Einar og Magnús síðustu staðfestu oddvitar á listum Pírata

Píratar hafa nú, fyrstir allra flokka, lokið vali í efstu sætin á listum sínum í öllum kjör­dæmum.

Próf­kjöri Pírata í Norð­austur- og Norð­vest­ur­kjör­dæmi lauk klukkan 16 í dag. Nið­ur­staða þeirra varð sú að Einar Brynj­ólfs­son verður odd­viti flokks­ins í Norð­austri og Magnús Davíð Norðdahl mun leiða í Norð­vestri. Píratar eru sem stendur með þing­mann í hvor­ugu kjör­dæm­inu.

Kosn­ingin var raf­ræn og greiddu rúm­lega 280 manns atkvæði í því fyrr­nefnda, þar sem sjö voru í fram­boði, og 400 í Norð­vest­ur­kjör­dæmi þar sem sex fram­bjóð­endur sótt­ust eftir efstu sæt­unum.

Nið­ur­stöðu próf­kjör­anna í heild sinni má sjá neðst í frétt­inni.

Þar með er öllum próf­kjörum Pírata lokið og efsta fólk á lista flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar sem fram fara 25. sept­em­ber næst­kom­andi fyr­ir­liggj­andi.

Einar Brynj­ólfs­son hefur áður setið á þingi fyrir Pírata. Hann var kjör­inn þangað árið 2016 en datt út ári síðar þegar kosið var öðru sinni á einu ári. Magnús Davíð Norðdahl er sjálf­stætt starf­andi lög­maður sem hefur meðal ann­ars vakið athygli fyrir störf sín fyrir flótta­menn sem sóst hafa eftir alþjóð­legri vernd á Íslandi.

Próf­kjörum Pírata í hinum fjórum kjör­dæm­unum, Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur, Suð­ur­kjör­dæmi og Suð­vest­ur­kjör­dæmi, lauk um síð­ustu helgi.

[adspot]Þrír þing­menn, Björn Leví Gunn­ars­son, Hall­dóra Mogensen og Andrés Ingi Jóns­son, höfn­uðu í þremur efstu sæt­unum í Reykja­vík. Þing­mað­ur­inn Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir varð í efsta sæt­inu í uðvest­ur­kjör­dæmi og Álf­heiður Eymars­dótt­ir, vara­þing­maður Pírata, í því efsta í Suð­ur­kjör­dæmi.

Björn Leví greindi frá því á Facebook í kjöl­farið að hann ætli að leiða Pírata í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suð­ur, sama kjör­dæmi og hann er nú þing­maður fyr­ir. Það þýðir að Halldóra Mogensen verður leið­togi flokks­ins í Reykja­vík norður.

Andrés Ingi Jóns­son hóf kjör­tíma­bilið sem þing­maður Vinstri grænna. Hann sagði sig úr flokknum og varð þing­maður utan flokka en ákvað í ár að ganga í raðir Pírata.

Arn­dís Anna Krist­índ­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir lenti svo í fjórða sæti í próf­kjör­inu í Reykja­vík.

Niðurstaða prófkjörs Pírata í Norðausturkjördæmi:

  1. Einar Brynj­ólfs­son
  2. Hrafndís Bára Ein­ars­dóttir
  3. Hans Jónsson
  4. Rúnar Gunn­ar­son
  5. Katla Hólm Vilbergs- og Þór­hild­ar­dóttir
  6. Skúli Björns­son
  7. Gunnar Ómarsson

Niðurstaða prófkjörs Pírata í Norðvesturkjördæmi:

  1. Magnús Davíð Norðdahl
  2. Gunnar Ingiberg Guð­munds­son
  3. Katrín Sif Sig­ur­geirs­dóttir
  4. Pétur Óli Þor­valds­son
  5. Sigríður Elsa Álf­hild­ar­dóttir
  6. Ragn­heiður Steina Ólafs­dóttir
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár