Þingmönnum heitt í hamsi – „Tundurskeyti inn í þinglokasamninga“

Vel gekk í gær­kvöldi að semja um þing­lok þangað til þing­maður Pírata kom með „tund­ur­skeyti“ inn í þing­loka­samn­ing­ana, eins og þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins orð­aði það. Þung orð voru látin falla í þing­sal í morgun.

Helgi Hrafn Gunnarsson, Lilja Rafney og Birgir Ármannsson.
Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Lilja Rafney og Birgir Ármanns­son. Mynd: Samsett mynd/Bára Huld Beck

Heitar umræður sköp­uð­ust á Alþingi í morgun um dag­skrár­til­lögu Helga Hrafns Gunn­ars­sonar þing­manns Pírata um að koma frum­varpi Lilju Raf­n­eyjar Magn­ús­dóttur, þing­manns VG og for­manns atvinnu­vega­nefndar, um strand­veiðar á dag­skrá fyrir þing­lok. Tillagan var felld, en 10 sam­þykktu til­lög­una, 30 felldu hana, 19 sátu hjá og 4 voru fjar­staddir.

Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að vel hafi gengið hjá þing­flokk­unum í gær­kvöldi að semja um þing­lok þangað til Helgi Hrafn kom með fyrr­nefnda dag­skrár­til­lögu. „Tillagan sprengdi fund­inn,“ segir einn við­mæl­enda Kjarnans en í frum­varp­inu er meðal ann­ars lagt til að ráð­herra skuli tryggja 48 daga á strand­veiði­tíma­bil­inu 2021.

Frum­varp­inu var dreift á meðal alþing­is­manna í fyrra­dag en flutn­ings­menn þess voru fimm þing­menn Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins, þau Lilja Rafney, Ari Trausti Guð­munds­son, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé og Halla Signý Krist­jáns­dóttir. Nú eru ein­ungis Lilja Rafney og Halla Signý skráðar sem flutn­ings­menn frum­varps­ins.

Sakar Lilju Rafneyju um að kenna stjórnarandstöðunni um að málið kæmist ekki á dagskrá

Helgi Hrafn sagði í umræðum um atkvæða­greiðsl­una að frum­varpið væri mik­il­vægt í ljósi þess að nú væru 600 til 700 smá­báta­sjó­menn sem stæðu frammi fyrir mjög alvar­legu atvinnu­leysi.

„Málið er gott, en hátt­virtur þing­maður Lilja Rafney Magn­ús­dóttir hefur hins vegar verið að spreða því út um allan bæ að það sé á ein­hvern hátt stjórn­ar­and­stöð­unni að kenna að málið kom­ist ekki á dag­skrá. Ég vil halda því til haga að hátt­virtur þing­maður er for­maður atvinnu­vega­nefndar og ég sit í þeirri nefnd. Hátt­virtur þing­maður er með þing­flokks­for­mann sem semur ekki um málið fyrir hennar hönd. Hátt­virtur þing­maður er í sama flokki og virðu­legur for­seti sem setur málið ekki á dag­skrá. Hátt­virtur þing­maður er í sama flokki og hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra sem virð­ist ekki styðja málið. Það erum við sem styðjum málið, Píratar, og stjórn­ar­and­staðan vænti ég, við viljum setja málið á dag­skrá fyrir smá­báta­sjó­menn. Sjáum hvað setur,“ sagði hann.

Tundurskeyti inn í þinglokasamninga

Þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Birgir Ármanns­son, sagði í sömu umræðum að hann vissi ekk­ert um stymp­ingar ein­stakra þing­manna og ætl­aði ekki að blanda sér í það.

„Hins vegar er alveg ljóst að það er auð­vitað ekki hægt að taka mál af þessu tagi á dag­skrá í miðju kafi þegar við erum að reyna að ganga frá þing­lokum. Málið kom fram, eftir því sem ég best veit, í gær. Mér finnst alveg frá­leitt af Pírötum að vera að senda þetta tund­ur­skeyti inn í þing­loka­samn­inga með þessum hætti til að raska málum. Í þing­loka­samn­ingum er verið að semja um fjölda­mörg mál, meðal ann­ars er verið að semja um fjölda­mörg mál út af borð­inu sem hafa fengið umfjöllun í þing­inu í allan vetur. Það leiðir bara af sjálfu sér að það er ekki hægt að klára allt saman. Með því að stilla mönnum upp við vegg með þessum hætti eru þing­loka­samn­ingar settir í upp­nám. Þess vegna er auð­vitað ekk­ert annað að gera en að fella þessa dag­skrár­til­lögu,“ sagði hann.

„Ég hef verið hér í tólf ár og ég man ekki eftir svona vinnubrögðum“

Gunnar Bragi Sveins­son þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins sagði að það væri með ólík­indum að for­maður atvinnu­vega­nefndar, Lilja Rafney, skyldi fara í þennan leið­angur, að leggja fram þing­mál vit­andi að ekki væri meiri­hluti fyrir því hjá stjórn­ar­flokk­unum að koma því inn í þingið – og færi í þá veg­ferð að „móbil­isera ein­hverja bylgju um landið“ um að kenna stjórn­ar­and­stöð­unni um að málið kæm­ist ekki á dag­skrá.

„Ég hef verið hér í tólf ár og ég man ekki eftir svona vinnu­brögðum, að menn legg­ist svona lágt, að fara í slíkan leið­angur, ég verð að segja það. Á sama tíma er í atvinnu­vega­nefnd þing­mál sem myndi taka á því sama sem hátt­virtur for­maður nefnd­ar­innar vill ekki taka á dag­skrá sem varð til þess að full­trúar Mið­flokks­ins í nefnd­inni bók­uðu athuga­semd um að taka málið af dag­skrá, en að sjálf­sögðu varð for­maður nefnd­ar­innar ekki við því. Það er ekki boð­legt að taka þátt í þessu. Við munum ekki greiða atkvæði í þess­ari atkvæða­greiðslu vegna þess hvernig for­maður atvinnu­vega­nefndar hagar sér í mál­inu,“ sagði Gunnar Bragi.

Þor­steinn Sæmunds­son þing­maður Mið­flokks­ins steig einnig í pontu og sagði að þessi dag­skrár­til­laga væri sýnd­ar­mennska og popúl­ismi af aum­ustu sort. „Það er ekki nokkur leið að sam­þykkja eitt­hvað sem er sett fram til að þyrla upp ryki og skemma fyrir öðrum þing­störfum. En fyrst og fremst – þetta er vont, ég veit það – er þetta aumasti popúl­ismi sem til er og við tökum ekki þátt í slíku.“

Málið gott í sjálfu sér en kemur fram á óheppilegum tíma

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­flokks­for­maður VG sagði að þetta mál væri mjög óheppi­legt og kæmi fram á óheppi­legum tíma.

„Málið er gott í sjálfu sér en ég tel ekki rétt á þessum síð­ustu loka­metrum þegar við erum að reyna að ljúka þingi, og við vorum nú langt komin með það hér í gær­kvöldi, að þetta mál sé tekið hér inn því að þetta er laga­frum­varp sem þarf auð­vitað tölu­verða umræðu. Ég tel að að svo komnu máli, á þessum tíma­punkti, sé bara ekki tími til þess að bæta einu máli ofan á. Við vorum búin að loka þeirri mála­skrá sem við vorum með í höndum að mínu mati og allra ann­arra. Í sam­tölum okkar þing­flokks­for­manna vorum við með ákveð­inn lista sem við vorum að vinna með og héldum okkur stíft við hann. Ég vil ekki hvika frá því, þannig að Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð mun ekki greiða þessu máli atkvæði sitt, þ.e. að við verðum á rauða takk­anum fyrir utan for­mann atvinnu­vega­nefndar.“

Kallaði atburðarásina leikrit

Þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Oddný Harð­ar­dóttir, tók jafn­framt til máls við atkvæða­greiðsl­una. „Sú staða sem komin er upp með þetta mál er í raun alveg með ólík­indum. Við þing­flokks­for­menn sitjum nú og reynum að semja um þing­lokin. Rík­is­stjórnin og stjórn­ar­flokk­arnir eru búnir að taka af því borði mörg mál sem ég hefði gjarnan viljað að við tækjum hér til umræðu.

En í ljósi þess að við erum að vinna saman og reyna að loka þing­inu og kjör­tíma­bil­inu þá er ég ekki hér með dag­skrár­til­lögu um að koma þeim mik­il­vægu málum á dag­skrá. Ef það mál sem við erum að ræða hér um strand­veiðar hefði verið eitt af for­gangs­málum stjórn­ar­flokk­anna við samn­inga­borðið þá hefði ég sann­ar­lega fagnað því og greitt því atkvæði. Ef það væri hér á dag­skrá væri ég sam­mála því. En þessi atburða­rás, þetta leik­rit sem búið er að setja upp, bæði af hálfu for­manns atvinnu­vega­nefndar og hátt­virts þing­manns Helga Hrafns Gunn­ars­sonar — ég get ekki tekið þátt í því eða við í Sam­fylk­ing­unni og við munum sitja hjá við þessa afgreiðslu,“ sagði Oddný.

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­flokks­for­maður Við­reisnar tók í sama streng og Oddný og sagði að þing­menn væru staddir „í ein­hverri senu í leik­húsi fárán­leik­ans“.

„Í stað þess að hafa farið í umræðu um mik­il­vægt mál á sínum tíma, á eðli­legum tíma, sam­þykkt til­lögu sem fyrir var, unnið með hana, verið fyrr með þetta mál, tekið sam­talið til að útkljá mál sem varðar hags­muni fjölda sjó­manna og fjöl­skyldna þeirra, þá stöndum við hér föst í ein­hverjum forms­at­riðum af því að enn og aftur sýna stjórn­völd, sér í lagi for­maður atvinnu­vega­nefndar, að sam­vinna er eitt­hvert óþekkt fyr­ir­bæri á þeim bænum. Þetta er staða sem hefði ekki þurft að koma upp, en við stöndum frammi fyrir henni. Við þing­flokks­for­menn höfum setið og reynt að ná saman um þing­lok. Þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ingar fór hér vel yfir málið.“

Hún sagði að fjöldi góðra mála hefði farið út af borð­inu og að þau hefðu viljað sjá fjöl­mörg mál fá for­gang. „Í ljósi stöð­unnar ætla ég ekki að rjúfa það sam­komu­lag. Þetta er hins vegar þörf og mik­il­væg umræða og ég þakka Pírötum fyrir að hafa sett hana á dag­skrá hér í þing­sal, en við í Viðreisn sitjum hjá við afgreiðslu þess­arar til­lögu.“

Skoraði á þingmenn að hætta þessum „fífladansi“

Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins lét sig ekki vanta í umræð­urnar. „Hefði, myndi, skuli og allir vinir hans — ef þetta hefði verið í gær eða í fyrra­dag eða um ára­mótin. Stað­reyndin er sú að staðan er að koma upp núna. Við erum hér núna og það er ekk­ert hægt, hvorki fyrir for­mann hátt­virtrar atvinnu­vega­nefndar né hvern annan sem er, að horfa fram hjá því. Í raun og veru hefði henni verið í lófa lagið að koma með þetta mál mun fyrr ef hún hefði vogað sér að sýna hæst­virtum sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hornin aðeins þar sem honum virð­ist vera nákvæm­lega sama um smá­báta­sjó­menn.

Það breytir ekki þeirri stað­reynd að við erum hér til að reyna að tryggja að þeir geti fengið þessa aumu 48 daga sem þeim er úthlutað ár hvert til þess að stunda strand­veiðar. Það er nú ekki meira en það. Ég skora því á okkur öll hér, hvort sem fólk er í fýlu út af þessu eða hinu, að hætta þessum fífla­dansi, sem er okkur til ævar­andi skammar, taka þetta út fyrir póli­tískar raðir og rifr­ildi og ein­fald­lega tryggja, eins og við gerðum um lax­eldið á sínum tíma, þegar allt var í voða fyrir vestan, að smá­báta­sjó­menn­irnir okkar geti að minnsta kosti fengið að veiða þessa 48 daga skamm­laust. Það er í okkar valdi að svo megi verða,“ sagði Inga.

Hagsmunir sjómanna skipta máli

Helgi Hrafn sak­aði Lilju Rafney um lygar í fyrr­nefndum umræðum um málið en for­seti Alþingis, Stein­grímur J. Sig­fús­son, bað þing­menn um að gæta orða sinna. Helgi Hrafn sagði að hún hefði kosið að ljúga og að kenna Pírötum um að standa í vegi fyrir mál­inu með því að hafa það ekki með í sínum samn­ingum, í þing­loka­samn­ingum.

„Hún þurfti ekki að gera það. Þar sem við höfum gert í kjöl­farið er að við höfum lagt til að málið verði tekið til umræðu hér og það er full alvara á bak við það. Gerum það bara. Það væri rétti leik­ur­inn af meiri hlut­anum, að taka málið til umræðu og sam­þykkja það. En nei, það má ekki.“

Bað hann hags­muna­að­ila í þessu máli að fylgj­ast vel með atkvæða­greiðslu­töfl­unni því að atkvæðin skiptu máli. „Nið­ur­staðan skiptir máli. Hags­munir sjó­manna skipta máli og eru meira en ein­hver leikur í bragði stjórn­mála­manna.“

Sagði að það væri ekki satt að hún væri að ljúga

Lilja Rafney svar­aði Helga Hrafni og Gunnari Braga í næstu ræðu og sagð­ist ekki ætla að taka þátt í því í þess­ari heitu umræðu – þar sem allt virt­ist ætla að fara á hlið­ina yfir – að vera sökuð um að ljúga.

„Það er ekki satt,“ sagði hún og bætti því við að Gunnar Bragi ætti að hugsa um að feta leiðir sann­leik­ans. „Ég hef ekki logið neitt í þessu máli. Þingið hefur fulla burði til þess þegar mál koma inn að taka þau á dag­skrá í þing­loka­samn­ingum. En það var ekki gert og þannig liggur þetta mál. Og inn í atvinnu­vega­nefnd er frum­varp frá hæst­virtum sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra sem dregur úr afla í strand­veiðar og bíður upp á að róa öllum dögum svo strand­veiðar hefðu klár­ast miklu fyrr, hefði það frum­varp nokkurn tím­ann verið sam­þykkt. Þannig er nú sá veru­leiki. En ég held áfram að berj­ast fyrir strand­veiðum og fyrir sjáv­ar­byggðir lands­ins og læt ekki saka mig um það að ljúga að einum eða neinum. Það er ekki minn háttur,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár