Þingrof kynnt með öðrum hætti en úr ræðustól Alþingis í fyrsta sinn síðan 1953

Lengst af hefur sá vani verið hafður á að for­sæt­is­ráð­herra til­kynni um þing­rof úr ræðu­stól Alþingis. Til­kynn­ing um þing­rof birt­ist í Stjórn­ar­tíð­indum í gær, án þess að sá vani væri virtur. Það hefur ekki gerst í 68 ár.

Katrín Jakobsdóttir varð fyrsti forsætisráðherrann til að tilkynna ekki um þingrof úr ræðustól Alþingis í næstum sjö áratugi.
Katrín Jak­obs­dóttir varð fyrsti for­sæt­is­ráð­herr­ann til að til­kynna ekki um þing­rof úr ræðu­stól Alþingis í næstum sjö ára­tugi. Mynd: Bára Huld Beck

Í gær, 12. ágúst, birt­ist for­seta­bréf um þing­rof og almennar kosn­ingar í Stjórn­ar­tíð­indum. Þar segir meðal ann­ars að sam­kvæmt til­lögu Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, sem kynnt var á rík­is­stjórn­ar­fundi fyrr í vik­unni, þá sé búið að ákveða að rjúfa þing 25. sept­em­ber og að kosn­ingar til Alþingis fari fram þann sama dag.

Í til­kynn­ingu á vef Alþingis vegna þessa segir að í þing­rofi felist heim­ild hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds­ins, Guðna Th. Jóhann­es­sonar for­seta Íslands að til­lögu for­sæt­is­ráð­herra, til að stytta kjör­tíma­bil Alþingis, en Alþingi er kjörið til fjög­urra ára í senn. Síðast fóru kosn­ingar fram 28. októ­ber 2017. Því mun vanta rúman mánuð upp á að Alþingi hafi setið í heil fjögur ár.

[adspot]Í til­kynn­ing­unni segir einnig að sá háttur hafi lengst af verið hafður á að for­sæt­is­ráð­herra til­kynni um þing­rof úr ræðu­stól Alþingis þegar þing hefur setið, áður en for­seta­bréfið er birt í Stjórn­ar­tíð­indum. Það sé þó ekki skil­yrði að for­seta­bréf um þing­rof sé lesið upp á þing­fundi. „Síðast var til­kynnt um þing­rof með þessum hætti árið 1953.“

Nýtt Alþingi á að koma saman eigi síðar en tíu vikum eftir kjör­dag. Takist að mynda rík­is­stjórn hratt eftir kosn­ingar má ætla að það verði kallað saman mun fyrr, líkt og gerð­ist 2017, en það getur líka dreg­ist umtals­vert ef stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður verða erf­iðar og flóknar, líkt og þær voru 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár