Barokkbandið Brák safnar fyrir útgáfu plötu sem skilur eftir sig menningarleg verðmæti

Ný hljóm­plata Barokk­bands­ins Brákar nefn­ist Tvær hliðar/ Two Sides og verður tvö­föld. Hljóm­sveitin safnar nú fyrir upp­tökum og útgáfu hennar á Karolina Fund og áætlar að platan komi út í lok árs 2021.

Barokk­bandið Brák er tón­list­ar­hópur sem fiðlu­leik­ar­arnir Elfa Rún, Laufey og Guðbjörg Hlín stofn­uðu fyrir sex árum með það að leið­ar­ljósi að glæða lífi í barokktón­list flutta á upp­runa­leg hljóð­færi á Íslandi. Frá stofnun hóps­ins hefur hann staðið að fjölda tón­leika í Reykja­vík og Skál­holti við góðar und­ir­tektir áheyr­enda og gagn­rýnenda. Hópurinn hefur einnig beint kröftum sínum að flutn­ingi nýrrar íslenskrar tón­listar á barokk­hljóð­færi í sam­starfi við íslensk sam­tímatón­skáld. Mik­il­vægur þráður í starfi Brákar hefur svo verið að leyfa nýrri kyn­slóð hljóð­færa­leik­ara að kynn­ast svo­kall­aðri upp­runa­spila­mennsku (e. Historical Performance Practice) og þeirri ein­stöku orku og ótal túlk­un­ar­mögu­leikum sem upp­runa­spila­mennska hefur fram að færa. Í því sam­starfi hefur auk­ist við flóru og fjöl­breytni íslensks tón­list­ar­lífs.

Hug­myndin að plöt­unni Tvær hliðar/ Two Sides kvikn­aði hjá for­sprökkum Brákar haustið 2019. Þeim fannst kom­inn tími til, eftir marga vel heppn­aða tón­leika að skjal­festa starf sitt með því að ráð­ast í útgáfu á hljóm­plötu. „Við í Brák ætlum að hljóð­rita okkar fyrstu hljóm­plötu nú í lok mars. Hún nefn­ist Tvær hliðar/ Two Sides og end­ur­speglar vel starf okkar sem tón­list­ar­hópur í gegnum tíð­ina. Á henni verða fram­reiddar tvær hliðar sígildrar tón­listar, þ.e. barokktón­list og íslensk sam­tímatón­list. Barokk­disk­ur­inn mun inni­halda þekkt verk sem við höfum áður flutt á tón­leikum, meðal ann­ars eftir Vivaldi og Corelli, en einnig lítið þekkt verk sem hafa aldrei verið spiluð inn á geisla­disk áður!

[adspot]Disk­ur­inn með íslensku verk­unum mun inni­halda 3 glæný verk eftir tón­skáldin Kristinn Smára Krist­ins­son, Bergrúnu Snæ­björns­dóttur og Þráin Hjálm­ars­son sem við munum frum­flytja á tón­leikum í Hörpu þann 28. mars næst­kom­andi. Þá verða einnig hljóð­rituð íslensk verk sem hafa verið samin sér­stak­lega fyrir Barokk­bandið Brák á síð­ast­liðnum árum.“

Brák-hóp­ur­inn segir að tón­list gefin út á geisla­diski og á streym­isveitum gefur sér tæki­færi á að ná til stærri áheyr­enda­hóps og koma íslenskri tón­sköpun, sér­þekk­ingu í upp­runa­spila­mennsku og hljóm­sveit­inni sjálfri á fram­færi en síð­ast en ekki síst skilji hún eftir sig menn­ing­ar­leg verð­mæti fyrir hlust­endur og alla sem að upp­tök­unum koma. „Þá von­umst við til að með efn­is­legri útgáfu á geisla­disk verði til dýr­mæt heim­ild um þá grósku og sköpun sem á sér stað um þessar mundir í íslensku tón­list­ar­lífi.“

Allir með­limir Brákar eru þraut­reyndir tón­list­ar­menn. Elfa Rún er búsett í Berlín og er marg­verð­laun­aður fiðlu­leik­ari sem hefur komið fram á tón­leika­sviðum um heim allan ýmist sem ein­leik­ari, konsert­meist­ari eða kamm­ermús­ík­spil­ari. Hún leikur reglu­lega með Akademie für Alte Musik Berlin og lista­hópnum Nico and the Navigators. Hún hefur gefið út þónokkra geisla­diska á síð­ast­liðnum árum sem hafa verið til­nefndir og unnið til verð­launa hjá Preis der deutschen Schallplattenkritik og á Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum.

Laufey hefur verið fast­ráðin við Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands frá árinu 2019 og kemur reglu­lega fram á tónsvið­inu sem ein­leik­ari, hljóm­sveit­ar­spil­ari og kamm­ermús­sí­k­ant. Einnig hefur hún leikið inn á fjölda hljóð­rit­ana á sígildri og dæg­ur­lagatón­list síð­ustu ár.

Guðbjörg Hlín hefur lagt stund á upp­runa­flutn­ing á barokktón­list í námi erlendis. Guðbjörg er einnig með­limur í hljóm­sveit­inni Umbru sem flytur og útsetur mið­aldatón­list og þjóð­lagatón­list. Guðbjörg hefur auk þess ferð­ast um heim allan og flutt og popptón­list með hinum ýmsu hljóm­sveitum.

Þær þrjár leika allar á fiðlu með Brák en auk þeirra ​koma fram á plöt­unni, fiðlu­leik­ar­arnir Gróa Margrét Valdi­mars­dóttir, Gunn­hildur Daða­dóttir, Guð­bjartur Hákon­ar­son og Sólveig Vaka Eyþórs­dóttir, víólu­leik­ar­arnir Guðrún Hrund Harð­ar­dóttir og Þóra Margrét Sveins­dóttir, selló­leik­ar­arnir Steinunn Arnbjörg Stef­áns­dóttir og Guðný Jón­as­dóttir, bassa­leik­ar­inn Richard Korn og semb­al­leik­ar­inn Halldór Bjarki Arnarson

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár