Vill að biskup verði áfram embætti en ekki starf

Þing­maður Mið­flokks­ins ætlar að ábyrgð „bisk­ups til and­legrar for­ystu í kirkj­unni og umsjón­ar­skylda bisk­ups gagn­vart kenn­ingu og siðum hennar hafi þá ekki lengur þann styrk sem bisk­ups­emb­ættið hefur haft“ ef hlut­verk hans verður skil­greint sem starf.

Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins.
Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, hefur lagt fram breyt­ing­ar­til­lögu við frum­varp til laga um þjóð­kirkj­una þar sem hann vill bæta við ákvæði um að biskup Íslands verði áfram emb­ætt­is­maður, en ekki starfs­maður, líkt og frum­varpið gerir ráð fyrir.

Í breyt­ing­ar­til­lögu Birgis er lagt til að eft­ir­far­andi setn­ingu verði bætt við 10. grein frum­varps­ins: „Biskup Íslands gegnir æðsta emb­ætti þjóð­kirkj­unnar og fer með yfir­stjórn hennar eftir því sem kirkju­þing mælir nánar fyrir um.“

Í grein­ar­gerð sem fylgir breyt­ing­ar­til­lög­unni segir Birgir að emb­ætti bisk­ups sé elsta emb­ætti Íslands sem haldi hefur frá upp­hafi. „Saga og hefðir eru dýr­mætar eignir sér­hvers sam­fé­lags, rétt eins og menn­ing þess. Hugtakið emb­ætti í kirkj­unni hefur sér­staka merk­ingu sem bygg­ist á guð­fræði hennar. Almennt séð er hug­takið í kirkju­legu sam­hengi fyrst og fremst tengt þjón­ustu, ábyrgð, umsjón og for­ystu, rétt eins og ann­ars staðar þar sem það kemur fyrir og er að því leyti ótengt kirkj­unni. Starf er aftur á móti fyrst og fremst fram­kvæmd verk­efna sem aðrir fela starfs­fólki að sinna.“

[adspot]Birgir segir að það megi álykta að ákveðin grund­vall­ar­breyt­ing eigi að verða á hlut­verki bisk­ups kirkj­unnar með því að fella niður hug­takið emb­ætti bisk­ups og breyta því í starf bisk­ups eins og frum­varpið gerir ráð fyrir. „Ætla má að ábyrgð bisk­ups til and­legrar for­ystu í kirkj­unni og umsjón­ar­skylda bisk­ups gagn­vart kenn­ingu og siðum hennar hafi þá ekki lengur þann styrk sem bisk­ups­emb­ættið hefur haft í kirkj­unni allt frá frum­kirkj­unni og í sam­hengi Íslands í meira en þús­und ár.“

Vill auka veg kristinfræðikennslu í grunnskólum

Birgir hefur beitt sér umtals­vert fyrir auk­inni fyr­ir­ferð kristni í sam­fé­lag­inu síðan að hann var kos­inn á þing 2017. Hann var meðal ann­ars fyrsti flutn­ings­maður frum­varps um að auka veg krist­in­fræði­kennslu í grunn­skólum lands­ins, sem allir þing­menn Mið­flokks­ins skrif­uðu sig á auk sjálf­stæð­is­mann­anna Brynjars Níels­sonar og Ásmundar Frið­riks­sonar.

[links]Verði frum­varpið að lögum yrði kennslan eins og var fyrir gild­is­töku grunn­skóla­laga frá árinu 2008, sem felldu hana nið­ur. Þing­menn­irnir vilja að heiti náms­grein­ar­innar trú­ar­bragða­fræði verði breytt í krist­in­fræði og trú­ar­bragða­fræði og telja að nám á því sviði sé mik­il­vægt til skiln­ings, umburð­ar­lyndis og víð­sýni. „Nem­endur verða að vera búnir undir að lifa í fjöl­breyttu lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi og takast á við marg­vís­leg úrlausn­ar­efni sem þeirra bíða í breyttum heim­i,“ segir í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varp­in­u.

Á meðal þeirra raka sem þing­menn­irnir nota til að rök­styðja þörf­ina fyrir aukna áherslu á krist­in­fræði­kennslu í skólum er að hér á landi fari inn­flytj­endum sem komi frá ólíkum menn­ing­ar­heimum fjölg­andi. Það auki að mati þing­mann­anna kröfur um umburð­ar­lyndi og gagn­kvæma virð­ingu. „Með vax­andi fjölgun íslenskra rík­is­borg­ara sem eru af erlendu bergi brotnir eykst nauð­syn þess að brjóta niður múra á milli menn­ing­ar­heilda og trú­ar­hópa og auka þar með umburð­ar­lyndi. Slíkt er best gert með sér­stakri fræðslu um ríkj­andi trú lands­ins, kristni, og almennri fræðslu um trú­ar­brögð heims­ins og þar með menn­ingu og siði þjóða og þjóð­ar­brota. Til að slík fræðsla verði að gagni og nái að stuðla að alhliða þroska nem­enda og virkri þátt­töku þeirra í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi þarf hún að ná til allra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár