Meira en helmingur áhorfenda hætti að horfa á fréttir Stöðvar 2 þegar þeim var lokað

Sýn segir að áhorf­endum að áskrift­ar­leiðum þeirra í sjón­varpi hafi fjölgað mikið og séu nú yfir 40 þús­und allt í allt. Ekki fást upp­lýs­ingar um hvernig sá fjöldi skipt­ist á mis­mun­andi áskrift­ar­leiðir né hversu margir hafi bæst við í jan­úar 2021.

Frá 18. janúar síðastliðnum hefur fréttatími Stöðvar 2 verið lokaður fyrir öðrum en áskrifendum.
Frá 18. jan­úar síð­ast­liðnum hefur frétta­tími Stöðvar 2 verið lok­aður fyrir öðrum en áskrif­endum. Mynd: Sýn

Áhorf á fréttir Stöðvar 2 meira en helm­ing­að­ist eftir að lokað var fyrir að aðrir en áskrif­endur gætu horft á þær mánu­dag­inn 18. jan­úar. Í vik­unni á undan var áhorf á frétt­irnar 23,2 pró­sent en viku síðar var það komið niður í 10,8 pró­sent.

Til sam­an­burðar var áhorf á fréttir RÚV 29,8 pró­sent. Áhorf á fréttir Stöðvar 2 fór því úr að vera 78 pró­sent af áhorfi RÚV í að vera 36 pró­sent þess.

Hjá ald­urs­hópnum 12-49 ára fór áhorfið úr ell­efu pró­sent í 5,6 pró­sent.

Þetta kemur fram í tölum sem Gallup birtir viku­lega um áhorf á íslenskar sjón­varps­stöðvar.

Heiðar Guð­jóns­son, for­stjóri Sýnar, sagði við vb.is á föstu­dag að það væri ekki rétt að bera saman heild­ar­á­horf á Stöð 2 við línu­lega dag­skrá RÚV þar sem efn­isveitan Stöð 2+ væri utan áhorfs­mæl­inga. Þau skipti sem horft sé á frétta­tím­ann þar mælist því ekki með í áhorfskönn­unum Gallup.

Vill RÚV af auglýsingamarkaði

Greint var frá ákvörðun Sýnar að loka hinum svo­kall­aða opna glugga, sem í ára­tugi hefur verið að mestu opinn öllum til áhorfs, fyrir öðrum en áskrif­endum 11. jan­úar síð­ast­lið­inn. Ákvörð­unin hefur leitt að sér aukna umræðu um umfang RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði og áhyggjur af því að frétta­stofa rík­is­mið­ils­ins sitji ein að sjón­varps­frétta­tíma­mark­aðnum í opinni dag­skrá.

[adspot]Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, sagði í sam­tali við mbl.is vegna þessa að skyn­sam­leg­ast væri að taka RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði og ná þyrfti póli­tískri sátt um það. Hún sagði enn fremur að brott­hvarf frétta­tíma Stöðvar 2 úr opinni dag­skrá væri slæmt fyrir sam­keppni.

Gefa ekki upp hversu margir hafa bæst við

Í kjöl­far þess að Gallup birti nýjar tölur sínar um sjón­varps­á­horf seint í lið­inni viku sendi Sýn frá sér til­kynn­ingu þar sem kom fram að nýsala áskrifta hefði tvö­fald­ast í jan­úar 2021 miðað við sama mánuð í fyrra og að nú væru yfir 40 þús­und heim­ili með aðgang að Stöð 2+.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á Sýn og að um upp­lýs­ingar um fjölda áskrif­enda að hverri sjón­varps­á­skrift­ar­leið sem í boði er hjá félag­inu og upp­lýs­ingar um hversu margir hefðu bæst við í jan­úar 2021.

Í svari Magnúsar Haf­liða­sonar, for­stöðu­manns sam­skipta- og mark­aðs­sviðs, sagði að Sýn gæfi ekki upp fjölda í hverri áskrift­ar­leið að svo stöddu. Þá vildi hann heldur ekki gefa upp fjölda þeirra sem bæst hefðu við í yfir­stand­andi mán­uði. „Það mun mögu­lega koma fram síðar þegar áhrif breyt­ing­anna eru betur komin fram en við erum aðeins rétt rúmar tvær vikur frá breyt­ing­unni.“

Magnús sagði enn fremur að fjöldi áskrif­enda hefði auk­ist þvert á allar þrjár leiðir Sýnar: Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport. „Frá síð­asta hausti höfum við séð mjög mik­inn vöxt í efn­isveit­unni sem í dag heitir Stöð 2+.“

Aug­lýs­inga­tekjur dróg­ust saman um 15 pró­sent

Sýn keypti ýmsa fjöl­miðla af félag­inu 365 miðlum í lok árs­ins 2017. Um er að ræða ljós­vaka­miðla á borð við Stöð 2, Bylgj­una og tengdar útvarps­­­­­stöðvar og frétta­vef­inn Vísi. Kaup­verðið var 8,2 millj­­­arðar króna. 

[links]Á milli áranna 2018 og 2019 lækk­­­uðu tekjur Sýnar af umræddum fjöl­miðlum um 446 millj­­­ónir króna og í upp­­­hafi árs 2020 var við­­­skipta­vild sem var til­­­komin vegna fjöl­mið­l­anna sem voru keyptir lækkuð um 2,5 millj­­­arða króna.

Í fjár­­­festa­kynn­ingu vegna nýjasta upp­­­gjörs Sýn­ar, sem var fyrir þriðja árs­fjórð­ung árs­ins 2020, kom fram aug­lýs­inga­tekjur fjöl­miðla Sýnar hafi dreg­ist saman um 15 pró­­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í sam­an­­burði við sama tíma­bil 2019, og að það sé meg­in­á­­stæða þess að fjöl­miðla­­tekjur hafi haldið áfram að lækka. Það var sagt að stórum hluta vegna áhrifa af yfir­­stand­andi heims­far­aldri. Tekjur af sjón­­varps­dreif­ingu hafi hins vegar auk­ist og jákvæð þróun er sögð í áskrift­­ar­­tekjum milli árs­fjórð­unga eftir að þær dróg­ust saman á fyrri hluta árs­ins 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár