Segir einkavæðingu banka viðkvæma jafnvel við bestu aðstæður

Gylfi Zoega segir mikla áhættu fólgna í því að kerf­is­lega mik­il­vægir bankar séu í einka­eigu í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands
Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands Mynd: Kristinn Ingvarsson/HÍ

Mikil áhætta gæti skap­ast í rekstri kerf­is­lega mik­il­vægra banka ef þeir eru í einka­eigu, sökum tak­mark­aðrar ábyrgð eig­enda þeirra og trygg­ingar um að ríkið komi þeim til bjargar þegar illa gengur. Einnig er mik­il­vægt að traust sé til banka­kerf­is­ins og sem minnst óvissa sé um mat á eignum bank­ans þegar á að selja hann.

Þetta eru meðal þess sem Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, og Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjár­málum, minn­ast á í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn. Í blað­inu fara Gylfi og Ásgeir Brynjar yfir eign­ar­hald og rekstur við­skipta­banka, auk þess sem ýmsir áhættu­þætti fyr­ir­hug­aðrar sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka eru nefndir.

Breytt regluverk hjálpi til

Samkvæmt Gylfa er ekki nema von að margir hrökkvi við nú þegar minnst er á einka­væð­ingu banka, miðað við reynsl­una af bönkum í einka­eigu á tíma­bil­inu 2003-2008 og umrót­inu sem þeir ollu. Þeir hafi lánað tengdum aðilum, keypt hluta­bréf í fyr­ir­tækjum sem einnig áttu hluta­bréf í þeim sjálfum, fölsuðu eigið fé með sölu á hluta­bréfum til starfs­fólks og tóku gríð­ar­leg lán erlendis til þess meðal ann­ars að fjár­magna erlendar fjár­fest­ingar tengdra aðila.

Þó segir hann að reglu­verkið sem komið hefur verið á síð­ustu árin girði fyrir mikið af því sem gerð­ist árin fyrir hrun. Nú sé tak­mörk á lán­veit­ingum í erlendum gjald­miðlum, auknar eig­in­fjár­kröfur og hömlur á fjár­fest­ingum erlendra aðila í skráðum skulda­bréfum, en allt þetta hefur gert fjár­mála­kerfið stöðugra.

Of mikil áhætta í einkavæddum bönkum

Þrátt fyrir þetta nefnir Gylfi að einka­væð­ing kerf­is­legra mik­il­vægra banka sé við­kvæmt ferli, og að vissan um að ríkið komi þeim til bjargar með lausafé þegar illa gengur geti skapað freistni­vanda. Einnig bendir hann á nýja rann­sókn sem sýnir fram á að tak­mörkuð ábyrgð stjórn­enda og ráð­andi eig­enda sé stærsta orsök þess að bankar taki of mikla áhættu í rekstri sínum.

Gylfi bætir þó við að rík­is­rekstur bank­anna gæti einnig aukið hættu á spill­ingu innan fjár­mála­kerf­is­ins, þar sem stjórn­mála­menn gætu hlut­ast til í ákvörð­unum um lán­veit­ingar. Aftur á móti hafi rekstur rík­is­bank­anna tveggja gengið vel síð­ustu ár og ekki hafi komið neinar ábend­ingar um að við­skipta­vinum sé mis­munað.

Mikilvægt að verðmeta rétt

Ásgeir Brynjar fer yfir mik­il­vægi þess að verð­meta eignir banka, það er að segja lána­söfn þeirra, rétt ef selja á þá fyrir rétt verð. Í yfir­stand­andi heims­far­aldri sé hins vegar erfitt að meta raun­veru­legt virði ýmissa lána, þar sem óvíst sé hverjar af eignum bank­anna tap­ast og hverjum af lán­þegum þeirra verða veittir frek­ari greiðslu­frestir og hve lengi.

Einnig segir Ásgeir Brynjar að traust til kerf­is­ins sé algjört lyk­il­at­riði, og minn­ist á að mik­ill meiri­hluti lands­manna virð­ist and­vígur sölu bank­anna. Því til stuðn­ings bendir hann á skoð­ana­könnun frá því í febr­úar á síð­asta ári þar sem 19 pró­sent aðspurðra voru fylgj­andi því að ríkið seldi eign­ar­hlut sinn í bönk­unum.

Þá minn­ist Ásgeir einnig á að vegna lágra vaxta liggi fyrir á mark­aði að fjár­mögn­un­ar­kostn­aður rík­is­ins fari lækk­andi. Í slíku umhverfi sé fórn­ar­kostn­að­ur­inn af því að skulda mun minni en áður og því sé sjálf­bærni opin­berra skulda ekki áhyggju­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár