Tugmilljarða skekkja í útreikningum Pírata á helstu tekjuöflunaraðgerð þeirra

Þing­maður Pírata segir að flokk­ur­inn sé að end­ur­skoða útreikn­inga sína á áhrifum 3,75 pró­sentu­stiga hækk­unar efsta þreps tekju­skatts­kerf­is­ins, eftir að bent var á að þar skeik­aði tug­millj­örðum.

Mikil skekkja er í útreikningum Pírata á helstu tekjuöflunarleiðinni sem flokkurinn sá fyrir að fjármagna kosningaloforð sín með.
Mikil skekkja er í útreikn­ingum Pírata á helstu tekju­öfl­un­ar­leið­inni sem flokk­ur­inn sá fyrir að fjár­magna kosn­inga­lof­orð sín með. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Píratar birtu í gær sitt eigið kostn­að­ar­mat á helstu aðgerð­unum sem flokk­ur­inn leggur til í kosn­inga­bar­átt­unni. Fjórar helstu útgjalda­til­lögur sínar verð­mátu Píratar á 93,4 millj­arða króna, en flokk­ur­inn lagði einnig til tekju­öfl­un­ar­til­lögur sem áttu sam­kvæmt útreikn­ingum flokks­ins að skila 83,7 millj­örðum í rík­is­sjóð.

Auk þess gerir flokk­ur­inn ráð fyrir því að 9,7 millj­arðar skili sér í aukna inn­heimtu virð­is­auka­skatts vegna þess að til­lögur flokks­ins auki það fé sem tekju­lægra fólk hafi á milli hand­anna til neyslu.

Í ljós hefur komið að stærsta ein­staka tekju­öfl­un­ar­að­gerðin, 3,75 pró­sentu­stiga hækkun efsta tekju­skatts­þreps­ins, var rangt út reiknuð hjá flokknum, svo skeikar tugum millj­arða króna.

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður flokks­ins við­ur­kennir í sam­tali við Kjarnann að fljótt á litið virð­ist skekkjan sem sett var fram af hálfu flokks­ins nema um 25 millj­örðum króna hvað þessa aðgerð varðar.

„Ég var kom­inn með töl­una varð­andi hækk­un­ina á efra skatt­þrep­inu, hún var eitt­hvað rétt um 10 millj­arðar en ekki 34,“ segir Björn Leví um nýja útreikn­inga sem nú er verið að vinna í her­búðum Pírata. Hann segir flokk­inn hafa treyst gögn­unum sem flokk­ur­inn var með í hönd­unum.

„Við vorum með skjal frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu sem skipti niður tekju­skatti á hvern hund­raðs­hluta og vorum að reyna að vinna með það, en ég veit ekki alveg hvernig þetta end­aði, þessi upp­hæð á ein­stak­ling,“ segir Björn Leví við blaða­mann og af honum má ráða að stuðst hafi verið við rangar for­sendur.

„Við erum enn að reyna að kom­ast að því af hverju þetta var rangt til að byrja með,“ segir Björn Leví. „Þetta er bara eins og gengur og ger­ist þegar maður er að vinna með óná­kvæm gögn,“ bætir þing­mað­ur­inn við.

Hann segir Pírata ekki hafa neinar áhyggjur af því að hafa farið fram með ranga útreikn­inga. Þetta verði bara lagað.

„Ég held að þetta sé hluti af ástæð­unni fyrir því að stjórn­mála­sam­tök þora aldrei að setja fram nákvæmar tölur. Út af því að þá koma þau með rangar tölur. En okkur er alveg sama, við fáum gagn­rýni á þetta og þá bara lögum við [töl­urnar], þetta er ekk­ert flókið,“ segir Björn Leví.

Hagfræðingur vakti máls á ofmatinu

Konráð S. Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur og aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, vakti máls á skekkj­unni í helstu tekju­öfl­un­ar­leið Pírata á Twitter í dag. Hann reikn­aði sig niður á það að skekkjan væri enn meiri en Björn Leví seg­ist nú telja og að hækkun efsta tekju­skatt­þreps um 3,75 pró­sentu­stig upp í 50 pró­sent, myndi ein­ungis skila rúmum 4 millj­örðum króna auka­lega í rík­is­sjóð á árs­grund­velli, en ekki 34,8 millj­örðum króna eins og Píratar sjálfir kynna á vef sínum. „Hátt í 9-falt ofmat,“ skrif­aði hag­fræð­ing­ur­inn á Twitter.

Kjarninn hefur ráð­ist í eigin laus­legu útreikn­inga á þess­ari til­lögu Pírata, miðað við ákveðnar for­sendur, og gefa nið­ur­stöð­urnar til kynna að skekkjan sé jafn­vel enn meiri en í útreikn­ingum Konráðs.

Í fyrra nam með­al­tal atvinnu­tekna efstu tíund­ar­innar á vinnu­mark­aði um 1,1 milljón á mán­uði. Það leiðir af sér að skatt­stofn­inn fyrir hæsta tekju­skatt­þrepið var um 167 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali fyrir um það bil 20 þús­und manns. Samkvæmt þessu er skatt­stofn­inn í efsta þrepi því um 44 millj­arðar á ári.

Hækkun um 3,75 pró­sentu­stig á skatti sem á þessa upp­hæð leggst myndi skila 1,6 millj­örðum á ári auka­lega í tekjur fyrir rík­is­sjóð. Vert er að taka fram að í þessum útreikn­ingum er ekki tekið til­lit til þess að aðrar tekjur en atvinnu­tekjur eru tekju­skatts­skyldar, eins og líf­eyrir og bætur.

Útgjaldatillögurnar

Píratar setja fram fjórar til­lögur sem þeir segja að muni hafa mest áhrif á tekjur rík­is­sjóðs. Það er hækkun á per­sónu­af­slætti og útborgun ónýtts per­sónu­af­sláttar, hækkun frí­tekju­marks elli­líf­eyris til að draga úr skerð­ingum, hækkun frí­tekju­marks örorku­bóta til þess að draga úr skerð­ingum og flutn­ingur hluta virð­is­auka­skatts til sveit­ar­fé­laga. Þessir fjórir liðir, segja Píratar, munu lækka tekjur rík­is­sjóðs um 93,4 millj­arða sem áður segir.

[adspot]

Þar af vegur hækkun á per­sónu­af­slætti lang­þyngst, en Píratar hafa lagt til að hækka per­sónu­af­slátt­inn um 20 þús­und krónur. Þetta eitt og sé segja Píratar að muni lækka tekjur rík­is­sjóðs um sem nemur 70,9 millj­örðum króna. Síðar meir sjá Píratar fyrir sér að per­sónu­af­sláttur sem ekki er nýttur verði útgreið­an­legur, en það er ekki með inni í þessum útreikn­ingum.

Til við­bótar þessu segj­ast Píratar vilja draga úr skerð­ingum á elli­líf­eyri eldra fólks og segj­ast áætla að til­lögur sínar muni lækka tekjur rík­is­sjóð um u.þ.b. 10 millj­arða króna. Hækkun á frí­tekju­marki öryrkja segja Píratar að muni lækka tekjur rík­is­sjóðs um u.þ.b. 5,2 millj­arða.

Auk þessa vilja Píratar að sveit­ar­fé­lög fái hlut af þeim virð­is­auka­skatti sem verður til í sveit­ar­fé­lag­inu, til þess að geta betur staðið undir þeim verk­efnum sem flutt hafa verið til þeirra á und­an­förnum árum. „Hægt er að fara nokkrar leiðir að þessu mark­miði, en hér reiknum við með að á næsta ári myndi um 2% af tekjum rík­is­sjóðs vegna skatta á vörur og þjón­ustu renna til sveit­ar­fé­lag­anna. Þar sem gert er ráð fyrir að þær tekjur séu um 366.5 millj­arðar í heild­ina þá mun þessi til­laga Pírata þýða að tekjur rík­is­sjóðs muni lækka um það sem nemur 7.3 millj­örðum – en tekjur sveit­ar­fé­laga auð­vitað aukast á móti,“ segir á vef Pírata.

Tekjuöflunin

Til þess að mæta þeim til­lögum sem eru til tekju­lækk­unar hafa Píratar sett fram eft­ir­far­andi aðgerðir til tekju­öfl­unar fyrir rík­is­sjóð, sem flokk­ur­inn sagði að ættu að skila 83,7 millj­örðum í auknar tekjur rík­is­sjóðs. Þó það sé reyndar að minnsta kosti 25 millj­arða gat í þeim til­lögum sem settar hafa verið fram.

  • Hækkun mið­þreps tekju­skatts úr 37,95% í 38%
  • Hækkun efsta þreps tekju­skatts úr 46,25% í 50%
  • Þrepa­skipt­ing fjár­magnstekju­skatts og hækkun fjár­magnstekju­skatts á rík­ustu 10% fjár­magns­eig­enda í 30%
  • Bætt skatta­eft­ir­lit, átak gegn skattsvikum og pen­inga­þvætti
  • Hærra auð­linda­gjald á stærri útgerðir
  • Orku­nýt­ing­ar­gjöld á meng­andi stór­iðju
  • Tíma­bundið hærri arð­greiðslur til rík­is­sjóðs úr Lands­bank­anum

Píratar segja að þær breyt­ingar á tekju­skatts­þrep­unum sem þeir leggja til muni, sökum þess að per­sónu­af­sláttur verði einnig hækk­aður, ein­ungis hafa „til­finn­an­leg áhrif á ein­stak­linga með hærri en 1.6 millj­ónir í mán­að­ar­tekjur og hjón/fólk í sam­búð með meira en 2.2 millj­ónir í tekjur.“ Þeir áætla að breyt­ingin á mið­þrep­inu muni skila 15 millj­örðum í rík­is­sjóð og að breyt­ingin á efsta þrep­inu myndi skila um 34,8 millj­örðum króna í rík­is­sjóð. Samtals yrðu því 49,8 millj­arðar sóttir með hækkun tekju­skatts­þrepa. En þetta er til end­ur­skoð­unar eins og fram hefur komið.

Flokk­ur­inn telur síðan að breyt­ing­arnar á fjár­magnstekju­skatt­inum, með hækkun efra þreps fjár­magnstekju­skatts­ins upp í 30 pró­sent, muni skila 13,2 millj­örðum auka­lega í tekjur fyrir rík­is­sjóð.

Varðandi bætt skatta­eft­ir­lit segja Píratar að skýrslan um aflandseignir Íslend­inga sem Bjarni Bene­dikts­son „stakk ofan í skúffu“ fyrir síð­ustu kosn­ingar hafi sýnt fram á að rík­is­sjóður verði árlega af á milli 4,6-15,5 millj­örðum vegna skattsvika í gegnum aflands­fé­lög og að núver­andi rík­is­stjórn hafi auk þess „grafið undan eft­ir­liti með svartri atvinnu­starf­semi“. Píratar telja að með stór­efldum rann­sóknum og aðgerðum gegn skattsvikum sé „hæg­lega“ hægt að auka tekjur rík­is­sjóðs um 5 millj­arða á ári.

Hvað auð­linda­gjöld varðar segja Píratar að raun­hæft sé að tekjur af auð­linda­gjaldi í sjáv­ar­út­vegi, sér­stak­lega með hækkun þess á stærri útgerðir, skili um 9,6 millj­örðum auka­lega til rík­is­sjóðs.

Orku­nýt­ing­ar­gjöld af þeirri stór­iðju sem mengar mest segja Píratar að geti skilað einum millj­arði inn í rík­is­sjóð strax á næsta ári, en flokk­ur­inn seg­ist sjá fyrir sér að þessi skatt­lagn­ing geti auk­ist þegar líður á kjör­tíma­bilið og hana megi nota sem hvata til að fá meng­andi iðnað til að draga úr útblæstri.

Píratar segja svo að rekstur Lands­bank­ans hafi gengið mjög vel á þessu ári. „Við teljum því raun­hæft að auka arð­greiðslur úr bank­anum sem í dag er að fullu í eigu rík­is­ins,“ segja Píratar og áætla að Lands­bank­inn geti á næsta ári greitt út fimm millj­arða króna ein­greiðslu, ofan á reglu­legar arð­greiðslur bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár