Sautján milljón minkar slegnir af

Þessa dag­ana er verið að lóga öllum minkum á dönskum minka­búum, um 17 millj­ónum tals­ins. Ástæðan er nýtt afbrigði kór­ónu­veiru, sem þegar hefur borist í menn. Óttast er að vænt­an­legt bólu­efni virki ekki á veiruna.

Dönskum minkabændum hefur verið gert að lóga öllum sínum dýrum.
Dönskum minka­bændum hefur verið gert að lóga öllum sínum dýrum. Mynd: EPA

Fyrir tæpum fimm mán­uðum fund­ust kór­óna­smit­aðir minkar á búi á Norður-Jótlandi. Yfirvöld fyr­ir­skip­uðu að öllum dýrum á við­kom­andi búi skyldi lógað. Fljót­lega kom í ljós að smit var komið í dýr á fleiri búum á Norður-Jótlandi og einnig á Vestur-Jótlandi. Á þeim búum voru öll dýr aflífuð. Á þessum tíma greind­ist einnig smit í fólki á Norður-Jótlandi.

7. júlí til­kynntu stjórn­völd að smit­uðum dýrum skyldi ekki lógað. Þess í stað skyldu allar umgengn­is­reglur á búum þar sem smit fynd­ist hertar. Skylt yrði að bera grímu, nota hanska og spritt ásamt reglum um hlífð­ar­búnað. Áður en þessar ákvarð­anir voru til­kynntar höfðu dýr á 125 búum verið skimuð og hvergi fund­ist smit.

4. sept­em­ber greindi dag­blaðið Information frá því að í áhættu­mats­skýrslu Dönsku rann­sókn­ar­stofn­un­ar­innar, Statens Serum Institut (SSI) komi fram að sér­stakt afbrigði kór­óna­veirunnar (sær­lig minkvari­ant) hafi breiðst út til fólks á Norður-Jótlandi. Og einnig til Borg­und­ar­hólms og Króatíu. Þetta afbrigði veirunnar fannst einnig á þremur minka­búum þar sem smit hafði greinst í júní. Skýrslan var send sótt­varna­yf­ir­völdum. Tveimur vikum síðar, 16. sept­em­ber kom fram í minn­is­blaði SSI til Mogens Jensen mat­væla­ráð­herra að þetta „nýja“ afbrigði hefði fund­ist í minkum og fólki á sex minka­búum á Norður- og Vestur-Jótlandi. Nauð­syn­legt væri að grípa til var­úð­ar­ráð­staf­ana, einkum skimunar. Þess má geta að stærstur hluti danskra minka­búa, sem eru rúm­lega eitt þús­und tals­ins, er í þeim lands­hluta.

Mikil alvara á ferðum

18. sept­em­ber skrif­uðu sér­fræð­ingar SSI og Hafn­ar­há­skóla mats­skýrslu um ástandið. Í henni sagði að áhrif „nýja“ afbrigð­is­ins gætu orðið til þess að ekki myndi nást hjarð­ó­næmi og bólu­efni virki ekki. Og aug­ljóst virð­ist, segir í skýrsl­unni, að þetta „nýja“ afbrigði geti myndað smit­keðjur meðal íbúa lands­ins. Fimm dögum síðar hélt mat­væla­ráð­herra fund með sér­fræð­ingum þar sem reynt var að meta stöð­una. Allir voru sam­mála um að staðan væri alvar­leg, mjög alvar­leg.

Hættulegra að vera minkabóndi en heilbrigðisstarfsmaður

Á fyrsta degi októ­ber­mán­aðar hafði rík­is­stjórnin skipt um kúrs. Á frétta­manna­fundi þann dag til­kynnti Mogens Jensen ráð­herra mat­væla­mála að minkar á smit­uðum búum skyldu aflífaðir, það var við­snún­ingur frá 7. júlí. Ráð­herr­ann sagði að um væri að ræða rúm­lega eina milljón minka á um það bil 100 búum. Smit hefðu greinst á rúm­lega 40 búum og ekki væri á neitt hætt­andi. Kåre Mølbak, einn yfir­manna SSI, sagði að nú væri hættu­legra að vera minka­bóndi en heil­brigð­is­starfs­maður. Á fund­inum kom fram að öll búin þar sem smit hefði greinst væru á Norður-Jótlandi.

13. októ­ber sagði Anders Foms­gaard yfir­lækni frá því í sjón­varps­fréttum DR, danska útvarps­ins, að það bólu­efni sem nú væri unnið að víða um heim, myndi hugs­an­lega reyn­ast gagns­laust í bar­átt­unni við „nýja“ afbrigðið. „Áhyggju­efni er að „nýja“ afbrigðið nái útbreiðslu í sam­fé­lag­inu og þá er illt í efni.“

Í fyr­ir­spurna­tíma í danska þing­inu, Fol­ket­inget, 26. októ­ber sagði Mogens Jensen að aukin útbreiðsla „nýju“ veirunnar (cluster 5) í minkum ylli áhyggjum og ótta. Sér í lagi áhyggjum vegna hugs­an­legra áhrifa á heilsu­far almenn­ings eins og ráð­herr­ann komst að orði. Þegar hann var spurður um aðgerðir sagði ráð­herr­ann að við þeim mætti búast ein­hvern næstu daga. Sú varð líka raunin.

Skipað að skera allt niður

Mið­viku­dag­inn 4. nóv­em­ber boð­aði Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra til frétta­manna­fundar. Flogið hafði fyrir að þar mættu minka­bændur búast við alvar­legum tíð­indum, eins og kom á dag­inn.

Mette Frederik­sen sagði að stjórn­völd hefðu ákveðið að allur minka­stofn á öllum búum lands­ins skyldi felldur. „Þetta er stór og sárs­auka­full ákvörðun, en því miður nauð­syn­leg. Við eigum ekki um neitt að velja“ sagði ráð­herr­ann. Hún sagði að sam­tals væri um að ræða 17 milljón minka á rúm­lega eitt þús­und búum. Mette Frederik­sen sagði jafn­framt að grípa þyrfti til fleiri aðgerða, sem til­kynntar yrðu á næstu tveimur til þremur dögum.

Norður-Jótlandi nánast skellt í lás

5. nóv­em­ber, dag­inn eftir að danski for­sæt­is­ráð­herr­ann hafði fyr­ir­skipað að öllum dýrum á öllum minka­búum lands­ins skyldi lógað, fengu Danir fleiri fréttir. Á frétta­manna­fundi þann dag sagði Mette Frederik­sen að segja mætti að Norður-Jótlandi verði skellt í lás. „Strax í kvöld.“ Ráð­herr­ann sagði stjórn­völd mæl­ast til þess að íbúar sjö sveit­ar­fé­laga á Norður-Jótlandi haldi sig innan sveit­ar­fé­lags­ins, nema brýna nauð­syn beri til. Jafn­framt ferð­ist engir utan­að­kom­andi til þess­ara sjö sveit­ar­fé­laga.

Öll kaffi­hús verða lokuð, sömu­leiðis barir. Mat­sölu­stöðum verður ein­göngu heim­ilt að afgreiða heim­töku­mat (takeaway) en verða að öðru leyti lok­aðir. Almenn­ings­sam­göngur liggja niðri, nema skól­ar­útur og nem­endur í efri bekkjum grunn­skóla fá ein­ungis fjar­kennslu. Sama gildir um nem­endur á hærri skóla­stigum. Íþrótta­hús, kvik­mynda­hús, bóka­söfn, sund­laugar, skemmti­garðar, sam­komu­hús, dýra­garðar o.s.frv. Allt lokað. Fyr­ir­tæki og stofn­anir eru hvött til að láta starfs­menn vinna heima eins og kostur er.

Yfirvöld hafa mælst til þess að allir íbúar sveit­ar­fé­lag­anna sjö fari í skimun. Það verður gert eftir til­teknu skipu­lagi og hófst reyndar í gær (laug­ar­dag). Reiknað er með að skimun allra íbúa á þessu svæði, sem eru sam­tals um 280 þús­und, taki tíu til tólf daga.

Að Norður-Jótlandi skuli skellt í lás hefur marg­vís­leg áhrif. Á svæð­inu eru mörg stór fyr­ir­tæki sem reiða sig á greiðar sam­göngur og flutn­inga­kerfi. Þar að auki kemur margt starfs­fólk fyr­ir­tækja á svæð­inu frá öðrum sveit­ar­fé­lögum, þetta á ekki síst við um ýmiss konar fram­leiðslu­fyr­ir­tæki, þar sem ekki er hægt að sinna störfum að heiman. Allt skapar þetta margs konar vanda­mál, sem óljóst er hvernig á að leysa.

Engin viðbrögð þrátt fyrir margar viðvaranir

Í dag­blað­inu Politi­ken birt­ist í gær, laug­ar­dag, löng umfjöllun um við­brögð eða rétt­ara sagt skort á við­brögðum. Í umfjöllun blaðs­ins kemur fram að þrátt fyrir ítrek­aðar við­var­anir úr mörgum áttum á und­an­förnum mán­uðum gerð­ist lítið. Til dæmis hafði verið bent á að nauð­syn­legt væri að skima starfs­fólk minka­bú­anna. Ekki síst í ljósi þess að um helm­ingur alls starfs­fólks á búunum er frá Austur-Evrópu og ferð­ast gjarna til heima­lands­ins í fríum. Nákvæm­lega þetta atriði veldur nú miklum áhyggjum. Sömu­leiðis hafði verið bent á að fólk sem starfar við að flá dýr sem aflífuð hafa verið fer gjarna á milli búa og slíkt bjóði smit­hætt­unni heim.

Gögnin sem Politi­ken hefur undir höndum sýna að minka­bændur og starfs­fólk á búum þeirra sinnti lítt um var­úð­ar­ráð­staf­anir. Einn bóndi sagði að margir hefðu litið á ábend­ingar um spritt, grímur og fleira þess háttar sem til­mæli en ekki skip­anir.

Mogens Jensen mat­væla­ráð­herra hefur und­an­farna daga sætt mik­illi gagn­rýni fyrir að bregð­ast seint og illa við. Ráð­herr­ann hefur sagt að hann hafi í einu og öllu fylgt ráð­legg­ingum sér­fræð­inga. Politi­ken bendir í umfjöllun um málið á að það var Mette Frederik­sen sem til­kynnti um hinar ströngu aðgerðir. „Tengdi hún fram hjá Mogens Jensen“ spyr blaðið og bendir í leið­inni á að for­sæt­is­ráð­herr­ann njóti mik­ils trausts á Jótlandi.

Mikið efnahagslegt tjón

Á síð­ustu árum hefur dönskum minka­búum fækkað. Fyrir því eru einkum tvær ástæður: tíð­ar­and­inn hefur breyst, sam­tökum sem vinna að vel­ferð dýra, minka þar með tal­inna, hefur vaxið ásmegin sem þýðir að sala á skinnum hefur minnkað. Þótt verð á minka­skinnum hafi ætíð sveifl­ast hefur það und­an­farið verið mjög lágt og það hefur mikil áhrif á afkomu bænda.

Danir hafa um margra ára skeið verið stærstu fram­leið­endur minka­skinna í heim­inum en í all­mörgum löndum hefur minka­bú­skapur verið aflagður á síð­ustu árum. Á síð­asta ári voru dönsk minka­skinn tæpur þriðj­ungur allra selda skinna í heim­inum.

Útflutn­ings­tekjur Dana vegna sölu á minka­skinnum námu á síð­asta ári um það bil 5 millj­örðum danskra króna (110 millj­arðar íslenskir) en til sam­an­burðar má nefna að árið 2013 voru útflutn­ings­tekj­urnar rúmir 12 millj­arðar danskra króna.

Á dönskum minka­búum starfa um það bil 3 þús­und manns. Annar eins fjöldi vinnur störf sem tengj­ast minka­búum með einum eða öðrum hætti. Því er ljóst að efna­hags­á­hrifin eru umtals­verð „og var nú ekki á bæt­andi“ svo notuð séu orð Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár