Formaður VR: Salan á Bakkavör gæti verið eitt stærsta fjársvikamál Íslandssögunnar

Ragnar Þór Ing­ólfs­son hefur kallað eftir því að líf­eyr­is­sjóð­irnir sem áttu hlut í Bakkavör fari fram á opin­bera rann­sókn á því hvort þeir hafi verið blekktir af Lýði og Ágústi Guð­munds­sonum.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Úr safni

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hefur kallað eftir því að þeir líf­eyr­is­sjóðir sem áttu hlut í Bakkavör fari fram á opin­bera rann­sókn á því hvort þeir hafi verið blekktir og hvort bræð­urnir Lýður og Ágúst Guð­munds­syni, aðal­eig­endur Bakka­varar, hafi leynt mik­il­vægum upp­lýs­ingum þegar sjóð­irnir seldu hluti sína í fyr­ir­tæk­inu í fyrra.

[links]Ragnar vill einnig að rann­sakað verði hvort að bræð­urnir hafi hagað bókum þannig að áhrifa gætti við verð­mat og hvaða hlut­verki ráð­gjafar gegndu við söl­una. Ef þannig er sé „um að ræða eitt stærsta fjársvika­mál Íslands­sög­unnar þar sem líf­eyr­is­sjóðir almenn­ings urðu af millj­arða tugum í við­skiptum við bræð­urna sem sitja báðum megin borðs í fyr­ir­tæk­inu, annar er for­stjóri en hinn stjórn­ar­for­maður, eitt­hvað sem hefði átt að hringja mörgum við­vör­un­ar­bjöllum stærstu eig­enda félags­ins.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem Ragnar birt­ist á Facebook í dag.

VR skipar fjóra aðal­menn í stjórn eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins, Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna.

Íslenskir lífeyrissjóðir tapað háum fjárhæðum á bræðrunum

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hafa í gegnum árin tapað miklum fjár­hæðum á við­skiptum í félögum tengdum Bakka­var­ar­bræðrum. Í úttekt sem gerð var á starf­semi líf­eyr­is­sjóð­anna í aðdrag­anda banka­hruns­ins og kynnt var í apríl 2012 kom fram að sjóð­irnir hefðu tapað sam­tals 170,9 millj­örðum króna á hluta­bréfum og skulda­bréfum sem útgefin voru af Existu og tengdum aðilum. Hlut­deild þess­ara aðila, sem voru aðal­lega Kaupþing, Exista og Bakkavör, í heild­ar­tapi líf­eyr­is­sjóð­anna vegna slíkra bréfa var 44 pró­sent.

Vegna stöðu Bakka­varar eftir hrunið var gerður nauða­samn­ingur milli Bakka­varar Group og kröfu­hafa þess félags í byrjun árs 2010.

[adspot]Í honum fólst að kröfu­hafar, að mestu leyti Arion banki og skulda­bréfa­eig­endur á borð við líf­eyr­is­sjóð­ina, tóku yfir félagið en bræðr­unum var gefið tæki­færi til að greiða kröfu­höf­unum til baka fyrir mitt ár 2014. Gengi það eftir myndu bræð­urnir fá 25 pró­senta eign­ar­hlut í Bakkavör.

Í upp­hafi árs 2012 var orðið aug­ljóst að for­sendur nauða­samn­ing­anna myndu ekki halda. Á þeim tíma gekk rekstur Bakka­varar erf­ið­lega og sam­þykkt var að breyta kröfum í hlutafé. Til að fá bræð­urna til að sam­þykkja þá aðgerð, sem ella hefðu getað haldið Bakkavör í her­kví fram á sum­arið 2014, var fall­ist á að leyfa þeim að kaupa fjórð­ungs­hlut í félag­inu.

Fjórð­ungs­hlut­inn fengu bræð­urnir að kaupa á fjóra millj­arða króna. Innra virði Bakka­varar miðað við eig­in­fjár­stöðu sam­stæð­unnar var um 20 millj­arðar króna og því ljóst að bræð­urnir voru að greiða minna en eina krónu fyrir hverja nafn­virð­is­krónu.

Næstu miss­eri juku þeir við hluti sína í Bakkavör, meðal ann­ars með því að flytja fé frá aflands­fé­lögum til Íslands í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands og kaupa hlutafé af íslenskum aðilum.

Þann 25.Janúar 2016 keypti síðan félag í eigu bræðr­anna 46 pró­sent hlut BG12 ehf., félags í eigu Arion banka, Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, Gildi líf­eyr­is­sjóðs, fleiri minni líf­eyr­is­sjóða og fag­fjár­festa, til bræðr­anna fyrir 147 millj­ónir punda. Það þýddi að áætlað heild­ar­verð­mæti félags­ins nam um 320 millj­ónum punda, eða um 60 millj­arðar íslenskra króna á þáver­andi gengi.

Vill fá að vita hvaða hlutverki ráðgjafar gegndu

Ragnar bendir á í pistli sínum að Í dag, rúm­lega einu og hálfu ári síðar, sé áætlað mark­aðsvirði Bakka­varar 1.030 til 1.500 millj­ónir punda eða 147 til 207 millj­arðar íslenskra króna. Bakkavör var skráð á markað í Bret­landi í nóv­em­ber og bræð­urnir gátu því selt hluta af eign sinni á mun hærra verði en þeir greiddu fyrir í byrjun síð­asta árs.

Ragnar segir: „Ef líf­eyr­is­sjóðir hefðu beðið eftir skrán­ingu félags­ins á markað hefði hlutur BG12 verið 68 til 95 millj­arða virði eða 3 til 5 sinnum hærra í pundum talið.

Hvað verður til þess að fyr­ir­tæki í rekstri eins og Bakkavör marg­faldi verð­gildi sitt með þessum hætti? Hvaða hlut­verki gegndu ráð­gjafar líf­eyr­is­sjóð­anna við sölu á þessum hlut og hvaða for­sendur lágu að baki fyrir söl­unni?“

Hann kallar því eftir að líf­eyr­is­sjóð­irnir fari fram á opin­bera rann­sókn. „Ef að sjóð­irnir hafa verið blekktir eða bræð­urnir leynt mik­il­vægum rekstr­ar­legum upp­lýs­ingum eða hagað bókum þannig að áhrifa gætti við verð­mat er um að ræða eitt stærsta fjársvika­mál Íslands­sög­unnar þar sem líf­eyr­is­sjóðir almenn­ings urðu af millj­arða tugum í við­skiptum við bræð­urna sem sitja báðum megin borðs í fyr­ir­tæk­inu, annar er for­stjóri en hinn stjórn­ar­for­maður, eitt­hvað sem hefði átt að hringja mörgum við­vör­un­ar­bjöllum stærstu eig­enda félags­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár