Tugþúsundir eldislaxa sluppu og leita upp í ár á stóru svæði

Þeir eru stór­skað­aðir af laxa­lús og leita af þeim sökum í fersk­vatn til að lina sárs­auk­ann. Yfirvöld hafa gefið út for­dæma­lausa heim­ild til veiða allra sem vett­lingi geta valdið eftir að um 40 þús­und eld­is­laxar sluppu úr sjó­kví í Þrænda­lögum.

Stórt gat fannst á sjókví Midt-Norsk Havbruk AS við eyjuna Dolma í lok ágúst. Í henni voru um 140 þúsund laxar. Talið er að um 39 þúsund þeirra hafi synt út.
Stórt gat fannst á sjó­kví Midt-Norsk Havbruk AS við eyj­una Dolma í lok ágúst. Í henni voru um 140 þús­und laxar. Talið er að um 39 þús­und þeirra hafi synt út. Mynd: Midt-Norsk Havbruk AS

Um 39 þús­und laxar, lík­lega sam­tals um 180 tonn, sluppu úr sjó­kvíum fyr­ir­tæk­is­ins Midt-Norsk Havbruk AS við eyj­una Dolma í Þrænda­lögum í ágúst. Um leið og atvikið upp­götv­að­ist var haf­ist handa við að reyna að fanga lax­ana en það skil­aði litlu og fékk fyr­ir­tækið fram­lengdan frest yfir­valda til verks­ins. Nú er hins vegar ljóst að aðeins hefur tek­ist að ná rúm­lega 13.200 löxum eða um þriðj­ungi þeirra sem sluppu.

Laxarnir hafa dreifst um stórt svæði, synt norður á bóg­inn og „leit­ar­svæðið“ því verið stækkað enda þekkja fiskar engin sýslu­mörk frekar en önnur dýr.

[adspot]

Lax­eld­is­fyr­ir­tækið til­kynnti norsku Fiski­stof­unni um málið þann 27. ágúst er stórt gat á einni sjó­kvínni upp­götv­að­ist í kjöl­far vonsku­veð­urs. Um 140 þús­und laxar voru í kvínni. Midt-Norsk Havbruk ASer dótt­ur­fé­lag NTS ASA, félags sem á, að því er fram kom í Frétta­blað­inu í sumar, 55 pró­sent í Fiskeldi Aust­fjarða.

„Ógnvekjandi“

Yfirvöld í Nordland-fylki segja að lax­ana megi finna í miklum mæli allt frá Þrænda­lögum til Rana í norðri og og í öllum fjörðum á þeim slóðum. Þá hafa margir þeirra sést í vatns­föllum og árósum. Í mynni Loms-árinnar í Velfirði hafa til að mynda um 700 eld­is­laxar verið veiddir.

„Til­kynn­ingar frá stórum hluta Háloga­lands [svæðis í nyrsta hluta Nordland-fylkis] benda til að slepp­ingin sé sú alvar­leg­asta í sögu fylk­is­ins,“ er haft eftir Tore Vatne, yfir­manni umhverfis- og lofts­lags­sviðs Nor­dlands í til­kynn­ingu frá yfir­völdum. „Fjöldi laxa sem sluppu er ógn­vekj­andi.“

„Fordæmalausar“ heimildir

Eftir fyrstu viku októ­ber hafði tek­ist að veiða 13.251 lax. Að með­al­tali má áætla að hver lax sé 4,5 kíló og hafa því um 60 þús­und kíló af eld­is­laxi verið veidd með þessum hætti. Í frétt norska rík­is­út­varps­ins segir að það sé fjórum sinnum meira magn en veiði­menn afla í öllum lax­veiðiám í Nordland-fylki árlega. Til að draga úr nei­kvæðum áhrifum á villta laxa­stofna telja yfir­völd, að sögn Vatne, nú rétt að veita „for­dæma­lausa“ heim­ild til veiða á eld­is­laxi. „Þetta getur því miður leitt til ein­hvers með­a­fla af villtum laxi og sjó­birt­ingi en við teljum engu að síður að þetta sé rétt í þeim ákaf­lega óvenju­legu aðstæðum sem hafa skap­ast í Háloga­landi.“

Allir sem vett­lingi geta valdið geta lagt hönd á plóg í þeim efnum. Veiða má, á ákveðnum svæðum í sjó, með veiði­stöngum, línum, marg­vís­legum netum með ákveð­inni möskva­stærð og fleiri aðferðum. Áður en haldið er til veiða þarf þó að tryggja leyfi land­eig­enda, benda yfir­völd á. Ekki má veiða í 100 metra rad­íus frá sjó­kvíum en á þeim slóðum hafa eld­is­fyr­ir­tækin ein slíka heim­ild. Tilkynna skal yfir­völdum um allan veiddan afla, hvort sem um er að ræða eld­is­lax, villtan lax, sjó­birt­ing, þorsk eða aðrar teg­undir.

[adspot]

Eftir að lax­arnir sluppu greiddi lax­eld­is­fyr­ir­tækið, Midt-Norsk Havbruk AS, fyrir veiðar á þeim. Fyrir hvern veiddan lax feng­ust 250 norskar krónur, um 3.800 íslenskar. En þann 3. októ­ber ákváðu for­svars­menn þess að hætta því. Norska Fiski­stofan hefur fyr­ir­skipað fyr­ir­tæk­inu að fanga eld­is­lax­ana í ám á svæð­inu en telur sig ekki hafa vald til að krefj­ast þess að fyr­ir­tækið geri slíkt hið sama á hafi úti. Fyr­ir­tækið skal hins vegar vakta að minnsta kosti sautján ár, allt fram á næsta ár, og bæði veiða og skrá­setja eld­is­laxa í þeim.

Laxarnir eru stór­skað­aðir vegna laxalúsar. Á þeim mörgum eru djúp sár í hnakka sem lúsin hefur étið. Ekki er úti­lokað að þeir leyti af þeim sökum upp í ferskvatns­árnar til að draga úr sárs­auka sem þeir finna fyrir vegna áverk­anna í söltum sjó.

Vatne bendir á að ítrekað hafi verið sýnt fram á að hrygn­ing eld­is­laxa í norskum ám sé alvar­leg ógn við villta laxa­stofna og að aukin hætta á erfða­blöndun sé við stofna sem séu þegar veikir fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár