Stjórn LIVE hafi ekki gætt að því að meta hæfi stjórnarmanna

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans segir að stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna hafi ekki gætt að því að meta hæfi stjórn­ar­manna við und­ir­bún­ing og ákvörðun um hvort taka skyldi þátt í hluta­fjár­út­boði Icelandair.

Upplýsingagjöf sjóðsins til fjármálaeftirlitsins í tengslum við athugunina er sögð hafa verið „ábótavant og misvísandi“.
Upp­lýs­inga­gjöf sjóðs­ins til fjár­mála­eft­ir­lits­ins í tengslum við athug­un­ina er sögð hafa verið „ábóta­vant og mis­vísandi“. Mynd: Úr safni.

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans telur að stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna hafi ekki gætt að því að meta hæfi ein­stakra stjórn­ar­manna við und­ir­bún­ing og ákvörðun um hvort sjóð­ur­inn tæki þátt í hluta­fjár­út­boði Icelandair Group. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðu bank­ans vegna athug­unar á stjórn­ar­háttum hjá sjóðnum, sem birt var í dag.

Þar segir einnig að Seðla­bank­inn hafi farið fram á að stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins tryggi fram­vegis að full­nægj­andi umræða fari fram á stjórn­ar­fundum um hæfi stjórn­ar­manna þegar til­efni sé til lögum sam­kvæmt og að stjórn­ar­mönnum verði tryggður kostur á að koma á fram­færi upp­lýs­ingum sem varða hæfi þeirra í tengslum við þau mál sem eru til umræðu, eftir því sem til­efni er til hverju sinni.

Einnig segir í nið­ur­stöðu fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­bank­ans að upp­lýs­inga­gjöf sjóðs­ins til bank­ans vegna athug­un­ar­innar á stjórn­ar­háttum sjóðs­ins hafi verið „ábóta­vant og mis­vísandi“. Það hafi meðal ann­ars tafið afgreiðslu máls­ins.

Athugun fjár­mála­eft­ir­lits­ins hófst í sept­em­ber í fyrra, vegna álita­mála sem komu upp í tengslum við und­ir­bún­ing ákvörð­unar stjórnar sjóðs­ins um hvort taka skyldi þátt í hluta­fjár­út­boði Icelandair Group eða ekki.

Til athug­unar var hvort stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins hefði gætt að því með full­nægj­andi hætti að meta hæfi ein­stakra stjórn­ar­manna við und­ir­bún­ing og ákvörðun um hvort sjóð­ur­inn tæki þátt í hluta­fjár­út­boð­inu í sam­ræmi við kröfur laga nr. 129/1997 um skyldu­trygg­ingu líf­eyr­is­rétt­inda og starf­semi líf­eyr­is­sjóða og stjórn­sýslu­laga nr. 37/1993.

Seðla­bank­inn afl­aði meðal ann­ars upp­lýs­inga og gagna um ákvörð­un­ar­ferli stjórnar sjóðs­ins vegna útboðs­ins og átti fundi með stjórn­ar­mönnum sjóðs­ins þar sem farið var yfir sömu mál­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár