Söngkona sem stendur á sextugu segir aldrei of seint að láta drauma sína rætast

Ljóð­línur kveiktu lag­línur hjá Krist­jönu Arn­gríms­dóttur. Hún safnar fyrir útgáfu plötu á Karolina Fund.

Söng­konan Krist­jana Arn­gríms­dóttir er um þessar stundir að vinna að sinni fimmtu plötu. Að þessu sinni stígur hún fram sem laga­smiður og er þetta fyrsta frum­samda plata hennar. Lögin eru samin við ljóð ýmissa skálda sem eru að mestu leyti konur. Platan er unnin í sam­starfi við tón­list­ar­mann­inn Örn Eldjárn, sem er jafn­framt sonur Krist­jönu. Hann sér um útsetn­ingar, hljóð­færa­leik, hljóð­færa­skipan og upp­tökur.

Krist­jana segir að hug­myndin að verk­efn­inu hafi sprottið upp úr unun hennar af því að lesa ljóð. „Oft kvikn­uðu lag­línur út frá þeim. Ég fór að taka þessar lag­línur saman og sá þá að ég var komin með ágætis safn laga. Ég söng lögin fyrir son minn, Örn Eldjárn og hann fór að flétta hljóma­vef í kringum þau. Úr varð að við fluttum þessi lög á tón­leika­röð okkar, sem nefn­ist Gestaboð Krist­jönu, ásamt vini mínum og sam­starfs­manni til margra ára, Jóni Rafns­syni, og þá lá beint við að gefa þessi lög út á plötu.“

[adspot]Hún segir að text­arnir séu ljóð sem segi sögur. „Ástin, þráin og nátt­úran leika þar stórt hlut­verk. Ljóðin eru að stærstum hluta eftir skáld­konur og má þar nefna Jakobínu Sig­urð­ar­dóttur, Elísa­betu Geir­munds­dóttur (lista­konan í fjör­unni), Lenu Gunn­laugs­dóttur og Höllu Eyj­ólfs­dóttur. Davíð Stef­áns­son fékk að fljóta með í kvenna­fans­inn. Ég á svo líka tvo texta.“

Krist­jönu hlakkar til að fá að deila lög­unum með Íslend­ingum og ekki síður þeim fal­legu ljóðum sem höfðu mikil áhrif á hana. „Ég er nú þegar búin að gefa út fyrsta lagið, sem nefn­ist Konan með sjalið og hægt að nálg­ast það á öllum helstu streym­isveitum. Það er spenn­andi að stíga fram sem laga­höf­undur eftir að hafa sungið lög eftir aðra í 35 ár. Þar sem ég stend á sex­tugu vil ég sýna að það er aldrei of seint að láta drauma sína verða að veru­leika.“

Krist­jana þakkar Hljóð­rita­sjóði Rannís fyrir sinn stuðn­ing við gerð plöt­unnar. „Þá vil þakka Karolina Fund fyrir að búa til vett­vang, og fólk­inu sem hefur nú þegar styrkt mig í gegnum sjóð­inn. Það er ómet­an­legt, sér­stak­lega á við­sjár­verðum tímum sem þessum.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár