Engin formleg gögn til um afhendingu skýrslu til Morgunblaðsins og Fréttablaðsins

Kjarninn fal­að­ist eftir því að fá gögn um sam­skipti starfs­manna ráðu­neytis við blaða­menn Morg­un­blaðs­ins og Frétta­blaðs­ins vegna skýrslu sem þessir miðlar fengu afhenta en Kjarn­anum var synjað um. Engin form­leg gögn eru til, segir ráðu­neytið.

Skýrslan var kynnt á blaðamannafundi 12. maí. Hér sjást Sveinn Agnarsson, ritstjóri skýrslunnar, og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Skýrslan var kynnt á blaða­manna­fundi 12. maí. Hér sjást Sveinn Agn­ars­son, rit­stjóri skýrsl­unnar, og Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Stjórnarráðið

Engin form­leg gögn eru til í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu um sam­skipti starfs­manna ráðu­neyt­is­ins við Morg­un­blaðið og Frétta­blaðið vegna skýrslu sem sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra kynnti fyrr í mán­uð­inum. Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans, sem lögð var fram í ljósi þess að blaða­maður Kjarnans fékk skýrsl­una ekki afhenta þrátt fyrir að hafa óskað sér­stak­lega eftir henni.

Beiðni Kjarnans afhend­ingu skýrsl­unnar barst til ráðu­neyt­is­ins degi fyrir kynn­ingu efnis hennar og var hafnað, en umfjall­anir voru þó um efni skýrsl­unnar bæði í Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu degi síðar, sama dag og hún var tekin til kynn­ingar.[links]

Skýrslan fjallar um stöðu og horfur í íslenskum sjáv­ar­út­vegi og fisk­eldi og var hennar getið í dag­skrá rík­is­stjórn­ar­fundar þriðju­dag­inn 11. maí. Kjarninn fal­að­ist í kjöl­farið eftir því að fá skýrsl­una afhenta, en fékk neitun, sem áður segir.

Misskilningur og mistök

„Mis­skiln­ingur olli því að Kjarninn fékk skýrsl­una afhenta sól­ar­hring seinna en aðrir miðlar. Þegar ljóst var að mis­tök höfðu verið gerð var ákveðið að senda skýrsl­una út fyrir fund­inn og [gera] aðgengi­lega á vef ráðu­neyt­is­ins,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins til Kjarnans, en þar er einnig rifjað upp að Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra baðst afsök­unar á því hvernig skýrslan fór í dreif­ingu, á blaða­manna­fundi sem hann hélt um efni hennar 12. maí.

[adspot]

„Áður en við byrjum fund­inn þá vil ég geta þess hér að það voru mis­tök gerð við birt­ingu skýrsl­unnar sem mér þykir afskap­lega leitt því að inni­hald og efn­is­tök skýrsl­unnar eru með þeim hætti að hún á erindi við alla og því betur sem að hún er kynnt þeim mun betra fyrir allt og alla. Mér er hvoru tveggja ljúft og skylt að biðj­ast afsök­unar á þessum leiðu mis­tökum og vona að við drögum lær­dóm af þeim,“ sagði Kristján Þór.

Kjarninn óskaði eftir því að fá afhent öll sam­skipti starfs­manna ráðu­neyt­is­ins við blaða­menn Morg­un­blaðs­ins og Frétta­blaðs­ins frá rík­is­stjórn­ar­fundi á þriðju­dags­morgni fram til mið­nættis þann sama dag. Þarna var átt við sím­töl, tölvu­póst­sam­skipti og eftir atvikum sam­skipti á öðrum mögu­legum miðlum, eins og sam­skiptar­ásum sam­fé­lags­miðla.

Svar ráðu­neyt­is­ins er sem áður segir, að engin form­leg gögn séu til í ráðu­neyt­inu um sam­skipti við blaða­menn þess­ara miðla önnur en boð á blaða­manna­fund, sem sent var á flesta fjöl­miðla. Það liggur því ekki ljóst fyrir í hverju þau „mis­tök“ sem ráðu­neytið játar að hafi verið gerð við birt­ingu skýrsl­unnar fel­ast nákvæm­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár