Skipstjórinn játaði sök

Við þing­fest­ingu í Hér­aðs­dómi Vest­fjarða í dag ját­aði skip­stjór­inn á Júlíusi Geir­munds­syni sök. Honum er gert að greiða sekt og missir skip­stjórn­ar­rétt­indi tíma­bundið.

Hraðfrystihúsið Gunnvör gerir Júlíus Geirmundsson út.
Hrað­frysti­húsið Gunnvör gerir Júlíus Geir­munds­son út. Mynd: Af vef Verkalýðsfélags Vestfirðinga

Skip­stjóri tog­ar­ans Júlíusar Geir­munds­sonar, sem ákærður var fyrir brot á sjó­manna­lögum í kjöl­far þess að hóp­sýk­ing kom upp um borð fyrr í vetur, ját­aði sök er ákæran var þing­fest í Hér­aðs­dómi Vest­fjarða í dag.Í frétt RÚV um máliðsegir að honum sé gert að greiða 750 þús­und króna í sekt og að hann missi skip­stjórn­ar­rétt­indi sín í fjóra mán­uði.

[adspot]

Í þeirri grein sjó­manna­laga sem skip­stjór­inn var ákærður fyrir að brjóta gegn segir að veik­ist skip­verji eða slas­ist skuli skip­stjóri sjá um að hann fái nauð­syn­lega umönnun á skip­inu eða í landi. Ef ástæða er talin að ætla að ein­hver um borð sé hald­inn sjúk­dómi sem hætta stafi af fyrir aðra skuli skip­stjóri láta flytja sjúk­ling­inn í land, ef ekki reyn­ist unnt að verj­ast smit­hættu á skip­inu.

[links]22 skip­verjar á tog­ar­anum smit­uð­ust af COVID-19 í veiði­ferð í októ­ber. Land­helg­is­gæslan var hins vegar ekki látin vita af hugs­an­legu hópsmiti auk þess sem ekki var farið í land eftir að upp komst um veik­indin.

Einn skip­verj­anna kom í við­tal í kjöl­far atburð­anna og sagði m.a. frá því skip­verjar hefðu verið látnir vinna þrátt fyrir veik­indin. „Það er óum­deilt að það leið engum vel í þessum aðstæðum og þeir voru allir að bíða eftir að kom­ast í land,“ sagði Bergvin Eyþórs­son, vara­for­maður Verka­lýðs­fé­lags Vest­firð­inga í sam­tali við Kjarnann í lok októ­ber.

Júlíus Geir­munds­son er í eigu Hrað­frysti­húss­ins Gunn­varar hf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár