„Mér er hvoru tveggja ljúft og skylt að biðjast afsökunar á þessum leiðu mistökum“

Kjarninn óskaði eftir að fá afhenda skýrslu um stöðu og horfur í íslenskum sjáv­ar­út­vegi í gær en fékk þau svör frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu að ekki væri hægt að verða við þeirri bón. Bæði Morg­un­blaðið og Mark­að­ur­inn fengu skýrsl­una í gær.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Áður en við byrjum fund­inn þá vil ég geta þess hér að það voru mis­tök gerð við birt­ingu skýrsl­unnar sem mér þykir afskap­lega leitt því að inni­hald og efn­is­tök skýrsl­unnar eru með þeim hætti að hún á erindi við alla og því betur sem að hún er kynnt þeim mun betra fyrir allt og alla. Mér er hvoru tveggja ljúft og skylt að biðj­ast afsök­unar á þessum leiðu mis­tökum og vona að við drögum lær­dóm af þeim.“

Þannig hóf Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, mál sitt á opnum streym­is­fundi í dag þar sem hann kynnti skýrslu um stöðu og horfur í íslenskum sjáv­ar­út­vegi og fisk­eldi. Skýrslan var tekin saman að beiðni ráð­herra en hún inni­heldur „ítar­lega umfjöllun um núver­andi stöðu sjáv­ar­út­vegs- og fisk­eldis og áskor­anir og tæki­færi til fram­tíðar“.

[adspot]

Kjarninn sendi upp­lýs­inga­full­trúa atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins fyr­ir­spurn í gær þar sem blaða­maður óskaði eftir því að fá skýrsl­una afhenda fyrir fund­inn. Í svari ráðu­neyt­is­ins kom fram að skýrslan lægi ekki fyrir á þeim tíma­punkti en yrði aðgengi­leg eftir kynn­ing­ar­fund­inn. Óskaði blaða­maður eftir því í fram­hald­inu að fá skýrsl­una gegn lof­orði um að segja ekk­ert frá henni fyrr en að fundi loknum. „Mér heyr­ist ekki því miður,“ var svarið frá ráðu­neyt­inu.

Umfjöllun um skýrsl­una birt­ist aftur á móti í morgun á for­síðu Morg­un­blaðs­ins og í við­skipta­kálfi Frétta­blaðs­ins. Er ráð­herra vænt­an­lega að vísa í afsök­un­ar­beiðni sinni í það að sumir fjöl­miðlar fengu skýrsl­una á undan öðrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár