Skíðað með heimamönnum ... á YouTube

For­fall­inn fjalla­skíða­maður ætlar að gera skíða­þætti með topp skíða- og bretta­fólki og sýna þá á YouTube. Hann safnar nú fyrir fyrsta þætt­inum á Karolina Fund.

Smári Stefánsson
Smári Stef­áns­son Mynd: aðsend

Smári Stef­áns­son er for­fall­inn fjalla­skíða­maður, hann hefur verið á skíðum frá því hann man eftir sér en hefur verið á fjalla­skíðum síðan 2004 en hann kynnt­ist þeim þegar hann var við nám í Noregi.Smári veit fátt betra en að standa efst í krefj­andi skíða­leið með smá adrena­lín í æðunum og klár í slag­inn. Nú hefur hann ákveðið að búa til fjalla­skíða­þætti fyrir YouTube og hafið söfnun á Karolina Fund fyrir pilot þætti.Smári hefur einnig búið til síðu á Facebook þar sem hægt er að fylgj­ast með verk­efn­inu.

Hann segir hug­mynd­ina að verk­efn­inu hafa vaknað þegar hann var að fylgj­ast með öðru verk­efni á YouTube sem nefn­ist The Fifty Project. „Mig lang­aði að gera eitt­hvað svipað hér heima. Eftir að hafa gengið með hug­mynd­ina í mag­anum í nokkurn tíma og hún þró­ast og þroskast ákvað ég að kýla á þetta núna.“
[adspot]Verk­efnið snýst um að Smári fer í mis­mun­andi lands­hluta og skíðar með heima­fólki. „Skíða­leið­irnar verða gjarnan krefj­andi leiðir sem ekki fá margar heim­sóknir og í ein­hverjum til­fellum verður um frum­ferðir að ræða. Það er því mik­il­vægt að fólkið sem mun skíða með mér, heima­fólkið, séu öfl­ugir skíðarar sem ráða við að skíða við krefj­andi aðstæður. Í þátt­unum munum við sýna frá und­ir­bún­ingnum fyrir ferð, spjall­inu á leið­inni upp og svo að sjálf­sögðu flott til­þrif á leið­inni niður. Þetta verður s.s. ekki bara skemmtun heldur verður mögu­legt að pikka upp ein­hvern fróð­leik um ákvarð­ana­töku m.t.t. aðstæðna o.fl.“


Hann seg­ist vera kom­inn í sam­bandi við fólk í mis­mun­andi lands­hlutum, topp skíða- og bretta­fólk, til að skíða með og að allir hafi tekið vel í að taka þátt. „Ég vil hins vegar ekki gefa upp nein nöfn eins og staðan er þar sem enn er alls óvíst hvar fyrsti þáttur verður tek­inn upp, það mun fara eftir aðstæðum. Eins eigum við eftir að sjá hversum marga þætti við munum hafa bol­magn til að gera. Það er samt gaman að segja frá því að ég er kom­inn með mann sem mun sjá um upp­tökur og alla mynd­vinnslu, sá heitir Norris Niman. Norris er ekki bara frá­bær á mynda­vél­inni heldur er hann einnig góður skíða­maður sem er nauð­syn­legt fyrir svona verk­efni. Að hafa Norris með þýðir ein­fald­lega að ég og „heima­menn­irnir“ munum líta vel út á skjánum.“

Hér er hægt að taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið undanfarið ár