Segir Ísland geta orðið „einhvers konar tilraunasetur fyrir framtíðina“

Frum­kvöð­ull­inn og millj­arða­mær­ing­ur­inn Davíð Helgason flytur til Íslands í sumar og ætlar að fjár­festa í fyr­ir­tækj­unum sem vinna gegn lofts­lags­vand­anum. Að hans mati er margt sem gerir landið að góðum fjár­fest­ing­ar­kosti.

Davíð Helgason, einn stofnenda og fyrrum forstjóri Unity.
Davíð Helgason, einn stofn­enda og fyrrum for­stjóri Unity. Mynd: Saga Sig.

Davíð Helgason, einn stofn­enda og fyrrum for­stjóri hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Unity, segir mikið hug­vit og hreina orku­fram­leiðslu gera Ísland að álit­legum fjár­fest­ing­ar­kosti. Að hans mati væri hægt að fram­kvæma til­raunir hér­lendis tengdar fram­tíð­ar­nýt­ingu á orku, þar sem raf­magnið sé nokkurn veg­inn búið til án þess að losa kolefni.

Þetta sagði Davíð í ítar­legu við­tali í vor­hefti Vís­bend­ingar, sem kom út síð­asta föstu­dag. Í við­tal­inu var farið yfir reynslu hans sem frum­kvöð­uls, árangur hjá Unity og áform hans um að flytja til Íslands og fjár­festa í fyr­ir­tækjum sem vinna að lausnum gegn lofts­lags­vand­anum.

Gat ekki annað gert en að fjárfesta í sprotum

Á síð­ustu árum hefur Davíð ein­beitt sér að fjár­fest­ingum í sprota­fyr­ir­tækjum. Aðspurður hvers vegna hann hafi ákveðið að gera það segir Davíð það vera bæði vegna reynslu og áhuga. „Ég kann svo­lítið á að stofna tækni­fyr­ir­tæki og hef gaman af ferl­inu í kringum það og fólk­inu sem stofnar fyr­ir­tækin. Ég gat eig­in­lega ekki annað en að gera það.“

Þessa stund­ina vinnur hann svo að stofnun nýs fjár­fest­ing­ar­sjóðs með bróður sínum, Ara Helga­syni, en þeir hyggj­ast báðir að flytja til Íslands í sumar. Samkvæmt Davíð er margt enn óút­fært í þeim efnum, en hann segir þó að áformin séu meira en bara vanga­veltur og að meiri upp­lýs­ingar muni koma í ljós þegar nær dregur.

Hugvit og hrein orka gera Ísland aðlaðandi

Samkvæmt honum er margt sem gerir Ísland að álit­legum fjár­fest­ing­ar­kosti, þar sem hér sé fullt af hug­viti og nóg af fólki að gera áhuga­verða hluti. „Það er líka fínn áhugi á fyr­ir­tækjum sem tengj­ast lofts­lags­breyt­ingum og við höfum verið að tala við nokkur þeirra um það,“ bætir hann við.

„Ísland er auð­vitað sér­stakt land að því leyti að raf­magnið er nokkurn veg­inn búið til án þess að losa kolefni, svo ég held að landið geti orðið ein­hvers konar til­rauna­setur fyrir fram­tíð­ina,“ segir hann einnig. Hér sé hægt að prófa hvernig heim­ur­inn verður, þar sem önnur lönd stefna einnig á jafn­hreina orku­fram­leiðslu.

„Ég held að það sé fullt af fólki sem vill koma til Íslands og vinna þar,“ bætir Davíð við og segir að hann og bróðir hans vilji fá gott fólk með sér hingað til lands, bæði Íslend­inga og útlend­inga, til að vinna í umhverf­is­málum.

Hægt er að lesa við­talið við Davíð í heild sinni með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár