Rúmur fjórðungur íbúa á Stöðvarfirði leggst gegn fyrirhuguðu laxeldi

Mat­væla­stofnun fékk á dög­unum sendar und­ir­skriftir um 50 íbúa á Stöðv­ar­firði sem mót­mæla því að Fiskeldi Aust­fjarða fái útgefið rekstr­ar­leyfi fyrir 7.000 tonna lax­eldi í firð­inum. Íbúar eru efins um að mörg störf verði til á Stöðv­ar­firði vegna eld­is­ins.

Í samfélaginu á Stöðvarfirði eru ekki allir sáttir með fyrirhugaða útgáfu rekstarleyfis til laxeldis gegnt bæjarstæðinu.
Í sam­fé­lag­inu á Stöðv­ar­firði eru ekki allir sáttir með fyr­ir­hug­aða útgáfu rekst­ar­leyfis til lax­eldis gegnt bæj­ar­stæð­inu. Mynd: Visit Austurland

Um fimm­tíu íbúar á Stöðv­ar­firði rit­uðu fyrir skemmstu nafn sitt á und­ir­skrifta­lista gegn útgáfu rekstr­ar­leyfis til Laxeldis Aust­fjarða, sem hyggst setja á fót 7.000 tonna lax­eldi í firð­inum. Innan við tvö hund­ruð manns búa í þorp­inu, sem er hluti sveit­ar­fé­lags­ins Fjarða­byggðar, og er því rúmur fjórð­ungur íbúa gegn áformunum.

Ungur maður á Stöðv­ar­firði, Þórir Snær Sig­urðs­son, tók að sér safna und­ir­skriftum íbúa saman og koma þeim á Mat­væla­stofnun í síð­ustu viku, en til­laga stofn­un­ar­innar að rekstr­ar­leyfi fyrir eldið var birt í upp­hafi nóv­em­ber­mán­aðar.

Sjónmengun og önnur mengun fyrir fá störf í bænum

Þórir Snær segir við Kjarnann að hann telji málið koma öllum bæj­ar­búum við. Það sem hann og margir aðrir finna helst að áformunum er það að útsýni yfir fjörð­inn spillist með til­komu sjó­kví­anna, sem áætlað er að verði beint á móti bæj­ar­stæð­inu. Stöðv­ar­fjörður er fremur grunnur og ekki er fýsi­legt vegna öldu­gangs og strauma að fara með lax­eldið utar í fjörð­inn, fjær bænum.

Þetta gæti dregið úr aðdrátt­ar­afli Stöðv­ar­fjarðar, segir Þórir. Hann nefnir sér­stak­lega að mikið líf hafi verið í Sköp­un­ar­mið­stöð­inni í gamla frysti­húsi bæj­ar­ins og hluti af aðdrátt­ar­afli þess staðar og „biss­nessnum“ þar sé að leigja út vinnu­að­stöðu, jafn­vel með útsýni yfir fjörð­inn.

Einnig segir hann að störfin sem skap­ist á Stöðv­ar­firði verði ekki mörg, að minnsta ekki nándar nærri nógu mörg til þess að ásýnd fjarð­ar­ins verði spillt. Náttúran eigi að fá að njóta vafans.

Fiskeldi Aust­ur­lands er með fram­leiðslu nú þegar í Berufirði og Fáskrúðs­firði og segir Þórir talað um að lax­inum verði slátrað á Djúpa­vogi. Einu störfin sem fyr­ir­sjá­an­lega verði til á Stöðv­ar­firði í skiptum fyrir breytta ásýnd hafflat­ar­ins gegnt bæj­ar­stæð­inu verði þannig „örfá störf“ við kví­arnar.

Fiskeldi Austfjarða talar um 10-20 störf í Stöðvarfirði

Í frum­mats­skýrslu til Skipu­lags­stofn­unar áætl­aði Fiskeldi Aust­fjarða að þetta 7.000 tonna eldi í Stöðv­ar­firði myndi skapa alls 91 beint starf hjá Fiskeldi Aust­fjarða og auk þess 70 óbein störf á svæð­inu. Þar af mætti reikna með 15-20 stöðu­gildum í Stöðv­ar­firði. Á öðrum stað í sömu skýrslu er reyndar talað um 10-20 störf.

[adspot]

Þessar áætl­anir Fisk­eldis Aust­fjarða byggja á útreikn­ingum frá Byggða­stofnun, þess efnis að fyrir hver þús­und tonn af fiski í eldi geti hugs­an­lega orðið til 23 störf, 13 bein og 10 óbein. Útreikn­ing­arnir voru settir fram í skýrsl­unni Byggða­leg áhrif fisk­eldis árið 2017.

Samkvæmt nýlegri sam­an­tekt Deloitte um fisk­eldi á Íslandi voru í fyrra 525 laun­þegar í fisk­eldi á Íslandi og fram­leiðslan stóð í 40,6 þús­und tonnum, sem þýðir að laun­þegar í grein­inni voru 12,7 tals­ins á hver þús­und fram­leidd tonn. Mat Byggða­stofn­unar virð­ist nærri lagi, miðað við þessar tölur.

Í áliti Skipu­lags­stofn­unar vegna frum­mats­skýrsl­unnar má lesa að athuga­semdir bár­ust frá nokkrum aðilum við þann fjölda starfa sem Fiskeldi Aust­fjarða heldur fram að skap­ast geti á Stöðv­ar­firði vegna eld­is­ins. Fram kom í umsögnum að störf yrðu flest á Djúpa­vogi þar sem lax­inum yrði öllum slátrað þar. Störf gætu skap­ast við umhirðu búra og fóðrun á Stöðv­ar­firði, en aldrei mörg – og ekki væri loku fyrir það skotið að mann­skapur frá Djúpa­vogi gæti sinnt búr­unum í Stöðv­ar­firði. Tæpir 80 kíló­metrar eru á milli bæj­anna.

Sveit­ar­fé­lagið Fjarða­byggð kom því svo á fram­færi í sinni umsögn til Skipu­lags­stofn­unar að eldið í Stöðv­ar­firði upp­fyllti ekki að fullu mark­mið sveit­ar­fé­lags­ins um að efna­hags­legur og sam­fé­lags­legur ábati af fisk­eld­inu nýtt­ist sveit­ar­fé­lag­inu til fram­tíðar, þar sem flest störf yrðu til þar sem fisknum yrði slátrað – á Djúpa­vogi í Múla­þingi.

Sjái fyrir sér síldarævintýri sem ekki verði

Þórir Snær segir að málið hafi verið mikið rætt í bænum að und­an­förnu nú þegar hillir undir útgáfu rekstr­ar­leyfis. „Það eru margir sem eru á móti þessu en eru samt ekki til í að skrifa undir. Eru hræddir um að styggja ein­hvern eða eitt­hvað svo­leiðis,“ segir hann og bætir við að það hann telji áber­andi meiri stuðn­ingur við lax­eld­is­á­formin í firð­inum sé hjá eldra fólki, sem hætt sé að vinna.

„Kannski er það bara ímyndun í mér, en mér finnst fólk sem er ekki lengur á vinnu­mark­aði vera hlynnt­ara þessu. Ég held að þau kannski haldi að þetta verði næsta síldar­æv­in­týri. Séu að sjá þetta fyrir sér þannig,“ segir Þórir Snær.

Leyfisferlið á lokametrunum

Hvort und­ir­skriftir íbúa gegn fisk­eld­is­á­formunum í firð­inum muni hafa ein­hver áhrif á útgáfu rekstr­ar­leyf­is­ins á eftir að koma í ljós, en ljóst er að ekki er sátt í sam­fé­lag­inu á Stöðv­ar­firði með áformin, sem hafa verið lengi í skipu­lags­ferli.

Í raun má segja að málið sé nú á loka­metr­unum, en fisk­eldið er þegar búið að fara í gegnum umhverf­is­mat og þar áður var búið að gera burð­ar­þols­mat fyrir fjörð­inn af hálfu Haf­rann­sókna­stofn­unar.

Guð­mundur Gíslason fram­kvæmda­stjóri Fisk­eldis Aust­fjarða lýsti þeim áfanga að fá útgefna til­lögu frá Mat­væla­stofnun að rekstr­ar­leyfi sem stórum, í sam­tali við Aust­ur­frétt í upp­hafi nóv­em­ber­mán­aðar.

„Að því gefnu að rekstr­ar­leyfið fáist, þá eigum við eftir að hanna svæðið, rækta seiði og koma svo öllu fyrir á staðnum. Við vorum lengi að gæla við að hefja starf­sem­ina á næsta ári en það er meira en að segja og við gætum verið að horfa á eitt til tvö ár áður en allt verður komið á sinn stað og starf­semin hafin,“ var haft eftir Guðmundi á vef Aust­ur­fréttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár