að málið væri „venju­legt einka­mál sam­kvæmt lögum um með­ferð einka­mála, þótt stefndi sé opin­ber aðili. Umrædd stefna stafi ekki frá stjórn­valdi og sé ekki þáttur í með­ferð stjórn­sýslu­máls heldur dóms­máls, þó það sé á könnu rík­is­lög­manns. Kær­andi hafi ekki sýnt fram á að hafa neinna sér­stakra lögvar­inna hags­muna að gæta í dóms­mál­in­u.“

Kærandi gæti ein­fald­lega fengið þær upp­lýs­ingar sem hann sækt­ist eftir þegar dómur hefði verið birtur opin­ber­lega eftir dóms­upp­kvaðn­ingu.

Þá var því haldið fram að í stefn­unum kæmu fram marg­vís­legar fjár­hags­legar og rekstr­ar­legar upp­lýs­ingar um starf­semi fyr­ir­tækj­anna, umfram þær sem lesa megi úr árs­reikn­ingum frá þeim árum sem fjallað sé um í mál­inu.

Úrskurð­ar­nefndin hafn­aði þessum mála­til­bún­aði og komst að þeirri nið­ur­stöðu að hags­munir almenn­ings af aðgangi að upp­lýs­ingum um mála­til­búnað einka­að­ila á hendur íslenska rík­inu veg­iþyngra en hags­munir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna af því að þær fari leynt.

Kjarn­inn fór fram á það síð­degis á fimmtu­dag, 2. apr­íl, við emb­ætti rík­is­lög­manns, að fá stefn­urnar afhent­ar. Þrátt fyrir ítrek­anir á þeirri beiðni hafa þær ekki feng­ist.

Nú hefur svar við hluta af fyr­ir­spurn Kjarnans verið birt á vef Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár