AGS mælir með þrengri skilyrðum á húsnæðislánum

Seðla­bank­inn ætti að beita þjóð­hags­var­úð­ar­tækjum sínum til að tak­marka hlut íbúða­lána hjá bönk­unum eða tryggja end­ur­greiðslu­getu lán­anna, að mati Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri Mynd: Bára Huld Beck

Bregðast ætti við verð­hækk­unum á hús­næð­is­mark­aði og vax­andi hluti íbúða­lána hjá bönkum með beit­ingu þjóð­hags­var­úð­ar­tækja, til dæmis með reglum um hámark lána­greiðslna sem hlut­fall af tekjum lán­tak­enda eða hámarks­hlut lán­anna í eigna­safni bank­anna. Þetta kom fram í áliti Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) um efna­hags­leg við­brögð stjórn­valda við far­aldr­inum, sem birt­ist á mánu­dag­inn.

Fjármálakerfið sterkt en hættur víða

Í mat­inu kom fram að fjár­mála­kerfið hér­lendis væri í góðri stöðu, þar sem hátt eig­in­fjár­hlut­fall og góð lausa­fjár­staða bank­anna styrkti við­náms­þrótt þeirra við vænt högg á lána­safn þeirra í fram­tíð­inni. Hins vegar væri nauð­syn­legt að fylgj­ast náið með mögu­legum hættum sem gætu sprottið upp.

Fylgjast ætti með að kröfur bank­anna á fyr­ir­tæki sem hafa komið illa út úr far­aldr­inum séu rétt verð­metnar, að mati AGS. Þar bæri helst að nefna útistand­andi lán fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu­geir­anum. Einnig bætir sjóð­ur­inn við að styðja þurfi við líf­væn­leg fyr­ir­tæki í grein­inni með skil­vikum hætti.

Varúðartækjum beitt á íbúðamarkaði

Til við­bótar við óvissu um verð­mæti eigna bank­anna bætir sjóð­ur­inn við að miklar verð­hækk­anir á hús­næð­is­mark­aðnum og vax­andi hluti íbúða­lána í eigna­safni þeirra séu hættu­merki fyrir fjár­mála­kerfið. Slíkri hættu væri best að mæta með þjóð­hags­var­úð­ar­tækjum sem mið­uðu að end­ur­greiðslu­getu lán­tak­enda og hversu stór hluti eigna­safns bank­anna væri í hús­næð­is­lánum. Samkvæmt AGS gætu þessar aðgerðir einnig veitt bönk­unum and­rými til að styðja við vöxt fyr­ir­tækja þegar efna­hag­sóvis­unni lýkur.

Svokölluð þjóð­hags­var­úð­ar­tækiSeðla­bank­ans eru reglur sem bank­inn getur sett á til að varð­veita stöð­ug­leika fjár­mála­kerf­is­ins í heild. Þeirra á meðal eru reglur um eig­in­fjár­auka á fjár­mála­fyr­ir­tæki, gjald­eyr­is­jöfnuð, laust fé og stöðuga fjár­mögnun.

Einnig getur Seðla­bank­inn komið á frek­ari tak­mörk­unum á fast­eigna­lánum ef vöxtur hús­næð­is­lána verður óhóf­legur eða verð­hækk­anir verða of miklar á fast­eigna­mark­aði.Undir þessar tak­mark­anir heyra breyt­ingar á veð­setn­ing­ar­hlut­falli á nýjum íbúða­lánum og reglur sem tak­marka fast­eigna­lán til neyt­enda í hlut­falli við tekjur lán­taka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár