Segir núverandi ástand ekki vera kreppu

Doktor í fjár­málum segir að Íslend­ingar virð­ast hafa sloppið við kreppu í þetta skiptið. Hins vegar sé áhyggju­efni hvað atvinnu­leysi hefur auk­ist mikið hér­lendis, ef miðað er við nágranna­lönd.

Kynning ríkisstjórnarinnar á öðrum aðgerðarpakka vegna efnahagsafleiðinga COVID-19
Kynning rík­is­stjórn­ar­innar á öðrum aðgerð­ar­pakka vegna efna­hagsaf­leið­inga COVID-19 Mynd: Bára Huld Beck

Þrátt fyrir efna­hags­á­fallið sem útbreiðsla COVID-19 hafði í för með sér í fyrra erum við ekki stödd í kreppu hér­lendis, sam­kvæmt Ásgeiri Brynjari Torfa­syni, doktor í fjár­málum.

Í grein Ásgeirs Brynjars í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn, fer hann yfir skil­grein­ingu á kreppu og hvers vegna hug­takið ætti ekki við í núver­andi ástandi. Venju­lega sé talað um kreppu þegar lands­fram­leiðsla dregst saman tvö ár í röð eða þegar sam­drátt­ur­inn nemur meira en 10 pró­sentum á einu ári. Þar sem hvor­ugt hefur gerst hér­lendis eru Íslend­ingar ekki staddir í kreppu enn.

Samkvæmt Ásgeiri kom auk­inn halla­rekstur hins opin­bera í fyrra í veg fyrir heimskreppu, en Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum hélt því fram í síð­ustu viku að sam­drátt­ur­inn í lands­fram­leiðslu á heims­vísu hefði orðið meiri en 10 pró­sent í fyrra ef ekki hefði verið fyrir aðgerðir hins opin­bera.

Ásgeir segir þó að lyk­il­máli skipti hvar aðgerðum hins opin­bera sé beitt í stað stærðar þeirra í pen­ingum talið og að það eigi að vera meg­in­verk­efni stjórn­valda að halda uppi atvinnustig­inu. Samkvæmt honum hefur það tek­ist illa hingað til hér­lendis, þar sem landið er í sér­flokki bæði hvað varðar aukn­ingu atvinnu­leysis og það hversu erfitt hefur reynst að ná því niður á síð­ustu árum. Þessi þróun er áhyggju­efni að mati Ásgeirs Brynjars, sér­stak­lega í ljósi þess að rík­is­stjórnin hefur nú þegar brugð­ist við með umfangs­miklum aðgerðum.

Líkleg skýr­ing á mik­illi aukn­ingu atvinnu­leysis hér­lendis er sam­setn­ing vinnu­mark­að­ar­ins og stærð ferða­þjón­ust­unnar í hag­kerf­inu, segir Ásgeir. Aftur á móti telur hann skorta raun­veru­leg gögn sem sýni fram á gildi þess að minni hækkun launa muni minnka atvinnu­leysið, eins og oft hafi verið haldið fram. Þrátt fyrir að hlut­deild launa í þjóð­ar­fram­leiðsl­unni auk­ist séu tengsl þess við atvinnu­leysið óljós.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár