Dýrustu minkapelsar sögunnar

4. nóv­em­ber í fyrra til­kynnti for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur að allur danski minka­stofn­inn skyldi sleg­inn af. Hræ tæp­lega 17 millj­óna dýra voru urðuð í miklum flýti, í stað þess að brenna þau. Nú er verið að grafa hræin upp, og brenna, með ærnum til­kostn­aði.

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur.
Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur. Mynd: EPA

Í júní í fyrra greind­ist kór­óna­vírus á minka­búi á Norður-Jótlandi. Minkar eru sér­lega við­kvæmir fyrir alls kyns vírusum og því var talið full­víst að vírus­inn bær­ist yfir á önnur bú. Öllum dýrum á áður­nefndu búi var lógað en smitið barst út. 1. nóv­em­ber til­kynnti Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra á frétta­manna­fundi að allur stofn­inn, á öllum dönskum minka­búum, 15 – 17 millj­ónir, skyldu slegnir af. Þetta voru stór­tíð­indi. Í Danmörku voru rúm­lega eitt þús­und minkabú, langstærstur hluti þeirra á Norður- og Vestur- Jótlandi.

[links]Rekstur minka­bús er ekki mann­frekur, um þrjú þús­und manns unnu á þessum rúm­lega þús­und búum og annar eins fjöldi hafði atvinnu af störfum sem tengj­ast minka­eld­inu með einum eða öðrum hætti. Um þriðj­ungur allra seldra minka­skinna í heim­inum kom um ára­bil frá Danmörku, þau höfðu á sér gæða­stimpil. Fyrir örfáum árum voru minka­búin mun fleiri en breyttur tíð­ar­andi hefur valdið sam­drætti í þess­ari búgrein. Árið 2019 höfðu útflutn­ings­tekjur Dana af seldum minka­skinnum minnkað um 60% frá árinu 2013.

Á áður­nefndum frétta­manna­fundi sagði Mette Frederik­sen að engan tíma mætti missa, aflífun minka­stofns­ins þyldi enga bið. Daginn eftir, 5. Nóvember, hélt for­sæt­is­ráð­herr­ann annan frétta­manna­fund. Þar var til­kynnt að Norður- Jótlandi yrði „skellt í lás“ eins og ráð­herr­ann komst að orði. Ferðir frá og til þessa lands­hluta yrðu bann­aðar, skólum, öðrum en yngstu deildum, lokað. Mat­sölu­staðir, kaffi­hús, íþrótta­hús og bóka­söfn. Öllu skellt í lás.

Engin lagaheimild og ráðherra látinn fjúka

Skipun, eins og sú að lóga öllum minka­stofni lands­ins, þarf að styðj­ast við lög. Slík lög voru ekki til staðar, en voru hins­vegar sett eft­irá í miklum flýti. Mogens Jensen mat­væla- og land­bún­að­ar­ráð­herra neydd­ist til að segja af sér, fjöl­miðlar sögðu til að bjarga Mette Frederik­sen. Hún hefði hent honum fyrir stræt­is­vagn­inn (kastet ham under bus­sen). Síðar sagði Nick Hækkerup dóms­mála­ráð­herra að orð for­sæt­is­ráð­herra um að aflífa minka­stofn­inn hefðu verið til­mæli en ekki til­skipun. Stjórn­mála­skýrendur gáfu lítið fyrir þetta og sögðu það yfir­klór.

Urða eða brenna?

Það gekk hratt og vel fyrir sig að lóga mink­unum, sem reynd­ust sam­tals vera rúm­lega 15 millj­ónir tals­ins. Á frétta­manna­fundi for­sæt­is­ráð­herr­ans 5. Nóvember 2020 var spurt hvað yrði gert við hræ minkanna. Því var svarað til að komið hefði í ljós að brennslu­stöðvar gætu ein­ungis tekið við litlum hluta hræj­anna og ákveðið hefði verið að urða hræin á tveimur stöðum á Jótlandi. Grafnir voru skurðir sem hræj­unum var sturtað í og síðan mokað kalki yfir og jarð­vegi þar ofan á. Ef allt hefði verið með felldu hefðu mink­arnir hvílt þarna undir grænni torfu um ókomin ár. En sú varð ekki raunin. Eftir örfáa daga kom í ljós að jarð­veg­ur­inn sem mokað hafði verið yfir hræin var tek­inn að lyft­ast. Ástæðan var gas­myndun í hræj­unum, skurð­irnir að lík­indum of grunnir og jarð­vegslagið ofan á of þunnt.

[adspot]Ekki bætti úr skák að annar urð­un­ar­stað­ur­inn var nálægt litlu vatni, Boutrup Sø, vin­sælu úti­vist­ar­svæði. Samkvæmt fyr­ir­mælum máttu „minka­graf­irnar“ ekki vera nær vatn­inu en 300 metra en þeim fyr­ir­mælum var ekki fylgt. Þar sem urð­un­ar­svæðið var næst vatn­inu var fjar­lægðin aðeins 200 metrar. Varað var við meng­un­ar­hættu frá hræj­unum. Nú er komið í ljós að sá ótti var ekki ástæðu­laus, og það gildir líka um hinn urð­un­ar­stað­inn á Jótlandi.

Ákvarðanir teknar í skyndi

Minka­málið hefur margoft komið til kasta þings­ins enda að mörgu að hyggja. Í einu vet­fangi var fót­unum kippt undan heilli atvinnu­grein. Ákvörð­un­ina um að binda enda á minka­eldi í land­inu, hvernig ætti að bæta bændum tjónið, hvernig ætti að reikna út þær bætur og fleira og fleira. Allt þetta og margt fleira þurftu þing­menn að fjalla um og og ákveða.

Fáir efuð­ust um að ákvörðun um aflífun, að minnsta kosti hluta minka­stofns­ins, þurfti að ganga hratt fyrir sig, en aðrir töldu að kannski hefði ekki verið nauð­syn­legt að fella allan stofn­inn í land­inu. Rík­is­stjórnin vildi ekki bíða, taldi áhætt­una of mikla.

Umhverfisstofnunin dró rangar ályktanir

Eins og nefnt var hér að framan kom fram á frétta­manna­fundi 5. nóv­em­ber að sorp­brennsl­urnar í land­inu gætu ekki tekið við öllum minka­hræj­unum. Það hefði verið kannað og þess vegna væri urðun eina leiðin.

For­svars­menn margra sorp­brennslu­stöðva undr­ast þessar yfir­lýs­ingar. Kannast ein­fald­lega ekki við að haft hafi verið sam­band við þá til að spyrj­ast fyrir. Þeir eru jafn­framt ósáttir við að Rasmus Prehn mat­væla­ráð­herra (tók við af Mogens Jensen) hafi margoft sagt að sorp­brennsl­urnar hefðu ekki getað brennt minka­hræin. Og þannig reynt að varpa ábyrgð­inni á því að hræin voru urðuð á sorp­brennsl­una.

Mikkel Brandrup fram­kvæmda­stjóri Samtaka sorp­brennslu­fyr­ir­tækja sagð­ist í við­tali við Danska sjón­varpið, DR, skilja að ákvarð­anir um hvað gera skyldi hefðu verið teknar í flýti og nú væri komið í ljós að mis­tök hefðu verið gerð. Það væri hins­vegar ekki sæm­andi ráð­herra að varpa sök­inni á sorp­brennsl­urnar.

Frétta­menn Danska sjón­varps­ins komust yfir minn­is­blað sem Umhverf­is­stofn­unin sendi ráð­herr­anum varð­andi hugs­an­lega brennslu minka­hræj­anna. Þar stendur skýrum stöfum að mat Umhverf­is­stofn­unar, um að sorp­brennsl­urnar gætu ekki ráðið við að brenna hræin, væri byggt á svari frá einni sorp­brennslu.

Reikningur upp á milljarða

Þessa dag­ana er verið að grafa upp öll minka­hræin sem urðuð voru í fyrra­haust. „Urð­unaræv­in­týrið“ eins og danskur þing­maður komst að orði kostar ærið fé. Samtals nemur kostn­að­ur­inn jafn­virði 5.5 millj­arða íslenskra króna. Inni í þeirri tölu er urð­unin, upp­gröft­ur­inn og hreinsun jarð­vegs umhverfis urð­un­ar­stað­inn. Sér­fræð­ingar sem Danska sjón­varpið ræddi við telja að kostn­að­ur­inn við hreins­un­ina geti orðið mun meiri en gert er ráð fyrir í kostn­að­ar­á­ætlun stjórn­valda.

Tvær rannsóknir

Nú fara fram, á vegum danska þings­ins, tvær lög­fræði­legar rann­sóknir (advoka­tund­er­søgelser) vegna minka­máls­ins Önnur þeirra lýtur að ákvörð­un­inni um urð­un­ina en hin að þætti lög­regl­unnar. Sú rann­sókn bein­ist að því hver fyr­ir­skip­aði lög­regl­unni að hringja í bændur og fyr­ir­skipa að mink­unum skyldi lógað. Dóms­mála­ráð­herr­ann, sem er sá eini sem getur sagt lög­regl­unni fyrir verkum, kannski fyrir utan for­sæt­is­ráð­herr­ann, sagð­ist ekki hafa gefið lög­regl­unni slík fyr­ir­mæli. Ekki liggur fyrir hvenær þessum tveimur rann­sóknum lýkur.

Enginn veit heildarkostnaðinn

Enn er margt óljóst um end­an­legan kostnað þess að fella allan danska minka­stofn­inn. Hvernig á að meta húsa­kost og tekju­tap þeirra bænda sem skyndi­lega misstu lífs­við­ur­værið? Þetta og margt fleira er óupp­gert og því ljóst að danskir þing­menn hafa ekki sagt skilið við minka­málið. Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra sagði í við­tali að heild­ar­upp­hæð bóta myndi nema millj­örðum. Nokkrir þing­menn hafa nefnt 20 millj­arða (400 millj­arða íslenska) aðrir hærri tölur. Hver sem nið­ur­staðan verður er ljóst að um háar fjár­hæðir er að ræða. „Dýrustu minka­pelsar í sög­unni“ sagði einn sér­fræð­ingur í við­tali.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár