Vorblað Vísbendingar er komið út

Vís­bend­ing hefur gefið út sér­stakt vor­blað þar sem nýsköpun er í brennid­epli. Blaðið er opið öllum, en í því má meðal ann­ars finna við­tal við Davíð Helgason, stofn­anda Unity.

Davíð Helgason, stofnandi og fyrrum forstjóri Unity.
Davíð Helgason, stofn­andi og fyrrum for­stjóri Unity. Mynd: Saga Sig.

Sérstök vor­út­gáfa viku­rits­ins Vís­bend­ingar, sem er opin öllum, kom út síð­asta föstu­dag. Hægt er að lesa blaðið í heild sinni með því að smella hér.

Í blað­inu er sjónum beint sér­stak­lega að stöðu nýsköp­unar, sprota­starf­semi og tækni­fyr­ir­tækja hér­lendis og hugs­an­legum leiðum til að bæta hana. Þar má meðal ann­ars finna við­tal við Davíð Helgason, stofn­anda Unity, um frum­kvöðla­starf­semi, leikja­fram­leiðslu og sprota­fjár­fest­ingar.

Einnig skrifa þar Steinunn Braga­dóttir og Finnborg S. Stein­þórs­dóttir hjá Fem­inískum fjár­málum um kynja­halla í fjár­fest­ingum í nýsköpun og Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við HÍ, um iðn­að­ar­stefnu fyrir Ísland.

Þá má líka finna svör þing­manna úr öllum stjórn­mála­flokk­unum á alþingi um það hvernig hið opin­bera ætti að stuðla að vexti nýsköp­unar hér­lendis á næstu árum, auk þess sem lagt er mat á nýlegar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar.

Fjár­mögnun sprota­fyr­ir­tækja og staða vís­i­sjóða á tímum COVID er einnig til umfjöll­unar í blað­inu, sem og grein um mik­il­vægi nýsköp­unar til þess að bregð­ast við lofts­lags­vand­anum. Einnig er fjallað um stöðu hug­verka­iðn­aðar í íslensku hag­kerfi og svo er lær­dómur dregin af banda­rísku sýsl­unni King County sem stjórnar meiri­hluta allrar skýja­þjón­ustu heims­ins.

Vís­bend­ing er viku­rit um við­skipti, efna­hags­mál og nýsköpun sem kemur út á föstu­dögum. Hægt er að ger­ast áskrif­andi að rit­inu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár