Arion ekki með stefnu um innra eftirlit

Arion banki fékk athuga­semd frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu fyrir að hafa ekki mótað heild­stæða stefnu um innra eft­ir­lit bank­ans.

Höfuðstöðvar Arion banka í Borgartúninu
Höf­uð­stöðvar Arion banka í Borg­ar­tún­inu Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hefur gert athuga­semd við að Arion banki hafi ekki sett sér stefnu um innra eft­ir­lit. Bankinn segir að unnið sé að því að semja slíka stefnu, en að hún muni ekki breyta stefnu bank­ans í heild sinni.

Samkvæmt lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki bera stjórnir þeirra ábyrgð á því að til staðar sé virkt kerfi innra eft­ir­lits. Rík­is­end­ur­skoðun hefur gefið út leið­bein­ingar um hvernig slíku eft­ir­liti skuli vera háttað, en það ætti meðal ann­ars að tryggja að rekstur fyr­ir­tækj­anna sé skil­virkur og að lögum og reglum sé fylgt í starf­semi þeirra.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans seg­ist Arion banki vera með skil­greint innra eft­ir­lit, sem væri skipt upp í þrjár varn­ar­línur. Þar gegndi reglu­varsla, áhættu­stýr­ing og innri end­ur­skoðun mik­il­vægu hlut­verki, sem og allt starfs­fólk bank­ans.

Engin stefna og skipulagi ábótavant

Í nýlega birtum nið­ur­stöðum úr könn­unar- og mats­ferli á Arion banka gerði Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hins vegar athuga­semd við að bank­inn hefði ekki sett sér stefnu um innra eft­ir­lit. Einnig gerði FME athuga­semd um skipu­lag innra eft­ir­lits­ins, sem ekki er talið vera í sam­ræmi við almenn við­mið Evrópsku banka­eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar.

Samkvæmt Arion banka tæki stefna um innra eft­ir­lit á þáttum svo sem fram­tíð­ar­sýn þess, þróun í sam­ræmi við ytri breyt­ingar og skil­grein­ingu á eigin við­miðum. Bankinn hafi ekki mótað sér slíka stefnu, þótt allir þessi þættir liggi fyrir hjá bank­anum. Unnið sé að því innan bank­ans að semja sér stefnu um innra eft­ir­lit núna.

Aðspurður hvort slík stefnu­mótun muni hafa áhrif á heild­ar­stefnu Arion banka svarar bank­inn að svo sé ekki. Hins vegar muni stefna um innra eft­ir­lit mót­ast af stefnu bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár