Agnieszka segir að Sólveig Anna muni einangra Eflingu verði hún formaður á ný

Starf­andi for­maður Eflingar, sem bauð fram með Sólveigu Önnu Jóns­dóttur árið 2018, segir að Sólveig sé ekki rétta mann­eskjan til að leiða stétt­ar­fé­lagið áfram og að hún sé orðin „málsvari sundr­ungar“.

Agnieszka Ewa Ziólkowska, starfandi formaður Eflingar, býður sig fram til stjórnar Eflingar á A-listanum, sem Ólöf Helga Adolfsdóttir leiðir.
Agnieszka Ewa Ziólkowska, starf­andi for­maður Eflingar, býður sig fram til stjórnar Eflingar á A-list­anum, sem Ólöf Helga Adolfs­dóttir leiðir. Mynd: Bára Huld Beck

Agnieszka Ewa Ziółkowska, sem verið hefur starf­andi for­maður Eflingar frá því að Sólveig Anna Jóns­dóttir lét af emb­ætti for­manns í lok októ­ber­mán­aðar, gagn­rýnir Sólveigu Önnu harð­lega í grein sem birt­ist á Vísi í dag á þremur tungu­málum.

Hún segir segir að það hafi þurft að hrista upp í verka­lýðs­hreyf­ing­unni, það hafi Sólveig Anna gert og fyrir það sé hún þakk­lát. „Sólveig Anna er hins vegar ekki rétta mann­eskjan til að leiða bar­átt­una áfram og hefur sýnt það með óbil­girni og van­getu til að hlusta á raddir ann­arra en sína eigin,“ segir í grein Agnieszku.

Hún hvetur fólk til þess að lýsa yfir stuðn­ingi við A-lista Eflingar, sem Ólöf Helga Adolfs­dóttir leiðir í for­manns- og stjórn­ar­kjöri stétt­ar­fé­lags­ins, sem hefst á morgun.

Sólveig sjálf sé „orðin málsvari sundrungar“

Agnieszka segir í grein sinni að það sé bar­áttu­hugur til staðar í hreyf­ing­unni, en að Sólveig sjálf sé „orðin málsvari sundr­ungar“ og að með hana sem for­mann að nýju muni Efling ein­angr­ast.

„Reyna mun á styrk verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í náinni fram­tíð til að takast á við þau mik­il­vægu og stóru verk­efni sem eru framundan. Sundrung verka­lýðs­for­yst­unnar eins og stefnir í ef Sólveig verður í for­ystu Eflingar, mun veikja stöðu félags­manna okkar og alls verka­fólks á land­inu og með henni mun Efling ein­angr­ast. Verkefni verka­lýðs­for­yst­unnar framundan eru of mik­il­væg til að við getum við með sundraða verka­lýðs­hreyf­ingu og for­mann sem ekki hlustar á gagn­rýni,“ segir í grein Agnieszku.

Sólveig Anna sagði starfsfólk annarra ASÍ-félaga ætla að álykta gegn sér

Sólveig Anna birti langa færslu á Facebook í gær­kvöldi, sem hún lýsti því meðal ann­ars að í kosn­ing­unum í Eflingu árið 2018 þar sem hún og B-listi hennar hafði betur, hefði henni borist til eyrna að starfs­fólk Eflingar væri „með grófum hætti að stunda áróður á kjör­stað.“ Í færslu hennar segir að henni hafi svo fljót­lega eftir að hún hóf störf sem for­maður Eflingar hafa áttað sig á því að á skrif­stofu Eflingar væru „mann­eskjur sem af ýmsum ástæðum ætl­uðu sér aldrei að vinna með mér, ætl­uðu sér aldrei að sýna mér virð­ingu, hvorki per­sónu­lega eða vegna stöðu minnar sem for­manns Eflingar.“

Hún segir þennan hóp fólks hafa leikið þann leik í aðdrag­anda fyrsta ASÍ þings­ins sem Sólveig og félagar hennar hafi mætt á að „senda rógs-bréf á um það bil 40 manna hóp valda­fólks innan ASÍ til að mála upp þá mynd af mér að ég væri ein­hvers­konar glæpa­kona“ og að þetta hafi svo aftur verið gert í aðdrag­anda þings Starfs­greina­sam­bands­ins.

Í færslu sinni sagði hún svo frá því að ástæðan fyrir því að hún væri að rifja þetta upp væri sú að hún hefði heyrt af því að í dag ætti að „halda sér­stakan fund starfs­fólks þeirra félaga sem eiga aðild að ASÍ“ og að til­gangur fund­ar­ins væri að „sam­þykkja og senda frá sér ályktun til stuðn­ings starfs­fólki skrif­stofu Eflingar, og gegn mér og fram­boði Bar­áttu­list­ans til stjórnar félags­ins.“

[adspot]

„Nú get ég auð­vitað ekki full­yrt að þau sem und­ir­búa að senda ályktun frá stórum hópi starfs­fólks félaga innan ASÍ skilji hversu gróf­lega þau eru með þessu að blanda sér í lýð­ræð­is­legar kosn­ingar Efl­ing­ar­fólks um það hver stýrir félag­inu. En ég held að þau geri það. Ég held að til þess sé leik­ur­inn gerður. Til að reyna með öllum ráðum að koma í veg fyrir að ég og félagar mínir á Bar­áttu­list­anum getum sigrað.

Atvinnu­rek­endur vilja ekki deila völdum með vinnu­afl­inu. Valda­stéttin vill ekki deila völdum með vinnu­afl­inu. Og stað­reyndin, sú sem verður æ aug­ljós­ari, er að þau sem telja sig rétt­mæta eig­endur verka­lýðs­fé­lag­anna okkar, þau sem vinna innan skrif­stofu­virk­is­ins, þau vilja það ekki heldur. Þeim finnst það ein­fald­lega frá­leitt. Þau eiga hreyf­ing­una, þau eiga ASÍ og þau ætla að ráða. Þau sjá ein­fald­lega ekk­ert athuga­vert við reyna að hafa áhrif á það hver stýrir Eflingu. Þeim finnst ekki nóg komið af ofstæk­is­fullum árásum og nafn­lausum róg­burði. Nei, það verður að halda áfram að kynda bálið,“ segir sömu­leiðis, í færslu Sól­veigar Önnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár