Fjöldi farsímaáskrifta dróst saman á Íslandi í fyrsta sinn frá 1994

Síminn er með mesta mark­aðs­hlut­deild á íslenskum far­síma­mark­aði en Nova var eina fjar­skipta­fyr­ir­tækið á meðal þeirra þriggja stóru sem fjölg­aði áskrif­endum milli ára. Litíl fyr­ir­tæki á mark­aðnum, sem deila fjögur pró­sent hlut­deild, hafa aukið umsvif sín.

Alls voru 475.842 far­síma­á­skriftir skráðar hjá íslenskum fjar­skipta­fyr­ir­tækjum í lok síð­asta árs. Það er 303 áskriftum færri en voru skráðar ári áður. Í fyrsta sinn frá því að GSM-sím­inn hóf mæl­an­lega inn­reið sína inn á íslenskan fjar­skipta­markað árið 1994 fækk­aði því far­síma­á­skriftum milli ára.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri töl­fræði skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um fjar­skipta­mark­að­inn sem sýnir stöð­una í lok árs 2020.

Að sama skapi tvö­fald­að­ist fjöldi svo­kall­aðra tæki í tæki áskrifta (e. M2M). Þær voru um 54 þús­und í lok árs 2019 en 112 þús­und um síð­ustu ára­mót.

Minnstu fyrirtækin að bæta mestu við sig

Á Íslandi eru þrjú fjar­skipta­fyr­ir­tæki; Síminn, Nova og Vodafone (sem til­heyrir Sýn-sam­stæð­unni) sem eru sam­an­lagt með 96,1 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði.

Einungis eitt þeirra, Nova, fjölg­aði við­skipta­vinum sínum á mark­aðnum á árinu 2020, ein þeim fjölg­aði þó ein­ungis um átta. Mark­aðs­hlut­deild Nova stóð því nán­ast í stað en hún var 32,9 pró­sent í lok síð­asta árs.

[adspot]Síminn, stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins, tap­aði 2.207 áskriftum milli ára og eru nú 173.788 tals­ins. Mark­aðs­hlut­deild Símans er nú 36,5 pró­sent og dróst saman um 0,5 pró­sentu­stig milli ára.

Vodafone tap­aði sömu­leiðis nokkrum fjölda áskrifta og mark­aðs­hlut­deilt fyr­ir­tæk­is­ins dróst saman um 0,5 pró­sentu­stig. Hún var 26,7 pró­sent um síð­ustu ára­mót.

Þegar horft er lengra aftur í tím­ann, til loka árs 2018, getur Síminn vel við unað. Hann er eina stóra fjar­skipta­fyr­ir­tækið sem hefur bætt við sig áskriftum frá þeim tíma, eða 3.467 tals­ins. Á sama tíma hefur áskriftum hjá Nova fækkað um 2.089 og hjá Vodda­fone um 7.150.

Aðrir aðilar á mark­aði, þeir sem skipta nú á milli sín tæp­lega fjögur pró­sent mark­aðs­hlut­deild, hafa þó bætt mestu við sig á síð­ustu tveimur árum. Fjöldi áskrifta sem eru ekki hjá stóru þremur hefur farið úr 11.420 í 18.371. Það er aukn­ing upp á 60 pró­sent á tveggja ára tíma­bili. Í því mengi er fjar­skipta­fyr­ir­tækið Hringdu fyr­ir­ferð­ar­mest.

Úr rúmlega tvö þúsund í tæpa hálfa milljón

Fyrsta aðgengi­lega töl­fræði­skýrsla Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um fjar­skipta­mark­að­inn kom út árið 2005. Þar voru birtar tölur um fjölda skráðra GSM-áskrifta aftur til árs­ins 1994, þegar þær voru 2.119 tals­ins. Næstu árin fjölg­aði þeim jafnt og þétt og voru orðnar 284.521 árið 2005.

[links]Með snjall­síma­bylt­ing­unni, sem kom til eftir að fyrsti iPhone-inn var kynntur til leiks sum­arið 2007, breyt­ist hlut­verk sím­ans umtals­vert og hann fór að nýt­ast í mun fleiri hluti en áður. Nú til dags er þessi litla tölva í vasa okkar flestra helsta tækið sem notað er til að nálg­ast afþr­ey­ingu, sam­fé­lags­miðla og fréttir. Hún er auk þess mynda­vél, halla­mál, veð­ur­fræð­ingur, nær­ing­ar­ráð­gjafi og ýmis­legt annað.

Árið 2007 var heild­ar­fjöldi GSM-áskrifta kom­inn í tæp­lega 312 þús­und hér­lendis. Árið 2010 var fjöld­inn kom­inn í 375 þús­und og 2014 fór hann yfir 400 þús­und.

Fjöldinn náði því að vera tæp­lega 476 þús­und árið 2019 en, líkt og áður sagði, skrapp hann saman í fyrra í fyrsta sinn frá því að farið var að halda utan um þessar tölur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár