Vinnur að heimildarmynd um baráttumanninn Hauk Hilmarsson

Leik­stjóri heim­ild­ar­myndar um bar­áttu­mann­inn Hauk Hilm­ars­son seg­ist hafa ráð­ist í hóp­fjár­mögnun á verk­inu vegna þess að hann sé ekki til­bú­inn að sam­þykkja neina rit­skoðun vegna útgáfu þess. Margt sem komi fram í mynd­inni sé umdeilt.

Jón Grétar Sig­ríð­ar­son er kvik­mynda­gerð­ar­maður sem farið hefur lítið fyrir síðan hann útskrif­að­ist úr Kvik­mynda­skóla Íslands. Hann vinnur að heim­ild­ar­mynd í fullri lengd og fjallar um Hauk Hilm­ars­son og safnar fyrir gerð hennar á Karolina Fund.

Haukur var þekktur á Íslandi sem bar­áttu­maður fyrir rétt­indum hæl­is­leit­enda og sem ástríðu­fullur and­stæð­ingur fas­isma. Haukur er tal­inn hafa fallið í Sýrlandi í febr­úar árið 2018 þar sem að hann var að berj­ast fyrir Kúrda.

Stefnt er á að hefja tökur í júní 2022 og ljúka þeim í ágúst sama ár. Áætlað er að myndin verði til­bú­inn í nóv­em­ber 2022 en myndin verður ein­göngu aðgengi­leg þeim sem styrktu söfn­un­ina á Karolina Fund fyrstu þrjá mán­uð­ina frá útkomu.

Jón Grétar segir að hug­myndin að verk­efn­inu hafi kviknað þegar hann gerði skóla­verk­efni hausti 2014. „Ég setti saman lista af fólki sem hafði haft mest áhrif á mig í líf­inu án þess að vera tengd mér fjöl­skyldu­böndum og var Haukur efstur á þeim lista. Eftir það var ekki aftur snúið og það kom ekk­ert annað til greina hjá mér en að gera stutta mynd um Hauk. Haukur hafði engan áhuga á því að vera mynd­aður eða að ég myndi gera ein­hvers­konar stutta mynd um hann í fyrstu en ein­hvern veg­inn náði ég að sann­færa hann um að gera þetta með mér. Við tókum þá ákvörðun mjög snemma að reyna að gera eitt­hvað meira en úr þessum tökum. Hauki fannst það áhuga­verð hug­mynd að gera mynd sem fylgdi honum eftir og spann­aði ein­hverja ára­tugi.“

[adspot]Hann segir erfitt að það hafi verið erfitt fyrir sig að gera þessa mynd um Hauk. „Ég byrj­aði ekki að alvöru fyrr en rúmi ári eftir frétt­irnar af frá­falli Hauks. Það er ekki síðan fyrr síð­asta sumar sem að ég loks­ins tókst að klára hand­ritið af mynd­inni. Þetta er mynd sem að mun svara fullt af ósvöruðum spurn­ingum um Hauk. Þrátt fyrir að ég hafi tekið upp við­tölin við hann rúm­lega þremur árum áður en hann hverfur í Sýrlandi að þá kemur það skýrt fram frá honum sjálfum af hverju hann fet­aði þennan far­veg og hvað það var sem brann innra með honum.“

Að sögn Jóns Grétars er helst ástæða þess að hann vill hóp­fjár­magna verk­efnið sú að hann er ekki til­bú­inn að sam­þykkja neina rit­skoðun þegar að kemur af því að gefa út þetta verk. „Haukur var alltaf gríð­ar­lega umdeildur og margt af því sem mun koma fram í mynd­inni er umdeilt. Ég hef þegar lagt allt sem ég get undir til þess að gera þessa mynd. Mér þykir gríð­ar­lega vænt um Hauk og myndin mun verða minn­is­varði frá mér til Hauks.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár