Stjórnvöld hafi tekið meðvitaða ákvörðun um að koma ekki í veg fyrir brot á starfsmönnum

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gerði nýlega nið­ur­stöðu Félags­dóms í ágrein­ingi Flug­freyju­fé­lags Íslands og Samtaka atvinnu­lífs­ins að umtals­efni á þing­inu í vik­unni. For­sæt­is­ráð­herra sagði að dóm­ur­inn yrði tek­inn alvar­lega.

Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar
Oddný Harð­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar Mynd: Bára Huld Beck

Oddný Harð­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra hvað henni fynd­ist um nið­ur­stöðu Félags­dóms í máli Flug­freyju­fé­lags Íslands gegn Icelandair í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í vik­unni. Hún spurði meðal ann­ars hvernig Katrín teldi að bregð­ast ætti við nið­ur­stöð­unni og hvernig rík­is­stjórnin ætl­aði að axla ábyrgð í þessu máli. Ráðherra svar­aði og sagði að taka þyrfti málið alvar­lega og draga lær­dóm af nið­ur­stöð­unni.

RÚV greindi frá mál­inu í vik­unni en það sner­ist um það hvort starfs­aldur ætti að ráða þegar Icelandair end­ur­réði flug­freyjur sem sagt var upp starfi fyrir tveimur árum. ASÍ höfð­aði mál fyrir Félags­dómi gegn Samtökum atvinnu­lífs­ins. Icelandair sagði upp um 95 pró­sent flug­freyja meðan á kjara­við­ræðum stóð. Eftir að þær kol­felldu kjara­samn­ing var talað um að ráða fólk úr öðru stétt­ar­fé­lagi. Samkvæmt dómi Félags­dóms bar Icelandair að fara eftir starfs­aldri þegar félagið aft­ur­kall­aði upp­sagnir flug­freyja og flug­þjóna sem kynntar voru í fyrra­sumar. Icelandair var gert að greiða ASÍ fyrir hönd Flug­freyju­fé­lags­ins 800 þús­und krónur í máls­kostnað.

Fram kemur í frétt RÚV að gerð hafi verið sú eðli­lega krafa að Icelandair, sem hafði þegið stuðn­ing rík­is­ins við að segja fólki upp, réði starfs­fólkið inn aftur í starfs­ald­urs­röð þegar starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins leyfði. Icelandair hafði ekki gert það heldur valið úr hópnum eftir eigin geð­þótta. Nið­ur­staða Félags­dóms var skýr varð­andi það að Icelandair hefði borið að fara eftir starfs­aldri þegar félagið aft­ur­kall­aði upp­sagnir flug­freyja og flug­þjóna.

Ráðherrum hefði verið ljós gallinn í uppsagnarleiðinni

Oddný sagði í fyr­ir­spurn sinni að við afgreiðslu upp­sagn­ar­leið­ar­innar vorið 2020 hefði hún lagt fram breyt­ing­ar­til­lögu um að skýrt yrði kveðið á um það í lög­unum að end­ur­ráðn­ing skyldi verða í starfs­ald­urs­röð.

„Sú til­laga var felld. Reyndar voru það aðeins þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar sem greiddu henni atkvæði ásamt einum hátt­virtum þing­manni utan flokka. Milli umræðna um málið hafði for­seti ASÍ sent öllum þing­mönnum bréf um mik­il­vægi þess að slík til­laga yrði sam­þykkt. Stjórn­ar­þing­mönnum og ráð­herrum í rík­is­stjórn­inni var því alveg ljóst hver gall­inn var á frum­varp­inu en höfn­uðu til­lög­unni og gáfu með því skýr skila­boð til fyr­ir­tækja og Samtaka atvinnu­lífs­ins um að starfs­aldur skipti ekki máli við end­ur­ráðn­ingu. Brotið var á starfs­mönnum og stjórn­völd tóku með­vit­aða ákvörðun um að koma ekki í veg fyrir það.“

Spurði hún í fram­hald­inu Katrínu hvernig hún teldi að bregð­ast ætti við nið­ur­stöðu Félags­dóms og hvernig rík­is­stjórnin ætl­aði að axla ábyrgð í þessu máli.

„Slíka dóma á að taka alvarlega af hálfu stjórnvalda“

Katrín svar­aði og sagði að það væri mjög mik­il­vægt að rík­is­stjórnin og ráð­herra vinnu­mark­aðs­mála tæki nið­ur­stöð­una nú til skoð­unar því að þetta væri það fyr­ir­komu­lag sem Íslend­ingar hefðu á vinnu­mark­aði til að leysa ágrein­ings­mál. Nið­ur­staðan væri algjör­lega skýr.

„Hátt­virtur þing­maður spyr: Hver verða við­brögðin? Þessi dómur er tek­inn alvar­lega og hann mun verða okkur lær­dómur í fram­hald­inu. Það er í raun og veru það skýrasta sem ég get sagt um þetta. Ég vil líka segja það skýrt að slíka dóma á að taka alvar­lega af hálfu stjórn­valda þegar kemur að fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lagi, til að mynda laga­breyt­ingum og öðru,“ sagði ráð­herr­ann.

Fyrirtækja sem njóta ríkisaðstoðar ættu að sýna samfélagslega ábyrgð

Oddný kom aftur í pontu og sagði að mark­miðið með upp­sagna­leið­inni hefði verið að koma í veg fyrir gjald­þrot fyr­ir­tækja en ekki að skerða rétt­indi launa­fólks.

„Tillaga okkar í Sam­fylk­ing­unni, um að koma í veg fyrir að það gerð­ist, var felld af hæst­virtum for­sæt­is­ráð­herra, fleiri ráð­herrum og stjórn­ar­þing­mönnum sem sendu með því skila­boð um vilja sinn í mál­inu. Það er stað­reynd máls­ins og stjórn­völd verða að axla ábyrgð á því. Ríkið greiddi út rúma 12 millj­arða króna til fyr­ir­tækja til að aðstoða þau við að segja upp fólki. Það voru auð­vitað fleiri fyr­ir­tæki en Icelandair.“

Spurði hún Katrínu hvort hún myndi beita sér fyrir því að greint yrði frá því hvernig staðið væri að end­ur­ráðn­ingum hjá öðrum fyr­ir­tækjum sem fengu rík­is­styrk­inn og hvort hún teldi ekki að stjórn­völd ættu að gera ský­lausa kröfu til fyr­ir­tækja sem njóta rík­is­að­stoðar um að þau sýndu sam­fé­lags­lega ábyrgð og virtu rétt launa­fólks.

Ætlar ekki að lýsa neinu yfir því hún hefði ekki farið yfir dóminn

Katrín svar­aði í annað sinn og benti að þessi dómur ætti sér­stak­lega við um flug­freyjur.

„Ég veit að í þeirra samn­ingum eru sér­stök ákvæði sem tengj­ast starfs­aldri þannig að það er auð­vitað eitt­hvað sem við þurfum að skoða. Um það hvort dómur Félags­dóms – og ég ætla bara að segja það hér að ég er ekki búin að rýna hann nákvæm­lega – hafi for­dæm­is­gildi hvað varðar aðra geira vinnu­mark­að­ar­ins ætla ég ekki að lýsa neinu yfir því að ég hef ekki farið yfir dóm­inn. Ég vænti þess að vinnu­mark­aðs­ráð­herra hafi gert það. En ég ítreka það sem ég sagði að við eigum að taka þennan dóm alvar­lega og draga af honum lær­dóm.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár