Stýrivextir hækkaðir í 1,5 prósent

Seðla­bank­inn hefur ákveðið að hækka vexti sína um 0,25 pró­sentu­stig. Pen­inga­stefnu­nefnd bank­ans segir það vera áhyggju­efni að verð­bólgu­vænt­ingar virð­ast hafa tekið að hækka á ný.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti á lánum bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig. Með því verða stýri­vextir bank­ans komnir upp í 1,5 pró­sent. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu nefnd­ar­innarsem birt var á vef bank­ans í morgun.

Útlit fyrir kröftugan efnahagsbata

Samkvæmt til­kynn­ing­unni sýna bráða­birgða­tölur að hag­vöxtur á fyrri hluta þessa árs hafi verið nokkuð minni en bank­inn spáði í ágúst. Hins vegar séu vís­bend­ingar um að efna­hags­bati hafi verið kröft­ugur á nýliðnum árs­fjórð­ungi og að hag­vaxt­ar­horfur fyrir árið í heild hafi lítið breyst.

Verðbólga eykst enn

Nefndin nefnir einnig að verð­bólga hafi haldið áfram að aukast, en hún mæld­ist 4,4 pró­sent í sept­em­ber. Hröð hækkun hús­næð­is­verðs útskýrir stóran hluta af verð­bólg­unni, en sam­kvæmt yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar hefur und­ir­liggj­andi verð­bólga haldið áfram að hjaðna. Áhrif tíma­bund­inna fram­boðs­trufl­ana, sem hafa hækkað kostnað við að fram­leiða og dreifa vörur um allan heim, gætu aftur á móti varað lengur en áður var talið að mati nefnd­ar­innar.

„Þótt und­ir­liggj­andi verð­bólga fari minnk­andi er það áhyggju­efni að verð­bólgu­vænt­ingar virð­ast hafa tekið að hækka á ný,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Of snemmt er þó að segja til um hvort kjöl­festa þeirra við verð­bólgu­mark­mið sé að veikj­ast.“ Nefndin bætir einnig við a hún muni beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verð­bólga hjaðni aftur í mark­mið „innan ásætt­an­legs tíma“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár