Útgerðarfyrirtækin þurfi að svara kalli tímans um gagnsæi, traust og réttlæti

Þing­maður Við­reisnar segir það hags­muna­mál, bæði fyrir sjó­menn og þjóð­ina alla, að sjó­menn séu ekki hlunn­farnir af útgerðum. Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra vill takast á við þetta vanda­mál en segir verð­lagn­ingu vera á for­ræði sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna og sjó­manna.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, og Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Samsett mynd

„Við verðum að fá að vita af hverju hægt er að borga norskum skipum 220 til 230 krónur á kíló fyrir loðnu sem er ekki eins verð­mæt og loðnan á íslensku skip­unum meðan hin íslensku skip frá bara um hund­rað krónur á kílóið,“ sagði Þor­gerður K. Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Hún beindi fyr­ir­spurn sinni til Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, og spurði hann hvað hann hygð­ist gera til þess að skýra mynd­ina, svara sjó­mönnum og til þess að laga þetta.

Þor­gerður vís­aði í ræð­unni í við­tal Frétta­blaðs­ins við Valmund Val­munds­sonar, for­mann Sjó­manna­sam­bands Íslands, frá því í gær. „Hann segir sjó­menn vilja að þetta verði skoðað svo skera megi úr um það hvort áhafnir íslensku skip­anna hafi verið hlunn­farnar,“ sagði Þor­gerður. Hún sagði þetta vera mikið hags­muna­mál, ekki bara fyrir sjó­menn heldur þjóð­ina alla. „Hags­mun­irnir þeir liggja víðar. Þjóðin, rík­is­sjóður og sveit­ar­fé­lög þau eru hlunn­farin um skatt­tekjur og hafn­ar­gjöld.“

Verðlagning ekki á forræði stjórnvalda

Kristján Þór sagði málið eiga sér langa sögu. „Við deilum örugg­lega bæði þeirri skoðun að verð­lagn­ingin á loðnu og öðrum sjáv­ar­af­urðum er ekki á for­ræði stjórn­valda heldur fyrst og fremst á for­ræði sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna og sjó­manna sjálfra. Það er spurn­ing hvernig hægt er að greiða úr þess­ari stöðu og það verk­efni hefur verið tek­ist á um í mjög langan tíma,“ sagði Kristján Þór í svari sínu.

Að allra mati sé þetta slæm staða að sögn Krist­jáns, hún sé engum til góða, hún leiði af sér tor­tryggni og skapi van­traust á milli aðila. „Ég hef kallað eftir því frá báðum aðilum þessa máls eða þess­arar deilu að það þurfi að útskýra þennan mis­mun, leggja fram gögn og reyna að eyða þeirri tor­tryggni sem að uppi er í þessu máli því að staða þess er algjör­lega óþol­andi,“ sagði hann.

Kristján sagði að hann hefði beitt sér fyrir því að gerður yrði sam­an­burður á kjörum og launa­kerfum sjó­manna nor­rænna ríkja. Það verk­efni standi nú yfir en hafi frest­ast vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. „Ég bind vissu­lega vonir við að þetta verk­efni nái fram að ganga og við getum dregið af því ein­hvern lær­dóm og myndi vilja gjarnan að það væri hægt að styðj­ast við ein­hverja slíka grein­ingu til þess að takast á við þetta gam­al­gróna deilu­efni,“ sagði Kristján.

„Hvert fer mismunurinn?“

Þor­gerður sagði að í kjöl­far verk­falls­að­gerða sjó­manna 2017 hafi verið sam­þykkt að efla Verð­lags­stofu skipta­verðs, en svo virt­ist sem það hefði ekki dugað til. „Útgerð­ar­fyr­ir­tækin, eins og þetta lítur út fyrir núna, verk­tak­inn, hann virð­ist ákveða sjálfur ein­inga­verðin sem hann síðan gefur upp. Þá er hægt að spyrja: hvert fer mis­mun­ur­inn?“ sagði Þor­gerður.

Hún sagði útgerð­ar­fyr­ir­tækin verða að svara kalli tím­ans um gagn­sæi, um traust og um rétt­læti, „hvort sem litið er til eðli­legrar hlut­deildar þjóð­ar­innar í auð­lind­inni okkar eða skýrra reglna um raun­veru­legt eign­ar­hald sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna og auð­vitað í þessu máli, hvert afurða­verðið er í raun og veru. Þessar aðstæður eru að mínu mati óboð­legar fyrir sjó­menn að standa frammi fyrir þessu aftur og aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár