Reiknistofa lífeyrissjóða segir upp samningi sínum við Init

Reikni­stofa líf­eyr­is­sjóða hefur sagt upp samn­ingi sínum við félagið Init, sem heldur utan um líf­eyris-, iðgjalda- og verð­bréfa­kerfið Jóakim. Kveikur fjall­aði um óút­skýrðar greiðslur frá Init til tengdra aðila í lok apr­íl­mán­aðar.

Almar Guðmundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, var nýlega ráðinn framkvæmdastjóri Reiknistofu lífeyrissjóða.
Almar Guð­munds­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, var nýlega ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Reikni­stofu líf­eyr­is­sjóða. Mynd: Úr safni

Reikni­stofa líf­eyr­is­sjóða (RL) er búin að segja upp samn­ingi sínum við fyr­ir­tækið Init ehf. sem sér um rekstur og þróun á líf­eyris-, iðgjalda- og verð­bréfa­kerf­inu Jóakim. Það gerði RL í síð­ustu viku, sam­kvæmt til­kynn­ingusem birt­ist á vef Gildi líf­eyr­is­sjóðs í dag.

Frétta­skýr­ing­ar­þátt­ur­inn Kveikur greindi frá því undir lok apr­íl­mán­aðar að hund­ruð millj­óna króna hefðu streymt út úr félag­inu Init, til félags sem heitir Init-rekstur og þriggja ann­arra félaga.

Á árunum 2013 til 2019 fór tæpur millj­arður króna út úr Init til Init-rekst­urs og félaga í eigu þriggja lyk­il­stjórn­enda Intit. Óljóst þótti, sam­kvæmt skýrslu frá end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæk­inu KPMG, í hvaða til­gangi þær voru gerðar. Efa­semdir voru settar fram um það hvort þessi við­skipti Init við tengda aðila stæð­ust skatta­lög.[links]

Í umfjöllun Kveiks kom fram að meira en helm­ingur allrar inn­komu Init á hverju ári hefði runnið út úr félag­inu og til þess­ara fjög­urra félaga, sem hefðu enga sjá­an­lega starf­semi sem gæti útskýrt þessar greiðslur.

Pen­ing­arnir sem um ræðir koma frá stétt­ar­fé­lögum og líf­eyr­is­sjóðum, sem hafa einmitt furðað sig á miklum kostn­aði við utan­um­hald Jóakims.

Í til­kynn­ing­unni frá RL á vef Gildis segir að þar sem Jóakim sé lyk­il­kerfi í starfi þeirra líf­eyr­is­sjóða og stétt­ar­fé­laga sem nota kerfið hafi verið lögð áhersla á áfram­hald­andi rekstur kerf­is­ins næstu mán­uði, á meðan RL tekur ákvörðun um næstu skref.

Úttekt á að ljúka fyrir lok mánaðar

Einnig er sagt frá því að gengið hafi verið frá samn­ingi við end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið Ernst & Young um úttekt á starfs­háttum Init og RL.

[adspot]

„Félagið mun taka út fram­kvæmd og efndir Init á samn­ingi við RL og sölu félags­ins á þjón­ustu til þriðja aðila. Einnig verður fram­kvæmd RL á samn­ingnum og eft­ir­fylgni tekin til skoð­unar,“ segir í til­kynn­ing­unni sem birt er á vef Gildis.

Stefnt er að því að end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið skili nið­ur­stöðum fyrir lok þessa mán­aðar og að þær verði birtar opin­ber­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár