Lífskjarasamningurinn heldur – „Ánægjuleg niðurstaða“

Formaður VR seg­ist vera létt að lífs­kjara­samn­ing­ur­inn haldi. Engin stemn­ing hafi verið hjá atvinnu­líf­inu né almenn­ingi að fara í átök við þessar aðstæður.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn mun halda gildi sínu þar til hann rennur út þann 1. nóv­em­ber 2022. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) sendi frá sér í dag.

Samn­inga­nefnd Alþýðu­sam­bands Íslands og fram­kvæmda­stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hitt­ust á fundi í dag um fram­hald lífs­kjara­samn­ings­ins en bregð­ist for­sendur getur hvor aðili sagt honum upp fyrir klukkan 16:00 þann 30. sept­em­ber næst­kom­andi.

Í til­kynn­ing­unni segir að lífs­kjara­samn­ing­ur­inn hvíli á for­sendum sem ekki hafi full­kom­lega stað­ist þar sem stjórn­völd hafi ekki efnt öll fyr­ir­heit í yfir­lýs­ingu sinni þann 4. apríl 2019.

Á fundi aðila kom fram vilji af beggja hálfu til þess að samn­ingar standi og halda þeir því gildi sínu þar til þeir renna út á næsta ári.

[adspot]

Mikilvægt að ríkisstjórnin vinni sér aftur inn traust

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR segir í sam­tali við Kjarnann að for­sendu­brest­ur­inn sem varð í end­ur­skoð­un­inni hafi nán­ast ein­göngu snúið að van­efndum stjórn­valda.

„Báðir aðilar voru sam­mála um það en það var tekin ákvörðun um það að standa við samn­ing­inn. Við munum síðan reyna eftir fremsta megi að klára þau mál sem eftir standa við næstu rík­is­stjórn hvort sem hún verði sú sama eða ein­hver önnur.

Af því að það er gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir sitj­andi rík­is­stjórn að vinna aftur það traust sem hún hefur tapað gagn­vart aðilum vinnu­mark­að­ar­ins. Þú getur ekki farið í þrí­hliða sam­komu­lag við aðila sem hefur þver­brotið allt sem hann hefur sagst ætla að gera og lofað,“ segir hann.

Engin stemning að fara í átök

Ragnar Þór segir að þessi nið­ur­staða hafi verið fyr­ir­sjá­an­leg og að „engin stemn­ing“ hafi verið hvorki hjá atvinnu­líf­inu né almenn­ingi að fara í átök við þessar aðstæður. „Þannig að þetta er ákveð­inn léttir. Það er lítið eftir af samn­ingnum, það er ekki eftir nema ár af honum þannig að við getum notað þann tíma vel. Við erum að fá hækkun núna um ára­mótin og mögu­legan hag­vaxt­ar­auka, þannig að það á tölu­vert mikið eftir að koma úr samn­ingnum. Þetta var því mjög ánægju­leg nið­ur­staða.“

Hann seg­ist vera mjög feg­inn að ekki verið drama í kringum þessa ákvörðun „eins og oft hefur verið í kringum verka­lýðs­hreyf­ing­una og aðila vinnu­mark­að­ar­ins“.

„Mér er mjög létt. Það var ágætis hljóð í fólki á fund­inum í dag og mik­ill vilji til að fara að hefja vinnu við næstu samn­inga mjög fljót­lega. Þannig að þetta er held ég bara mjög ánægju­leg nið­ur­staða fyrir sam­fé­lagið og þjóð­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár