Arðgreiðslur heimilar og veðsetning fasteignalána lækkar í 80 prósent

Einungis fyrstu kaup­endur geta nú fengið meira en 80 pró­senta lán fyrir fast­eigna­kaup sín, sam­kvæmt nýrri yfir­lýs­ingu fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar Seðla­bank­ans.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri Mynd: Bára Huld Beck

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að lækka hámarks­hlut­fall veð­setn­ingar á fast­eigna­lánum úr 85 pró­sent í 80 pró­sent. Fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd bank­ans hefur einnig ákveðið að fella brott til­mæli sín til fjár­mála­fyr­ir­tækja um að greiða ekki arð.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu nefnd­anna tveggja, sem voru birtar á vef Seðla­bank­ans í morgun. Samkvæmt þeim er við­náms­þróttur bank­anna mik­ill, þar sem staða þeirra sé sterk og eig­in­fjár- og lausa­fjár­staða þeirra sé vel yfir lög­bundnum lág­mörkum.

Hins vegar sagði fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd að hækk­andi fast­eigna­verð hefði farið saman við aukna skuld­setn­ingu heim­il­anna og væri því rétt við núver­andi aðstæður að lækka veð­setn­ing­ar­hlut­fall fast­eigna­lána. Þó bætti hún við að hámarks­hlut­fall fyrir fyrstu kaup­endur verði óbreytt í 90 pró­sentum.

Nefndin sam­þykkti á fundi sínum að setja sér­stakar reglur um afleiðu­við­skipti á grund­velli nýrra laga um gjald­eyr­is­mál. Samkvæmt yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar fela regl­urnar í sér ein­földun og minni tak­mark­anir en áður var.

Sömu­leiðis ákvað nefndin að taka nán­ari til skoð­unar hvort hafa ætti greiðslu­byrð­ar­hlut­fall til hlið­sjónar í fast­eigna­lánum til neyt­enda. Samkvæmt nýsam­þykktum lögum gæti slíkt hámark verið 25 til 50 pró­sent af mán­að­ar­legum ráð­stöf­un­ar­tekjum neyt­enda.

Þrátt fyrir að fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd hafi látið af til­mælum sínum við að hætta við arð­greiðslur vegna yfir­stand­andi efna­hags­þreng­inga brýndi hún fyrir fjár­mála­fyr­ir­tækjum að gæta áfram ýtr­ustu var­færni við ákvörðun um útgreiðslu arðs og gerð áætl­ana um kaup á eigin hluta­bréfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár