Allar útisundlaugar landsins myndaðar með dróna

Bók með myndum af öllum útisund­laugum lands­ins er í bígerð. Safnað er fyrir útgáf­unni á Karolina Fund.

Bragi Þór Jós­efs­son er ljós­mynd­ari og hefur starfað sem slíkur í um 30 ár. Á síð­asta ári hóf hann að mynda útisund­laugar úr lofti með dróna sér til gam­ans. Í byrjun mynd­aði hann laugar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en síðan, þegar hann sá fram á minni umsvif vegna Covid, ákvað hann að mynda allar útisund­laugar á land­inu með sama hætti. Bók er í bígerð með afrakstr­inum og sett hefur verið upp söfn­un­ar­síðu á Karolina Fund til að safna fyrir útgáfu­kostn­aði.

Bragi segir að sumir segi að í íslenskum sund­laugum megi finna þjóð­ar­sál okkar íslend­inga. „Þar förum við til að rækta lík­ama og sál, hvort heldur með góðum sund­sprett eða heitum umræðum um póli­tík í heitu pott­unum. Þegar Covid veiran skall á snemma árs 2020 var öllum sund­laugum hins vegar lokað og þær sátu auðar með vatnið engum til gagns. Þá sá ég tæki­færi til að mynda þær úr lofti með dróna sem ég hafði hugsað um í nokkurn tíma að gæti verið gaman að gera eftir að ég mynd­aði sund­laug­ina í Vest­manna­eyjum með þeim hætti fyrir hálf­gerða slysni. Með því að mynda beint ofan á þær úr tölu­verðri hæð var hægt að breyta þeim í eins­konar mynd­ræna stúdíu með liti og form.“

[adspot]Til að byrja með mynd­aði hann sund­laug­arnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með þessum hætti og sann­færð­ist fljótt um að þetta verk­efni gæti orðið skemmti­legt. Því ákvað ég að mynda allar útisund­laugar á land­inu með þessum hætti. Afrakst­ur­inn von­ast ég til að gefa út í bók í haust og sem ég von­ast eftir að fá stuðn­ing til að gera.“

Að mati Braga sjást breyt­ingar á högum þjóð­ar­innar glöggt þegar sund­laug­arnar eru séðar úr lofti. „Elstu laug­arnar, byggðar fyrir miðja síð­ustu öld, eru lítið annað en stórt kar með vatni enda til­gang­ur­inn einkum að nota þær til sund­kennslu og sund­iðk­unar sem heilsu­rækt. Nýrri laugar, reistar frá miðri síð­ustu öld fram til alda­móta, bættu flestar við heitum pottum til slök­unar og dægra­stytt­ingar og þar varð til félags­legur vett­vangur til dag­legra skoð­ana­skipta undir beru lofti sem jafn­að­ist á við kaffihúsamenn­ingu Parísar og breska kráarmenn­ingu. Í nýj­ustu laug­unum hafa svo lit­ríkar renni­brautir fyrir ung­viðið bæst við og laug­arnar orðnar eins og einn alls­herj­ar­skemmti­garður þar sem allir ald­urs­hópar geta fengið eitt­hvað við sitt hæfi.“

Í bók­inni verður birt ein mynd af hverri sund­laug, allar teknar á sama hátt, með dróna í tölu­verði hæð og beint niður.

Bókin er hugsuð sem ljós­mynda­bók og áherslan því fyrst og fremst á hinum mynd­rænu formum hverrar laugar fyrir sig en hún getur líka gagn­ast sem eins­konar yfir­lits­rit yfir allar útisund­laugar á Íslandi en slíkt rit er ekki til, svo Bragi viti til.

Hægt er að styðja við verk­efnið á Karolina Fund hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár