Fréttatíma Stöðvar 2 verður lokað fyrir öðrum en áskrifendum

Þeir sem eru ekki áskrif­endur að Stöð 2, en hafa van­ist þess síð­ustu ára­tugi að horfa á fréttir stöðv­ar­innar í opinni dag­skrá, munu ekki lengur geta það frá og með næstu viku.

Frétta­tími Stöðvar 2 verður í lok­aðri dag­skrá frá 18. jan­úar næst­kom­andi, en honum hefur í 34 ára verið sjón­varpað í opinni dag­skrá. Það þýðir að aðrir en áskrif­endur að Stöð 2 munu ekki lengur geta horft á frétta­tím­ann.

Honum verður hins vegar áfram útvarpað á Bylgj­unni og því verður hægt að hlusta á frétt­irnar í beinni útsend­ingu. Auk þess munu birt­ast mynd­brot úr honum á frétta­vefnum Vísi eftir að útsend­ingu lýkur á Stöð 2.

Þórir Guð­munds­son, rit­stjóri frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar segir í frétta­til­kynn­ingu að breyt­ing­arnar gefi frétta­stof­unni kleift að standa vörð um öfl­uga frétta­þjón­ustu í sjón­varpi. Breyttar aðstæður kalla á nýjar áherslur í fjöl­miðlun en það sem breyt­ist ekki er áhersla okkar á traust, vand­virkni og nálægð við fólk. Frétta­stofan verður því áfram leið­andi í miðlun frétta – á Stöð 2, Vísi og Bylgj­unni.“

[adspot]Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Þórhalli Gunn­ars­syni, fram­kvæmda­stjóra fjöl­miðla Stöðvar 2, að um sókn­ar­að­gerð sé að ræða. „Með þess­ari aðgerð erum við að tryggja frétta­stof­una enn frekar í sessi. Við erum þess full­viss að með stuðn­ingi áskrif­enda skap­ist for­sendur til að standa vörð um öfl­uga frétta­þjón­ustu og fram­leiðslu inn­lends efnis. Á síð­asta ári fram­leiddi Stöð 2 alls 48 íslenskar þátt­araðir og við­burði sem er gríð­ar­leg aukn­ing frá fyrri árum. Við höldum ótrauð áfram á sömu braut og kynnum á sama tíma fleiri við­skipta­vinum fyrir Stöð2+ stærstu efn­isveitu lands­ins með íslenskt efni, á áður óþekktu verði.”

Þær breyt­ingar eru gerðar á áskrift að Stöð 2 að henni fylgir fram­vegis aðgangur að Stöð 2+. sem hét áður Maraþon, á 7.990 krónur á mán­uði. Samtímis verður sú breyt­ing gerð á áskrift­ar­skil­málum að engin bind­ing er á áskriftum umfram líð­andi mánuð. Það þýðir að hægt verður að segja upp eða gera breyt­ingar á áskriftum fyrir 25. hvers mán­aðar sem taka þá gildi fyrsta dag næsta mán­aðar.

Tekjur vegna fjölmiðlareksturs hafa dregist saman

Stöð 2 er í eigu fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Sýnar. Sýn keypti ýmsa fjöl­miðla af félag­inu 365 miðlum í lok árs­ins 2017. Um er að ræða ljós­vaka­miðla á borð við Stöð 2, Bylgj­una og tengdar útvarps­­­stöðvar og frétta­vef­inn Vísi. Kaup­verðið var 8,2 millj­­arðar króna.

Á milli áranna 2018 og 2019 lækk­­uðu tekjur Sýnar af umræddum fjöl­miðlum um 446 millj­­ónir króna og í upp­­hafi árs 2020 var við­­skipta­vild sem var til­­komin vegna fjöl­mið­l­anna sem voru keyptir lækkuð um 2,5 millj­­arða króna.

Í fjár­festa­kynn­ingu vegna nýjasta upp­gjörs Sýnar, sem var fyrir þriðja árs­fjórð­ung árs­ins 2020, kom fram ayg­lýs­inga­tekjur fjöl­miðla Sýnar hafi dreg­ist saman um 15 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í sam­an­burði við sama tíma­bil 2019, og að það sé meg­in­á­stæða þess að fjöl­miðla­tekjur hafi haldið áfram að lækka. Það var sagt að stórum hluta vegna áhrifa af yfir­stand­andi heims­far­aldri. Tekjur af sjón­varps­dreif­ingu hafi hins vegar auk­ist og jákvæð þróun er sögð í áskrift­ar­tekjum milli árs­fjórð­unga eftir að þær dróg­ust saman á fyrri hluta árs­ins 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár