Segir lífeyrissjóði leggja meira kapp á að þagga mál niður en að sækja rétt eigenda sinna

Kveikur opin­ber­aði í gær að félag sem þjón­ustar líf­eyr­is­sjóði og verka­lýðs­fé­lög hafi rukkað sjóð­ina um vinnu sem efa­semdir eru um að stand­ist lög. Formaður VR býst ekki við afleið­ingum og segir orð­spor stjórn­enda vega meira en hags­munir sjóðs­fé­laga.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að hans reynslu af spill­inga­málum und­an­far­inna ára sé sú að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins leggi meira kapp á að þagga niður og fela en að rann­saka og sækja rétt sinn fyrir hönd eig­enda sinna. „Með öðrum orðum þá vegur orð­spor stjórn­enda meira en raun­veru­legir hags­munir sjóð­fé­laga.“

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem hann hefur birt á Facebook. Tilefni hennar er umfjöllun Kveiks í gær­kvöldi þar sem greint var frá því að þjón­ustu­að­ili sem sér um rekstur á einu af tölvu­kerfum íslenskra líf­eyr­is­sjóða hafði rukkað sjóð­ina um vinnu sem efa­semdir eru um að stand­ist lög. Í þætt­inum kom fram að hund­ruð millj­óna króna hefðu streymt út úr félag­inu Init og ann­ast rekstur umrædds tölvu­kerfis, sem heitir Jóakim og heldur meðal ann­ars utan um öll rétt­indi þeirra sem greiða í líf­eyr­is­sjóði, til ann­ars félags í eigu stjórn­enda Init. Það félag heitir Init-rekstur. Á árunum 2013 til 2019 fór tæpur millj­arður króna út úr Init til Init-rekst­urs.

Jóakim er í eigu tíu líf­eyr­is­sjóða og ýmis verka­lýðs­fé­lög greiða fyrir notkun á kerf­inu.

Með sitt eigið kerfi

VR, stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins, og Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, þar sem VR skipar helm­ing stjórn­ar­manna, eru ekki hluti af þessu fyr­ir­komu­lagi heldur reka sitt eigi skrán­ing­ar­kerfi. Ragnar Þór segir að það hafi samt sem áður verið dap­ur­legt að horfa á Kveik. Hann segir að ef eitt fyr­ir­tækið sem starfi svona nálægt líf­eyr­is­sjóðum kom­ist upp með svona við­skipta­hætti, þá sé vert að spyrja sig hvernig öll önnur við­skipti við sjóð­ina fari fram. „Hvernig er eft­ir­liti með fjár­fest­ingum háttað þegar nýráðin fram­kvæmda­stjóri stétt­ar­fé­lags fer að gera athuga­semdir við háan kostnað og flettir svo ofan af svindli sem hefur við­geng­ist um áraraðir ofan í háls­máli sjóð­anna?“ Sá nýráðni fram­kvæmda­stjóri sem Ragnar minn­ist á er Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, sem var til við­tals í Kveik í gær og lýsti því þar að hann hafi strax haft efa­semdir um kostnað vegna greiðslna til Init þegar hann tók við starfi sínu fyrir nokkrum árum.

[adspot]Ragnar bendir á að rekstr­ar­kostn­aður líf­eyr­is­sjóða hlaupi á tugum millj­arða króna á ári. Þar starfi á annað hund­rað vel laun­aðra stjórn­enda sem beri ábyrgð á eignum sjóð­anna, sem í dag eru yfir 5.800 millj­arðar króna.

Meiri áhersla á að fela en að rannsaka

Formaður VR spyr hvar fleiri leka og svik­sam­leg athæfi sé að finna innan líf­eyr­is­sjóð­anna. „Mín reynsla af þeim spill­ing­ar­málum sem komið hafa upp síð­ustu árin eru að sjóð­irnir leggja meira kapp á að þagga niður og fela en að rann­saka og sækja rétt sinn fyrir hönd eig­enda sinna. Með öðrum orðum þá vegur orð­spor stjórn­enda meira en raun­veru­legir hags­munir sjóð­fé­laga. Þetta eru stór orð en auð­velt er að rök­styðja með spurn­ingu: Hversu oft hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir farið í mál, eða leitað réttar síns, til að sækja bætur ef grunur er um svik­sam­legt athæfi gagn­vart þeim? Ég held að flestir viti svarið.“

Hann nefnir svo hrunmá sem dæmi og sér­stak­lega þá stað­reynd að alþjóð­leg end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki hafi kvittað upp á árs­reikn­inga fyr­ir­tækja sem sagðir voru í lagi en hafi ekki reynst vera það, gjald­eyr­is­við­skipti líf­eyr­is­sjóð­anna fyrir hrun, Bakk­ar­var­ar­málið svo­kall­aða þar sem hann áætlar að líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi tapað 50-60 millj­örðum króna, fjár­fest­ingu líf­eyr­is­sjóða í kís­il­verum á borð við United Silicon sem leiddu af sér mikið tap og Lind­ar­vatns-málið.

Kallar eftir heildarendurskoðun

Ragnar Þór segir að versta form spill­ingar sé ekki glæp­ur­inn sjálfur heldur að vita af honum og aðhaf­ast ekk­ert. Með­virkni og þöggun séu frjór jarð­vegur spill­ingar og ábyrgð stjórn­enda líf­eyr­is­sjóð­anna sé mik­ill.

Hann hafi ætlað að í kjöl­far mála eins og opin­beruð voru í Kveik í gær kæmi hrina afsagna en veru­leik­inn sé sá að ekk­ert muni breyt­ast. „En svona ger­ast hlut­irnir þegar farið er með ann­ara manna fé og eina leiðin til að breyta þessum eitr­aða kúltúr er að heild­ar­end­ur­skoðun fari fram á starf­semi líf­eyr­is­sjóð­anna og að sjóð­fé­lagar sjálfir munu skipa í stjórnir þeirra. Slíkt kemur að sjálf­sögðu ekki í veg fyrir spill­ingu og svik­semi en aðhaldið yrði marg­falt betra og meira, því verra getur þetta ekki orðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár