Seðlabankinn hækkar vexti aftur

Seðla­banki Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig. Hann segir ástæð­una vera skjótan efna­hags­bata og miklar verð­hækk­anir, en búist er við að verð­bólgan verði yfir fjórum pró­sentum út árið.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka meg­in­vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig. Vext­irnir, sem námu einu pró­sentu fyrir, verða því 1,25 pró­sent. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar sem var gefin út í morgun.

Samkvæmt yfir­lýs­ing­unni hafa efna­hags­horfur batnað frá fyrri spá bank­ans. Samkvæmt nýrri þjóð­hags­spá Seðla­bank­ans sem birt er í ágúst­hefti Pen­inga­mála eru horfur á 4% hag­vexti í ár sem er 0,9 pró­sentum meiri vöxtur en spáð var í maí. Vegur þar þungt örari fjölgun ferða­manna í sumar en gert var ráð fyrir. Atvinnu­leysi hefur hjaðnað meira en spáð var þótt það sé enn mikið og slak­inn í þjóð­ar­bú­skapnum minnkað hraðar.

Þó bætir nefndin við að nokkur óvissa sé fram undan vegna útbreiðslu Delta-afbrigðis veirunnar. Hún nefnir einnig að áhrif tíma­bund­inna fram­boðs­trufl­ana erlendis gætu varað lengur en áður var talið, en þær hafi hækkað kostnað við að fram­leiða vörur um allan heim.

Nefndin segir verð­bólgu­þrýst­ingur virð­ast fara minnk­andi, einkum ef litið er til und­ir­liggj­andi verð­bólgu. Samkvæmt spám Seðla­bank­ans séu þó horfur á að hún hjaðni hægar en gert var ráð fyrir í maí. Búist er við því að hún hald­ist yfir fjórum pró­sentum út árið en verði komin í mark­mið bank­ans á seinni hluta næsta árs.

Seðla­bank­inn hækk­aði síð­ast vexti í maí síð­ast­liðnum, þá úr 0,75 pró­sentum upp í 1 pró­sent. Þar voru svip­aðar ástæður nefndar fyrir vaxta­lækk­un­ina – þrá­lát verð­bólga og sterkur efna­hags­bati – en verð­bólgan var þá sögð vera til­komin að hluta til vegna hækk­andi hús­næð­is­verðs, fram­boðs­trufl­ana í hag­kerf­inu og geng­is­sigs krón­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár