Seðlabankinn kallar eftir endurskipulagningu hjá ferðaþjónustufyrirtækjum

Seðla­bank­inn segir brýnt að huga að end­ur­skipu­lagn­ingu skulda ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja, þar sem greiðslu­vandi þeirra fari að breyt­ast í skulda­vanda þegar greiða á upp lánin sem tekin voru í upp­hafi far­ald­urs­ins.

Fjármálastöðugleikanefnd SÍ
Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd SÍ Mynd: Seðlabanki Íslands

Greiðslu­vand­inn sem ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki hafa glímt við und­an­farið ár vegna tekju­falls gæti breyst í skulda­vanda hjá stórum hluta grein­ar­innar þegar fyr­ir­tækin byrja að greiða af lánum sínum á ný. Þetta kemur fram í rit­inu Fjár­mála­stöð­ug­leika, sem Seðla­bank­inn gaf út fyrr í dag.

Skuldir aukast

Samkvæmt Seðla­bank­anum hafa skuldir ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja auk­ist nokkuð í kjöl­far far­sótt­ar­innar og var útlána­vöxtur kerf­is­lega mik­il­vægra banka til ferða­þjón­ustu rúm­lega 11% á síð­asta ári. Stór hluti aukn­ing­ar­innar skýrist af frest­uðum afborg­unum og vaxta­greiðslum á árinu, auk nýrra stuðn­ings- og brú­ar­lána.

Til við­bótar hafði geng­is­lækkun krón­unnar á árinu þau áhrif að lán í erlendum gjald­eyri hækk­uðu í krónum talið en þau nema tæp­lega þriðj­ungi útlána til ferða­þjón­ustu. Sú hækkun jók einnig á skuld­setn­ingu ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækj­anna

Seðla­bank­inn segir að gjald­þrot í grein­inni hafi enn sem komið er verið fátíð og end­ur­skipu­lagn­ing skulda fyr­ir­tækja í grein­inni eiga að stórum hluta eftir að fara fram. „Nú þegar hillir undir enda­lok far­ald­urs­ins er brýnt að fara að huga að því verk­efni,“ stendur í rit­inu.

Ekki allir hagnast á íslensku ferðaþjónustusumri

Seðla­bank­inn bætir við að útlit sé fyrir því að kom­andi sumri muni svipa til þess síð­asta að því leyti að inn­lend ferða­mennska verði í far­ar­broddi, svo lengi sem létt verði á sótt­varn­ar­að­gerðum inn­an­lands. Þetta ástand kæmi sér ekki vel fyrir hluta grein­ar­innar sem reiðir sig að nær öllu leyti á þjón­ustu við erlenda ferða­menn, t.d. gisti­staðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, ýmis afþrey­inga­fyr­ir­tæki og ferða­skrif­stofur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár