Búast má við einhverjum tilslökunum í lok vikunnar

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir mun skila Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra til­lögur að fram­haldi sótt­varna­ráð­staf­ana í dag eða á morgun. Miðað við orð þeirra beggja má búast við að slakað verði eitt­hvað á.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ef marka má orð bæði sótt­varna­læknis og heil­brigð­is­ráð­herra í sam­tali við fjöl­miðla í gær og í dag má gera ráð fyrir því að slakað verði á sótt­varna­ráð­stöf­unum síðar í vik­unni, en núgild­andi reglu­gerð um sam­komu­tak­mark­anir rennur út á föstu­dag, 27. ágúst.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði í Kast­ljósi í gær að þróun far­ald­urs­ins inn­an­lands væri jákvæð og að hann myndi horfa til þess er hann setti saman næsta minn­is­blað sitt til Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra, en fjöldi þeirra sem eru með virkt smit fer nú minnk­andi dag frá degi og staðan á Land­spít­al­anum er orðin betri en hún virt­ist vera fyrir skömmu síðan. Sjö manns eru nú á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans.

Svandís tal­aði við fjöl­miðla eftir rík­is­stjórn­ar­fund í dag og sagði bæði við Rík­is­út­varpið og frétta­stofu Stöðvar 2 að hún teldi svig­rúm til staðar til þess að slaka á aðgerðum.

[adspot]

„Ég er sam­mála því,“ sagði Svandís við Stöð 2. Hún benti á að smit­bylgjan virt­ist á und­an­haldi og að tök væru að nást á stöðu mála.

Þrátt fyrir sagði hún að þol­mörk Land­spít­al­ans væru ekki langt undan, en ráð­ist hefði verið í ýmsar aðgerðir til að styðja spít­al­ann í því að sinna hlut­verki sínu.

Hún sagði ýmis mál til skoð­unar, meðal ann­ars kröfur sem settar hafa verið fram af hálfu knatt­spyrnu­liða um að rýmka fjölda­tak­mark­anir þannig að fleiri áhorf­endur geti mætt á knatt­spyrnu­leiki.

Ráðherra sagð­ist búast við því að minn­is­blað með til­lögum um áfram­hald sótt­varna­ráð­staf­ana ber­ist frá sótt­varna­lækni ýmist síðar í dag eða í fyrra­málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár