Hvað gera bændur nú?

Danskir (fyrr­ver­andi) minka­bændur eru í miklum vanda. Þeim hefur verið lofað bótum vegna þess að fella þurfti bústofn­inn en eng­inn veit hvenær þær bætur fást greiddar, meðan skuldir hrann­ast upp. Bank­arnir hafa lít­inn skiln­ing á vand­anum.

Milljónir minka hafa verið felldar í Danmörku síðustu vikur.
Millj­ónir minka hafa verið felldar í Danmörku síð­ustu vikur. Mynd: EPA

4. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn var örlaga­dagur í lífi danskra minka­bænda. Þann dag skýrði Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra frá því að allir minkar á öllum minka­búum í Danmörku skyldu slegnir af. Ástæðuna sagði ráð­herr­ann þá að nýtt afbrigði kór­ónu­veirunnar hefði greinst í minkum, afbrigði sem hugs­an­lega væri ónæmt fyrir bólu­efni, sem unnið er að víða um heim. Þess vegna væri ákvörð­unin um aflífun alls minka­stofns­ins í land­inu, 15- 17 millj­ónir dýra, nauð­syn­leg og engan tíma mætti missa. Og nú hefur nær allur danski minka­stofn­inn verið felldur.

Þetta minka­mál, eins og það er kallað, hefur verið eitt alls­herjar klúður frá upp­hafi. Meðal ann­ars var mat­væla- og land­bún­að­ar­ráð­herr­ann, Mogens Jensen, lát­inn fjúka. Klúð­urs­sagan, sem örugg­lega er ekki lokið, verður ekki rakin hér en benda má á pistil sem birt­ist hér í Kjarn­anum 29.11 undir heit­inu „Minka­klúðrið“.

[adspot]

Þungt högg

Á áður­nefndum örlaga­degi, 4. nóv­em­ber, var fót­unum skyndi­lega kippt undan starf­semi um það bil þús­und minka­búa. Störf á búunum voru um það bil þrjú þús­und og annar eins fjöldi hefur haft atvinnu við ýmis störf sem tengj­ast minka­eld­inu með einum eða öðrum hætti. Með yfir­lýs­ingu for­sæt­is­ráð­herr­ans hvarf lífs­við­ur­værið, líkt og hendi væri veifað.

Þótt höggið væri þungt fyrir starfs­fólk búanna og þeirra sem höfðu vinnu þeim tengda var höggið þó lang­þyngst fyrir eig­endur búanna. Eig­end­urnir eru í lang­flestum til­vikum bænd­urnir sjálfir og mörg búanna hafa verið í eigu sömu fjöl­skyldna í ára­tugi. Danir hafa um lagt ára­bil verið í hópi stærstu minka­skinns­fram­leið­enda heims, með tæp­lega þriðj­ung heims­fram­leiðsl­unnar, og dönsk minka­skinn haft á sér gæða­stimpil.

Verð á minka­skinnum hefur sveifl­ast mikið á und­an­förnum árum en eftir mikla upp­sveiflu á árunum 2011- 2013 hefur það lækkað mikið. Það segir sína sögu að útflutn­ings­tekj­urnar árið 2019 voru innan helm­ingur þess sem þær voru árið 2013. Afkoma minka­bænda hefur af þessum sökum versnað mjög og margir þeirra hafa átt mikið undir vel­vild lána­stofn­ana.

Tjónið yrði bætt

Þegar til­kynnt var að allur danski minka­stofn­inn yrði sleg­inn af vökn­uðu strax ótal spurn­ingar. Ein þeirra, og ekki sú létt­væg­asta var: hvernig verður gríð­ar­mikið tjón bænda bætt? Þegar frétta­menn vörp­uðu fram þess­ari spurn­ingu á upp­lýs­inga­fundi for­sæt­is­ráð­herra var Mette Frederik­sen fljót til svars: Tjón bænda yrði bætt. Bætti svo við að þar væri í mörg horn að líta og þess vegna tæki nokkurn tíma að „reikna það dæmi“, eins og ráð­herr­ann komst að orði.

Og hornin eru vissu­lega mörg. Fyrir utan beint tjón vegna slátr­unar dýr­anna á búunum þarf að meta húsa­kost og tæki, sömu­leiðis þarf að meta tekju­tap margra næstu ára. Þótt sumir minka­bændur vilji kannski end­ur­reisa búin líður langur tími áður en búskap­ur­inn fer að skila tekjum á ný. Þetta og ýmis­legt fleira þarf að leggja mat á varð­andi bóta­upp­hæð­ina.

Á áður­nefndum upp­lýs­inga­fundi sagði Mette Frederik­sen að ljóst væri að upp­hæð bót­anna myndi hlaupa á millj­örðum. Í við­tölum við fjöl­miðla hafa nokkrir þing­menn nefnt 20 millj­arða (408 millj­arða íslenska) en fram hefur komið að ágrein­ingur er meðal þing­manna um aðferð­irnar við reikna út bæt­urnar, sumir vilja miða við með­al­tekjur síð­ustu 10 ára og borga sam­kvæmt því 10 ár fram í tím­ann, aðrir vilja ein­greiðslu­leið.

Enginn veit hvenær bændur fá greitt

Eins og fyrr var getið lýsti Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra því yfir á „örlaga­deg­inum“ 4. nóv­em­ber að bændum yrðu greiddar bætur. Hún sagði jafn­framt að málið væri flókið og útreikn­ingur bóta gæti tekið nokkurn tíma. Minka­bóndi sem dag­blaðið Politi­ken ræddi við þennan dag sagði að lof­orð for­sæt­is­ráð­herra væri mik­ils virði en hann hefði áhyggjur af því að langan tíma tæki að reikna út bæt­urnar. „Það tekur ekki langan tíma að fella minka­stofn­inn, en fram­haldið verður örugg­lega tíma­frekara“. Þessi bóndi virð­ist ætla að reyn­ast sann­spár.

Málið er flókið. Fyrst þarf danska þingið, Fol­ket­inget, að ná sam­komu­lagi um upp­hæðir og fyr­ir­komu­lag sem ekki er víst að reyn­ist auð­velt. Þegar slíkt sam­komu­lag liggur fyrir þarf að leggja það fyrir fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins. Hún þarf að leggja blessun sína yfir ákvarð­anir danskra stjórn­valda. Innan ESB gilda strangar reglur um rík­is­styrki og svo­nefndar ofgreiðslur. Það er að segja að ekki séu borg­aðar bætur sem séu hærri en eðli­legt og rétt­mætt geti talist. Þegar danskir frétta­menn spurðu hvenær búast mætti við að reglur um upp­hæðir og greiðslu­fyr­ir­komu­lag lægju fyrir fengu þeir þau svör að því væri ekki hægt að svara.

Bændur í vanda en bankarnir hafa litla biðlund

Á meðan „bóta­málið“ er til með­ferðar, hjá danska þing­inu og síðan ESB ger­ist fá minka­bændur ekk­ert greitt. Það veldur þeim þungum áhyggjum. Lágt verð á minka­skinnum á síð­ustu árum hefur þýtt erf­ið­leika í búrekstr­inum og margir bændur skuldum vafnir. Nú hrann­ast ógreiddir reikn­ingar upp. Allir vilja fá borgað en bændur hafa enga sjóði að leita til.

Margar lána­stofn­anir eiga mikið fé útistand­andi hjá bændum, neita frek­ari lánum og krefj­ast greiðslna frá bænd­unum „sem ekki vita sitt rjúk­andi ráð“ eins og Tage Pedersen for­maður sam­taka minka­bænda komst að orði í við­tali við danska útvarpið. Hann segir það und­ar­legt að bank­arnir geti ekki sýnt bið­lund á meðan beðið er eftir bóta­greiðsl­unum. Margir þing­menn hafa tekið undir þessi orð.

Bændur sem danskir fjöl­miðlar hafa rætt við segja að ef ekk­ert ger­ist á allra næstu dögum blasi algjört þrot við og margir missi sitt í hendur bank­anna. „Allur sand­ur­inn er runn­inn úr stunda­glas­inu,“ sagði einn þeirra í við­tali við Jót­land­s­póst­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár