Vilja banna blóðmerahald og ónauðsynlegar aðgerðir á börnum

Velferð dýra og rétt­indi barna eru efst á baugi hjá þing­mönnum Flokks fólks­ins í tveimur frum­vörpum sem lögð hafa verið fram á Alþingi. Þeir vilja bann við blóð­töku úr fyl­fullum merum og að ónauð­syn­legar aðgerðir á börnum verði bann­aðar.

Lög um velferð dýra hafa það að markmiði að vernda dýr gegn ómannúðlegri meðferð. Bannað er að ofbjóða kröftum dýrs eða þoli eða misbjóða dýrum á annan hátt.
Lög um vel­ferð dýra hafa það að mark­miði að vernda dýr gegn ómann­úð­legri með­ferð. Bannað er að ofbjóða kröftum dýrs eða þoli eða mis­bjóða dýrum á annan hátt. Mynd: Pexels

Í nýfram­lögðu frum­varpi Ingu Sæland, for­manns Flokks fólks­ins, um breyt­ingu á lögum um vel­ferð dýra, er lagt til að svo­kallað blóð­mera­hald verði bannað og þar með bannað að taka blóð úr fyl­fullum merum í þeim til­gangi að selja það eða vinna úr því vöru til sölu.

Í frum­varpi Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar, þing­manns Flokks fólks­ins, um breyt­ingar á lögum um rétt­indi sjúk­linga, er lagt til að kveðið verði á um afdrátt­ar­laust bann við ónauð­syn­legum aðgerðum og rann­sóknum á börnum í stað hins mats­kennda núver­andi orða­lags að „hlífa beri börnum“ við slíku.

[adspot]

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu sem Inga hefur lagt fram er bent á að lög um vel­ferð dýra hafi það að mark­miði að vernda dýr gegn ómann­úð­legri með­ferð. Bannað sé að ofbjóða kröftum dýrs eða þoli eða mis­bjóða dýrum á annan hátt. Á Íslandi sé þó „virkur iðn­aður“ sem felist í blóð­töku úr lif­andi hrossum í því skyni að vinna úr því hormón sem seld eru til líf­tækni­fyr­ir­tækja sem svo aftur fram­leiða úr þeim frjó­sem­is­lyf fyrir búfénað. Hormónið sem um ræðir finnst aðeins í blóði fyl­fullra mera.

„Líf­tækni­fyr­ir­tæki borga hátt verð fyrir horm­ónið og því hefur blóð­mera­hald auk­ist til muna hér á landi að und­an­förnu,“ segir í grein­ar­gerð­inni. Árið 2019 hafi 5.036 merar verið not­aðar í þessum til­gangi. Á nokkrum stöðum sé þetta orðið að stór­bú­skap þar sem um 200 merar séu haldnar til blóð­fram­leiðslu. Miklir fjár­hags­legir hvatar séu til staðar til að hámarka afköst. „Blóð­merar eru látnar ganga með folöld eins oft og mögu­legt er þar til horm­ónið fyr­ir­finnst ekki lengur í blóði þeirra og þá er þeim slátrað. Folöldin fara að jafn­aði beint í slátrun.“

Í frum­varpi um vel­ferð dýra er ekki fjallað sér­stak­lega um blóð­mera­hald og ekki heldur í reglu­gerðum um vel­ferð hrossa og vel­ferð dýra sem eru notuð í vís­inda­skyni. „Það er því ekk­ert í lögum eða reglu­gerðum sem kveður á um hve mikið af blóði megi taka úr fyl­fullum merum hverju sinni, né hve oft, né hvaða aðbún­aður þurfi að vera til staðar. Þetta er með öllu ótækt í ljósi þess hve umfangs­mikil þessi starf­semi er hér á landi,“ stendur í grein­ar­gerð frum­varps Ingu Sæland.

Dæmi eru um að merar drep­ist við blóð­tök­una en þótt þær geri það ekki „getur iðn­að­ur­inn haft slæm áhrif á líf og líðan þeirra,“ segir í grein­ar­gerð­inni og vitnað til Mat­væla­stofn­unar sem hafi gert alvar­legar athuga­semdir á þremur bæjum vegna blóð­mera­halds á síð­ustu þremur árum. „Það brýtur gegn öllum sjón­ar­miðum um vel­ferð dýra að rækta hross til blóð­fram­leiðslu í gróða­skyni. Því er lagt til að bannað verði að taka blóð úr fyl­fullum merum í því skyni að selja það eða vinna úr því vöru til sölu.“

Veita ber börnum viðhlítandi vernd

Í frum­varpi Guð­mundar Inga, þing­manns Flokks fólks­ins, um breyt­ingu á lögum um rétt­indi sjúk­linga, er lagt til að í stað núver­andi orða­lags í lög­unum, þar sem segir að „hlífa beri börnum“ við ónauð­syn­legum aðgerðum og rann­sóknum verði kveðið á um „afdrátt­ar­laust bann“ við slíku.

Í grein­ar­gerð segir að þó að for­eldrar hafi for­ræði yfir börnum sínum sé vald þeirra til að taka ákvarð­anir um hag barna sinn ekki algert. Lög­gjaf­inn geti sett reglur sem tak­marki rétt­indi for­eldra. „Það er stjórn­ar­skrár­bundið hlut­verk lög­gjafans að gæta sér­stak­lega að því að lög veiti börnum við­hlít­andi vernd,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Sérstaka athygli beri að veita þeim til­vikum þar sem ákvarð­anir séu teknar sem hafi var­an­leg áhrif á líf barns, svo sem ákvarð­anir um að fram­kvæma á börnum lækn­is­að­gerðir. Í lögum um rétt­indi sjúk­linga komi fram sú meg­in­regla að for­eldrar sem fari með for­sjá barns skuli veita sam­þykki fyrir nauð­syn­legum með­ferðum en frá þeirri meg­in­reglu séu þó und­an­tekn­ingar. Í lög­unum er lögð sú skylda á heil­brigð­is­starfs­menn að leita til barna­verndar neiti for­eldrar að sam­þykkja nauð­syn­lega með­ferð sjúkra barna. Þá er í þeim einnig heim­ild fyrir heil­brigð­is­starfs­menn til að grípa taf­ar­laust til nauð­syn­legrar með­ferðar ef ekki vinnst tími til að leita lið­sinnis barna­vernd­ar­yf­ir­valda.

„Mik­il­vægt er að gæta þess að for­eldrar gangi ekki of langt þegar kemur að því að ákveða hvort barn skuli und­ir­gang­ast með­ferð,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps Guð­mundar Inga og í því sam­bandi bent á þá vísi­reglu frum­varps­ins að hlífa beri börnum við ónauð­syn­legum rann­sóknum og aðgerðum. Bent er á að ólíkt þeim reglum sem gilda um nauð­syn­lega lækn­is­með­ferð barna þá sé ekki fjallað um það í lög­unum „hvernig brugð­ist skuli við þegar for­eldrar óska eftir með­ferð sem er með öllu óþörf“.

Faglegt mat ráði

Vísireglan um að „hlífa beri börnum“ er mats­kennd og „langt frá því að vera afdrátt­ar­laus“. Því leggja flutn­ings­menn til að 2. mgr. 27. gr. laga um rétt­indi sjúk­linga kveði á um það að óheim­ilt verði að fram­kvæma óþarfa aðgerðir og rann­sóknir á börnum. Við mat á því hvort aðgerð telj­ist óþörf eða ekki þurfi eðli­lega að taka mið af hags­munum barns­ins auk lækn­is­fræði­legra og sál­fræði­legra þátta. „Flutn­ings­menn leggja áherslu á að lífs­skoð­anir for­eldra eiga ekki að geta rétt­lætt það að láta hjá líða að fram­kvæma til­tekna aðgerð eða valda því að til­teknar aðgerðir séu fram­kvæmdar, þá eigi það hvort for­eldrar telji að barn þeirra velji að und­ir­gang­ast til­tekna aðgerð í fram­tíð­inni ekki að hafa áhrif á lækn­is­fræði­legt mat á nauð­syn. Faglegt mat eigi ávallt að ráða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár