Vilja greiða bætur til fjölskyldna sem aðskildar voru á landamærunum

Enn hefur ekki tek­ist að hafa uppi á öllum börn­unum sem voru aðskilin frá for­eldrum sínum á landa­mær­unum í stjórn­ar­tíð Donalds Trump. Fjöl­skyldur sem í þessu harð­ræði lentu glíma enn við áfallið.

Tveggja ára barn frá Hondúras grætur á meðan landamæravörður leitar á móður þess við komuna til Bandaríkjanna. Myndin, sem John Moore tók í byrjun júní 2018 vakti heimsathygli.
Tveggja ára barn frá Hondúras grætur á meðan landamæra­vörður leitar á móður þess við kom­una til Banda­ríkj­anna. Myndin, sem John Moore tók í byrjun júní 2018 vakti heims­at­hygli. Mynd: Skjáskot: New York Times/John Moore

Rík­is­stjórn Joes Biden áformar að bjóða fjöl­skyldum sem var stíað í sundur á landa­mærum Banda­ríkj­anna í stjórn­ar­tíð Donalds Trump bætur. Til stendur að bjóða hverjum ein­stak­lingi sem fyrir þessu varð 450 þús­und dali sem sam­svarar um 56 millj­ónum króna að því er heim­ildir Wall Street Journal herma. Í grein Wall Street Journal segir að inn­an­rík­is­ráðu­neytið og dóms­mála­ráðu­neytið standi í við­ræð­unum fyrir hönd rík­is­stjórnar Bidens og að rætt sé um að bæt­urnar nemi tæpri einni milljón dala fyrir hverja fjöl­skyldu sem ströng inn­flytj­enda­stefna Trumps bitn­aði á þar sem hver þeirra hafi yfir­leitt sam­an­staðið af einum full­orðnum ein­stak­lingi og einu barni.

[adspot]

Með þessu reynir stjórn Bidens að ná sáttum í fjölda dóms­mála sem höfðuð hafa verið af hálfu for­eldra og barna sem voru aðskilin við kom­una yfir landa­mærin frá Mexíkó í leit að hæli.

Í frétt Wall Street Journal segir að samn­inga­við­ræður nái nú þegar til 940 fjöl­skyldna sem segja bæði full­orðna og börn sem aðskilin voru hafa orðið fyrir miklu áfalli og glíma við langvar­andi kvíða, streitu og aðra heilsu­fars­lega erf­ið­leika. Í sumum til­vikum voru börn aðskilin frá for­eldrum sínum mán­uðum og jafn­vel árum saman.

Biden hét því í kosn­inga­bar­átt­unni að gera rót­tækar breyt­ingar á inn­flytj­enda­lög­gjöf­inni og er nú undir miklum þrýst­ingi að standa við þau lof­orð.

Er Trump komst til valda árið 2016 hóf hann und­ir­bún­ing að hertri inn­flytj­enda­lög­gjöf. Árið 2018 færði hann svo­kall­aða „núll stefnu“ gagn­vart inn­flytj­endum í lög sem gekk út á að koma í veg fyrir með öllum ráðum að fólk sem ekki hefði tryggt sér dval­ar­leyfi kæm­ist inn í Banda­ríkin. Stefnan fólst einnig í því að leita uppi óskráða inn­flytj­endur sem þegar voru komnir til lands­ins og höfðu sumir hverjir búið þar árum og jafn­vel ára­tugum saman.

Komið fyrir í fóstri

Samkvæmt laga­breyt­ing­unni var koma til Banda­ríkj­anna án dval­ar­leyfa gerð ólög­leg og full­orðið fólk var sótt til saka fyrir slíkt og vísað úr landi. Börn þeirra, meðal ann­ars ung­börn, voru tekin af for­eldrum sínum eða öðrum for­ráða­mönnum og sett í sér­stakar búðir. Þaðan voru þau svo flutt til ýmissa staða innan Banda­ríkj­anna, er rifjað upp í frétt Al Jazeera um málið. Mörgum þeirra var komið fyrir í fóstri.

Talið er að þetta hafi verið gert við meira en 5.500 fjöl­skyldur.

Stefna Trumps var gagn­rýnd harð­lega um allan heim og aðeins nokkrum mán­uðum eftir að hún var sett á var hún afnumin. Hins vegar var stefn­unni bæði fram­fylgt áður en hún var sett í lög og einnig lengi eftir að hún var sögð fallin úr gildi.

[adspot]

Mann­rétt­inda­sam­tökin American Civil Liberties Union (ACLU) segja að enn séu nokkur hund­ruð fjöl­skyldur aðskildar. Þau segja að Trump-stjórnin hafi ekki haldið nákvæma skrán­ingu um fólkið sem tekið var við landa­mærin með þessum hætti og því sé oft ómögu­legt fyrir for­eldra að hafa uppi á börnum sínum.

Þrátt fyrir að Biden hafi gagn­rýnt stefnu Trump harð­lega hefur hann ekki afnumið laga­á­kvæði um að hægt sé að vísa hæl­is­leit­endum frá Banda­ríkj­unum um leið og þeir koma yfir landa­mærin í suðri sem gerir þeim ókleift að sækja um hæli í land­inu. Stjórn­völd hafa sagt að ákvæðið sé enn í gildi vegna heims­far­ald­urs­ins. Ein breyt­ing hefur þó verið gerð sem er að börn sem koma ein yfir landa­mærin frá Mexíkó geta sótt um hæli og er ýmist komið í umsjá ætt­ingja í Banda­ríkj­unum eða stuðn­ings­full­trúa sem ríkið útvegar þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár