Íslendingar notuðu 50 prósent meira gagnamagn í fyrra en árið áður

Íslenskir not­endur not­uðu 337 sinnum meira gagna­magn á árinu 2020 á far­síma­neti en þeir gerðu 2009 þrátt fyrir að ferða­þjón­ustan hafi skroppið veru­lega saman. Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn jók því notkun lands­manna á snjall­tækjum sínum umtals­vert.

Símar hafa skipt um hlutverk á undanförnum áratugum. Þeir eru nú tölvur í vasa notenda sem notaðar eru fyrir afþreyingu og fréttanotkun, en ekki bara tól til að taka við og hringja símtöl.
Símar hafa skipt um hlut­verk á und­an­förnum ára­tugum. Þeir eru nú tölvur í vasa not­enda sem not­aðar eru fyrir afþr­ey­ingu og frétta­notkun, en ekki bara tól til að taka við og hringja sím­töl. Mynd: Tracy Le Blanc/Pexels

Fyrir rúmum ára­tug, nánar til­tekið 2009, voru ekki margir sem not­uðu snjall­tæki tengt við far­síma­net sem helstu leið sína til að nálg­ast afþr­ey­ingu og fréttir. Það ár not­uðu íslenskir far­síma­not­endur alls 243 þús­und gíga­bæti af gagna­magni á far­síma­netum fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna.

Á þessum tíma var snjall­síma­væð­ingin enn stutt á veg komin – fyrsta iPhone-inn var kynntur til leiks sum­arið 2007 – og enn tvö ár í að spjald­tölvur voru útnefndar sem jóla­gjöf árs­ins af Rann­sókn­ar­setri versl­un­ar­innar.

Síðan þá hefur gagna­magns­notk­unin hins vegar auk­ist skarpt. Raunar er það svo að á ell­efu árum hefur hún 337fald­ast.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri töl­fræði skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um fjar­skipta­mark­að­inn sem sýnir stöð­una í lok árs 2020 sem birt var nýverið.

Nova með mesta markaðshlutdeild

Þar segir að íslenskir far­síma­not­endur hafi notað alls 81,9 milljón gíga­bæti á far­síma­neti fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna í fyrra. Á milli áranna 2019 og 2020 nam aukn­ingin 49,4 pró­sentum. Sú aukn­ing varð þrátt fyrir að fjöldi erlendra ferða­manna sem heim­sótti Ísland hafi fallið úr um tveimur millj­ónum árið 2019 í undir hálfa milljón í fyrra, vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

[adspot]Mest var notk­unin á meðal við­skipta­vina Nova, sem not­uðu alls 51,4 milljón gíga­bæti í fyrra. Fyr­ir­tækið var með 62,7 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á gagna­magns­mark­aði á far­síma­neti á árinu 2020. Við­skipta­vinir Símans not­uðu 23,7 pró­sent af gagna­magn­ingu og þeir sem eru með í við­skiptum við Vodafone, sem til­heyrir Sýn-sam­stæð­unni, nýttu 11,1 pró­sent. Aðrir minni leik­endur voru svo með 2,5 pró­sent af mark­aðnum sam­tals.

Helsta breyt­ingin sem orðið hefur á und­an­förnum árum er að Nova hefur bætti við sig mark­aðs­hlut­deild á kostnað hinna tveggja.

Það þarf þó að taka fram að þar er um að ræða þá notkun sem fer fram í gegnum far­síma­netið, ekki þá sem nýtt er með teng­ingu við beini (WiFi), en margir far­símar tengj­ast slíkum beini heima hjá not­anda og/eða á vinnu­stað hans. Síminn er það fyr­ir­tæki sem er með flesta við­skipta­vini þegar kemur að hefð­bundnum inter­netteng­ingum.

5G-væðingin rétt að byrja

Um liðin ára­mót voru 85 pró­sent allra virkra síma­korta á far­síma­neti 4G kort. Um mitt ár 2014 voru 14,8 pró­sent allra síma­korta þannig, en 4G-væð­ingin hófst af alvöru á Íslandi á því ári. 4G teng­ingar innan far­síma­nets­ins fela í sér tíu sinnum meiri hraða en 3G teng­ingar gera. Þær eru auk þess um þrisvar sinnum hrað­ari en hröð­ustu ADSL-teng­ingar.

Fyrsti 5G sendir­inn var svo tek­inn í gagnið hér­lendis árið 2019 og í kjöl­farið hófust próf­anir á slíkri þjón­ustum en með 5G fá not­endur að með­al­tali tíu sinnum meiri hraða en með 4G.

Stefnt var að því að notkun á 5G kortum yrði nokkuð almenn á síð­asta ári en af því varð ekki. Í árs­lok var fjöldi virkra 5G-korta hér­lendis ein­ungis 119 tals­ins.

Búast má við því að breyt­ist í nán­ustu fram­tíð þar sem öll stærstu fjar­skipta­fyr­ir­tækin á Íslandi ætla sér í öfl­uga upp­bygg­ingu á 5G-þjón­ustu á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár